Tíminn - 08.02.1981, Side 9
Sunnudagur 8. febrúar 1981
9
komnir voru nýir hermenn til
þess að fylla i þau skörð, er
höggvin höfðu verið i enska ný-
lenduherinn. En það varð bið á
þvi, að Englendingar færu með
sigur af hólmi. Andspyrna Búa
var ótrúleg, og fréttir um
hreysti þeirra og hugrekki, oft
ýktar eins og gengur, flugu um
allar jarðir. Ollum sigrum
þeirra var fagnað viða um lönd,
og Englendingar söfnuðu glóð-
um elds að höfði sér með herför
sinni gegn þessum æðrulausu
bændum. Þeir sættu afarhörð-
um dómum fyrir framferði sitt
og yfirgang, og þess var opin-
skátt óskað, að þeir kæmust að
þvi keyptu áður en yfir lyki.
Sumum létti lika. Vilhjálmi
Þýzkalandskeisara stóð stuggur
af Bretum og veldi þeirra, og
kannski hefur honum stundum
orðið hugsað til þess, hvernig
leikar færu, ef þeim og Þjóð-
verjum lenti saman (eins og
gerðist hálfum öðrum áratug
siðar). En nú létti honum.
Styrjöldin i Suður-Afriku sýndi,
að Englendingar voru slakir i
hernaði, er þeir orkuðu svo illa
að koma illa búnum bændaher á
kné. En þar skauzt keisaranum
likt og Hitler siðar, er hann dró
þá ályktun af vetrarstriðinu i
Finnlandi 1939-1940, að sovézki
herinn væri ekki til stórræða.
Margir þeirra, sem fjallað
hafa um Búastriðið á seinni ár-
um, hafa aftur á móti jafnað þvi
til styrjaldar Frakka og Banda-
rikjamanna i Vietnam, er fóru
halloka fyrir örfátækri þjóð,
sem átti allt að vinna en engu að
tapa og hagaði sér samkvæmt
þvi.
Hinir hörðu dómar, sem felld-
ir voru yfir Englendingum
vegna Búastriðsins, mögnuðu
með þeim þrjózku. Þeir létu
ekki bilbug á sér finna, hversu
mjög sem þeim var legið á
hálsi. Þeir horfðu ekki heldur i
þær fórnir, bæði i mannslifum
og fjármunum, sem af Búa-
striðinu flaut. Þeir drógu saman
meiri her en áður voru dæmi um
til þess að kúga Búa og bjuggu
hann öllum þeim vopnum, sem
þá voru skæðust.
I nær tvö ár var sá hernaður
háður af mikilli grimmd.
Búarnir réðust á búðir Englend-
inga, þegar þeir sáu sér færi á,
lágu i launsátri fyrir þeim, þar
sem þvi varð við komið, drápu
þá, sem þeir náðu, sprengdu
upp hergagnabúr og þar fram
eftir götunum. Englendingar
brenndu hús og heimili Búanna,
rændu kvikfénaði þeirra og sóp-
uðu tugþúsundum manna i
nokkurs konar fangabúðir, þar
sem fólki var hvorki séð fyrir
nægjanlegu fæði né öðru, er það
þurfti til þess að halda lifi. Iðu-
lega var fólk drepið án dóms og
laga, herfangar skotnir i bræði
af handahófi og fólki misþyrmt
á allan hátt.
Svertingjarniráttuekki heldur
sjö dagana sæla. Bæöi Búar og
Englendingar þröngvuðu þeim
miskunnarlaust til þess að
vinna fyrir sig. Englendingar
neyddu þá til varðstöðu og
njósna. Þannig voru þeir milli
steins og sleggju og mátti ekki
mikið út af bera til þess, að þeir
gyldu þess með lifi sinu.
Hvernig sem þeir höguðu sér,
voru þeir ekki annað en sjálf-
sögð fórnarlömb. Skátahöfðing-
inn Baden-Powell viðfrægöi
varnir Mafeking, en sannleikur-
inn bak við þá vörn er sá, að
Englendingar stálu öllum mat-
vælum, sem þeir fundu þar með
þeim afleiðingum, að fjöldi
blökkumanna varð hungur-
morða. Þegar samtök enskra
kvenna kváðu loks upp úr með
það seint og um siðir, hvilikar
þjáningar konum og börnum á
striðssvæðunum væru búnar,
náði meðaumkun þeirra ein-
ungis til hvita fólksins, en ekki
þess, sem dökkt var á hörund.
Loks kom að þvi, að Búarnir
gáfust upp, meöfram af ótta við,
að svartir kynþættir myndu
snúast gegn þeim. Ekki verður
sagt, að Englendingar létu bein-
linis kné fylgja kviði, enda voru
þeir farnir að þreytast á hörðum
dómum úr öllum áttum. En sizt
mun þá hafa grunaö, að raunar
yrðu það Búarnir, sem hrósuðu
sigri innan skamms tima.
Suður-Afrika fékk stjálfstjórn
að tæpum tiu árum liðnum.
Svertingjarnir höfðu gert sér
vonir um, að þeir mættu um
frjálst höfuö strjúka, er Eng-
lendingar báru hærri hlut. Miln-
er hafði stefnt að þvi, að Suður-
Afrika yrði brezkt veldi, sem
drottnaði i þessum heimshluta i
nánum tengslum við móður-
landið. En það urðu Búar, sem
reyndust drýgri.
Bretar létu fyrst i stað sem
þeir vildu hindra þá undirokun
svarta fólksins, sem Búar höfðu
tiðkað. En eigi að siður varð
raunin sú, að viðhorf Búanna
varð alls ráðandi frá Höfðaborg
i suðri til Ródesiu i norðri.
Smám saman náðu Búar eða
niðjar þeirra völdum i Suöur-
Afriku með þeim afleiðingum,
sem kunnar eru. Hugmyndir
þeirra drottna þar enn, og Búa-
striðið er eitt af þvi, sem mótað
hefur hugmyndir margra um
ágæti þeirra og samborgar-
anna, yfirburði þeirra og rétt til
þess að fótum troða svarta kyn-
þáttinn.
Nýjung á íslandi
VÉLSKÍÐI
Nú er auðvelt fyrir unga sem
a/dna að komast ferða sinna
i snjó og ófærð —
bæði i ieik og starfi
Auðveldur í geymslu og flutningi • Þyngd aðeins 33 kg
Sparneytnasta samgöngutækið í vetrarferðum
5 lítra bensíntankur endist í 3 klst.
Góð varahluta- og viðgerðarþjónusta
WjS
CHRYSLER
Marme
Sö/uumboð og upplýsingar:
HðDUR HF.
Klapparstig 27
Box 4193
Sími (91)21866
Umboðsmaður á Akureyri:
Skálafell s.f.
Skáli v/Ka Idbaksgötu
Simi (96)22255