Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 12

Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 12
'12 Súnhiiflíagur '8. febrúar' 1-981 Þorpib San Mango sul Calore jafnaöist viö jöröu á áttatlu sekúndum. Það er borin von, aö fólkiö, sem komst af, fái ærlegt húsaskjól næstu árin, ef dæma skal eftir reynslu Sikil- eyinga af endurreisnarstarf- inu hjá þeim. r Endurreisnarsaga frá Italíu: Þorp á Sikiley, sem hrundu í landskjálftum fyrir þrettán árum, liggja enn í í nóvembermánuði i haust jöfnuðust fjölda- mörg þorp i Mezzogiorno-héraði á Suður-ítaliu við jörðu i miklum landskjálftum. Mikill sægur fólks varð húsnæðislaus, margir slösuðust meira eða minna og talið er, að 2.614 hafi far- ist. Björgunar- og hjálparstarfsemi af hálfu stjórnvalda fór i handaskolum eins og mest mátti verða, og var bæði seint og illa við brugð- ið. Bilar, sem sendir voru af stað, strönduðu á miðri leið, af þvi að láðst hafði að gæta þess, að þeir þörfnuðust bensins. Allt fór i handaskolum um sendingar á mat og drykk, tjöldum, brekánum, fatnaði, lyfjum og öðru, sem nauð- svnlegast var. Sumt gleymdist, annað lenti i villum og mörgu var hrúgað á einn eða fáa staði. Læknar, sem gáfu sig fram eða til voru fengnir, höfnuðu margir á sömu slóðum, en annars staðar var ógerlegt að ná til læknis, hvað sem við lá, og svipað fór með hjúkrunar- lið, er dregið var saman seint og um siðir. rústum Mörgum vikum eftir land- skjálftana hafði sumra hinna afskekktustu þorpa alls ekki verið vitjað, og fram undir þetta hefur fjöldi fólks orðið að hafast við i lélegum tjöldum á ber- svæði, þótt vetur hafi verið strangari á þessum slóðum en oftast áður. Samtimis standa ekki viðs fjarri auð góð sumar- hús rikra manna, er voru nógu vel byggð til þess að standast landskjálftana að mestu leyti. Mitt i allri neyð sinni hefursamt margt fólk þverneitað að láta flytja sig frá rústum þorpanna uppi i fjalllendinu niður i bæi d ströndinni. Og það hefur góðar og gildar ástæður til þess að hafnaslikum flutningi: Reynsla þess af stjórnvöldunum segir þvi, að þar verði þaö látið lönd og leið, látið gleymast fjarri heimkynnum sinu, og muni aldrei framar eiga þess kost að hverfa aftur að hokri sinu uppi i fjallahéruðunum, er það er vant og er skárri kostur en örbirgð i gleymsku i fjölmenni á ókunn- um slóðum. Þarna er Suöurlandabúanum rétt lýst aö geta ekki haft skipu- lag á neinu, kunna einhverjir að hugsa i norðlægum hofmóði. En þvi er til að svara, að suma brast hvorki viðbragðsflýti né skipulagsgáfu, þegar þetta bar að höndum. Það var bara italska stjórnkerfið, sem var i molum, fyrirhyggjulaust og ó- viðbúið. I borgum á Suður-ltaliu var undir eins uppi fótur og fit innan samtaka þeirra útsjónar- sömu manna, sem ekki eru of viðkvæmir til þess að notfæra sér rækilega hvert tækifæri, sem gefst, hvort heldur það er vegna slælegrar löggæzlu, spilltra embættismanna, slysa ogófara. Þarna bauðst tækifæri til þess 'að hagnast á ógæfu fólksins i fjallahéruðunum, og samstundis voru hendur á lofti. Gifurlegt okurbrask hófst og neyð fólksins, sem ekki fékk hjálp, þegar mest lá við, var notuö út i æsar. Það var skipu- lega rúiö öllu, sem i verð mátti koma af þvi, sem bjargazt hafði úr rústum þorpanna, svo lengi sem nokkuð var af þvi að hafa, og jafnvel likkistur voru seldar á svartamarkaðsverði. Þessir geðslegu gróðahyggjumenn gleymdu ekki að láta bensin á bilana sina, og þeim varð ekki skotaskuld úr þvi aö skipta sér niður á þorpin. Þetta er saga sem gerzt hefur áður. 1 janúarmánuöi fyrir þrettán árum varð mikill jarð- skjálfti á Sikiley. Nitján þorp i Beliza-dalnum á vesturhluta eyjarinnar fóru i rúst, um þús- und fórust og nálega hundrað þúsund stóðu uppi án þess að eiga þak yfir höfuð sér. Italska stjórnkerfiö gafst viðlika vel þá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.