Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 16

Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 16
 Sunnuda’gur -8.'f«brú«r,il981 24 1500 manns heiðra minningu Lennons: LENNON MINNST á tilhlýðilegan hátt Þaö var sannkölluð veisla fyrir eyru og augu sem haidin var í Austur- bæjarbiói síöastliðió þriójudagskvöld. Þar héldu tónlistarmenn úr öllum áttum minningar- tónleika um látinn félaga, John Lennon. Það sýndi sig að hann á hér á landi fjölda aðdáenda, þvi húsfyllir var á báða tón- leikana og er áætlað að um 1500 manns hafi allt í allt séð tónleikana. Þetta framtak var sameiginlegt af hálfu hljómlistarmannanna og allur ágóði af þessum tónleikum mun renna til Geðverndar. Virðingar- vert framtak og svo sannanlega i anda Lenn- ons. Fjöldi landsþekktra tónlistarmanna tók þátt i þessum hljómleikum og gáfu þeir allir vinnu sína. Listinn yrði of langur ef telja ætti upp nöfn allra þeirra, er fram komu eða lögöu sitt af mörkunum, til þess að þessir tón- leikar yrðu að veruleika. Mér er til efs að nokkru sinni áður hafi safnast saman slíkur úrvals- flokkur íslenskra tónlistarmanna sem raun varð á, á þriðjudags- kvöldið. Af þeim mynd- um sem birtar eru hér á siðunni sést að f lokkurinn var friður. Tónleikarnir hófust meö inn- gangsorðum Þorgeirs Astvalds- sonar og siðan tók Sigurður Skúlason leikari við og flutti frumort ljóð, sem hann hafði ort vegna dauða Lennons og fór hann vel með. Siðan byrjuðu hinir eiginlegu tónleikar. Tónlistarmennirnir þræddu sig i gegnum tiðina með þvi að leika lög, sem voru einkennandi fyrir það timabil sem verið var að segja frá. Það var ekki ætlast til þess að lögin hljómuðu alveg eins og Bitlarnir eða Lennon á sinum tima, aðeins var verið að bregða upp mynd af æviferli Lennonsmeð lögum Bitlanna og hans eigin lögum. Hljómlistar- mennirnir fóru vel meö lögin og er greinilegt að flestir þeirra hafa kunnað þau utanaö og höfðu ánægju af þvi að flytja þau. Mér kom það i hug á meðan ég hlýddi á tónleikana hve Keflavik er rikjandi i tónlistar- lifi okkar Islendinga. Þeir menn sem voru hvað lengst á sviðinu og sumir reyndar allan timann, voru allir frá Keflavik. Má þar nefna Gunnar Þórðarson, sem sannaði að hann er ekki dauður úr öllum æðum hvað gitarleik varðaði, Rúnar Júliusson, Magnús Kjartansson, Hrólfur Gunnarsson, Finnbogi Kjartansson, Mgnús Sigmunds- son og Jóhann Helgason. Það sannast þvi máltækið að i Keflaviksé „Mekka” islenskrar tónlistarmenningar að finna. Áhorfendur kunna vel að meta þá dagskrá sem boðið var upp á og var gleðilegt að sjá bæði unga sem gamla taka höndum saman i fagnaðarlátun- um að leik loknum. Umsjón: Magnús Gylfi Myndir og texti: Magnús Gylfi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.