Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 21

Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 21
Sunnudagur 8. febrúar 1981 29 LMllJMÍll Fótatökin er æfö sérstaklega En þótt brautryðjendurnir færu vitt um land og kenndu mönnum að fleyta sér, varð sund lengi vel miklum hluta þjóðarinnar framandi, og er svo enn i dag. Enn eru t.d. til menn á góðum aldri, er þannig séð, hafa aldrei i vatn komið, en nóg um það. Þetta er orðinn býsna langur inngangur, en tilefni þessa greinastúfs var að vekja athygli á nýjung i sundi, en það er sund- kennsla meðal aldraðra, sem Félagsmálaráö Reykjavikur gengst fyrir, eða sundnámskeið fyrir ellilifeyrisþega. Það er Ernst Backman, sundkennari, er annast þessa kennslu, er fram fer i Sundhöll Reykja- vikur. Rættviö Ernst Backman, sundkennara. Við hittum Ernst að máli einn morguninn og báðum hann aö segja fyrst frá sundkennslu sinni. Hann sagði: — Ég hóf að kenna sund eftir að hafa lokið iþróttakennara- prófi, en áður hafði ég verið laugarvörður i 17 ár. Sundkennslan er aðallega sú að kenna skólabörnum sund, en nú hefur bætst við nýr ár- gangur, en það eru ellilifeyris- þegar. — Þetta er fólk á aldrinum 65, eða 67 ára og uppúr. Ég held að sá elsti hafi verið 85 ára, og það var allt ósynt. — Hvers vegna er þetta fólk ósynt? — Það geta legið ýmsar ástæður fyrir þvi. Skólasund og skipulögð sundkennsla komst seint á, og viða á landinu var enginn aðstaða hvorki laug, né kennslu aö hafa, þó sundskylda sé nú i landinu. — Er það aldrei of seint að læra sund? — Nei ætli það. Það er að visu við vissa örðugleika að etja. Margt af þessu fólki, er það sem er kallað vatnshrætt, en þaö er tilfinning, sem þróast með ein- hverjum hættimeð ósyndu fólki, þótt misjafnt sé. Kennslunni verður þvi að haga á sérstakan hátt. Ég er niðri i lauginni með þessum nemendum, en þaö er maöur yfirleitt ekki, þegar verið er að kenna börnum. Sundið er tvisvar, eða þrisvar i viku, en námskeiðið tekur 20 kennslustundir. 15 manns eru á hverju námskeiði, en alls hafa verið haldin þrjú námskeið. Einu er lokiö, en tvö standa yfir núna, og kennt er frá 9-10 á morgna na. — Og lærir þetta fólk að synda? — Það er dálitið misjafnt, en flestir læra talsvert og sumir komast á flot. Annaö mál er það lika, að þetta fólk segir mér að sundæfingarnar styrki það og auki velliðan, en fáar iþróttir veita eins mikla velliðan og hæfilegt sund. Þetta er fólk, sem sumt hreyfir sig annars litiö, og þessi aukna hreyfing, styrkir það og eykur þvi þrótt. — Er fyrirhugað að halda fleiri námskeið? — Það hefur komið i ljós aö mjög mikill áhugi er hjá eldra fólki að fá að læra sund, og ég geri ráð fyrir að framhald verði á þessu. Hvert námskeið kostar 57.50, en það hækkar vist i 63.59 krónur á næstunni. — Við gerum einnig ráð fyrir að þeir sem farið hafa á nám- skeið haldi áfram sundiðkun á eigin spýtur. Ellilifeyrisþegar greiða sérstakt lægra gjald á sundstöðum borgarinnar, kaupa sérstök afsláttarkort. Þetta er þvi bæði holl og ódýr skemmtun, sagði Ernst Backman að lokum. Sundiö liöur i félagsstarfi fyrir aldraða/ segir Gerður Steinþórsdóttir. I framhaldi af samtalinu viö Ernst Backman, höfðum við samband við Gerði Steinþórs- dóttur, formann Félagsmála- ráðs, og sagði hún að þessi sundkennsla væri þáttur i félagsstarfi aldraöra i borginni. Tillaga um að gjöra tilraun meö sundkennslu hefði veriö sam- þykkt einróma á sinum tima i félagsmálaráði. Kvaöst hún hafa orðið þess vör, að fólk kynni að meta þessi námskeið og vonaðist til þess að þeim yrði haldið áfram, og eins að þetta yröi öörum hvatning til þess að notfæra sér sundstaði borgarinnar, sem væru miklir heilsubrunnar. JG. GLÆSILEG SÓFASETT MASSÍF EIK Sérstök afborgunarkjör Hverfisgötu 76 — Sími 15102 REYKJAVÍK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.