Tíminn - 01.03.1981, Page 21
Sunnudagur 1. mars 1981
29
fram bornar af einstökum þing-
mönnum. Þeim er visað til þing-
nefnda sem starfa allt árið
meira og minna, til ráðherra-
nefndarinnar og rikisstjórna
allra norrænu landanna. Þá
koma venjulega fram álitsgerð-
ir um tillögurnar. Umsagna um
þær er leitað mjög viða. Aðrar
samstarfsstofnanir, senda og
frá sér skýrslur og álitsgerðir. 1
þessum skýrslum er að jafnaði
gert rækileg grein fyrir sérsviði
eða sérvanda allra hinna
norrænu rikja og þannig áfram
utan enda.
Að sjálfsögðu er hér farið að
reglum lýðræðis. Sú spurning
hlýtur þó að vakna hvort ekki
megi með einhverjum hætti
gera málsmeðferðina auðveld-
ari og greiðari.
Ekki hefur tekist að skapa enn
sem komið er hentugan farveg
til upplýsinga og fréttamiðlunar
á öllum þessum álitsgerðum.
Skýrslum er dreift i ýmsar áttir.
Það er svo að sjá að ekki sé um
samræmdar aðgerðir að ræða.
Á stundum fær maður sama
efnið frá mismunandi aðilum.
Litur út fyrir oft á tiðum að
skipulag skorti á dreifingunni.
Þannig ber það við að sami mót-
takandi fái allt frá álitsgerðum
um öxulþunga vörubila til til-
lagna um hátiðarhöld á barna-
ári.
Þetta ómarkvissa dreifingar-
kerfi gefur þó hugmyndir um
rikuleg fjárráð: þegar starfs-
hópar sem málin varðar hreint
ekki neitt fá allt að þvi hálft
hundrað álitsgerða á ári hverju,
sem betur væru komnar á öðr-
um stöðum.
Þörf er á að gera athugun á
þvi, hvort samstarfsstofnanirn-
ar gætu ekki dregið úr útgáfu-
kostnaði.
Það kynni þó kannski að vera
hentugast að byrja á þvi ai
koma lagi á dreifinguna á þvi
efni sem skrifstofur norrænt
samstarfsstofnananna láta frá
sér fara.
Endurskoðun á
hlutverki
Námskeið og ráðsteínur eru
rikir þættir i norrænu samstarfi.
Aðþeim standa samstarfsstofn-
anirnar og norræni menningar-
málasjóðurinn. Það má ljóst
vera að beint persónulegt sam-
band almennings á Norðurlönd-
um eins og til er stofnað með
námsskeiðum er einn happa-
drýgsti grundvöllur að norrænni
samvinnu.
Það er þó að sjálfsögöu ekki
eina ástæða þess að efnt er til
námsskeiða.
Meðal þeirra norrænna nám-
skeiða sem efnt er til um þessar
mundir eru of mörg, sem ekki
leiða til frekari aðgerða.
Námskeiðshald verður aö fela
i sér verkefni og möguleika á,
að efna til enn nýrra persónu-
legra kynna og þannig eiga
námskeiðin beinlinis að verða
grundvöllur að auknum þátttak-
endafjölda — auknum kynnum.
Nú ber helst á þvi að sama fólk-
ið sé um of þaulsætið á nám-
skeiðsbekkjunum — einn þáttur
i stofnanamennskunni.
Jafnvel má merkja aö farið sé
að bera á skorti á ákjósanlegu
umræðuefni á námskeiðum
þeim sem stofnanir Norður-
landaráðs beita sér fyrir. Það er
ef til vill ekki rétt að skella
skuldinni á samstarfsstofnan-
irnar og norræna menningar-
málasjóðinn, þegar námskeiðin
verða léleg. Fulltrúar
menningarmálasjóðsins telja
sig geta fullyrt að skortur sé á
nýjum hugmyndum — en nóg sé
af peningum til nýunga.
Ég er hreint ekki sannfærður
um að hin opinbera samstarfs-
vél detti alltaf ofaná nýjar hug-
myndir sem brjóta i blað. Alla
jafnan stinga mikilvægar hug-
myndir upp kollinum hjá stofn-
unum lægra i stiganum hjá
samtökum almennings. Það er
lika sjálfsagt holt fyrir Norrænu
félögin að taka til fordóma-
lausrar endurskoðunar hlutverk
sitt og starfshætti alla. Stöðugt
eru timarnir að breytast og
félagasamtökum ber að laga sig
að nýjum aðstæðum til þess að
efla og auka bein tengsl sin við
allan almenning i öllum þjóð-
félagsstéttum á Norðurlöndum.
Nauðsynlegur þáttur
þinghaldsins
Á seinni árum hafa hin árlegu
þing Norðurlandaráðs verið
nefnd annað slagið i fréttablöð-
um, ráðstefnurnar á dansgólf-
inu. Nafngiftin er villandi.
Auk hinna tveggja þátta
þingstarfanna, almennu um-
ræðnanna og umfjöllunar um
sérstök mál þingsins er efnt til
hádegisverða, kvöldverða og
móttökuhalda. Það hefur tiðk-
ast frá upphafi og er mikilvægt.
Almennu umræðurnar, með-
ferð mála og önnur samskipti er
allt þrennt jafnþýðingarmiklir
þættir þinghaldsins. Það verður
aðveramathverseinstaks hvað
hann telur mikilvægast.
Það er einsdæmi að fremstu
stjórnmálamenn fimm þjóð-
landa, smærri þjóða og þjóðar-
brota skuli geta óþvingað borið
saman bækur sinar án umtals-
verðra tungumálaörðugleika.
Sá tungumálavandi sem oft má
finna i öðru alþjóðasamstarfi
þekkist vart meðal Norður-
landaþjóða. Þessi staðreynd
veldur þvi, að samskipti utan
reglulejra funda verða mikil-
vægur og nauðsynlegur þáttur
þinghaldsins.
Viljimenn draga upp mynd af
frosnum frammámönnum i
norrænu samstarfi er sist að
finna þá meðal þingmanna á
Norðurlandaráðsþingi.
Lokaorð
Skoðanir almennings á
norrænu samstarfi endurspegla
stefnu hverrar þjóðar um sig.
Ef hin almennu viðhorf til
norrænnar samvinnu eru já-
kvæð, koma þau fram i vali og
athafnasemi þjóöfuiltrúa þeirra
sem kjörnir eru til setu á þing-
um Norðurlandaráðs.
Norræn samvinna er að hluta
þjóðfélagsstörf, sem kostuð er
af opinberu fé. Þvi hærra sem
þegnarnir meta norrænt sam-
starf þvi meira fjármagn fáum
við til þess.
Við skyldum þó hafa i huga að
samvinnan byggir ekki einvörð-
ungu á opinberum samstarfsað-
ilum eða starfsemi sem rikis-
valdið eitt annast og ræður.
1 umræðum um norræna sam-
vinnu er á stundum á það bent
að ekki hafi alltaí tekist að
koma á þvi samstaríi, sem
stefnt var að.
Minnt er á Nordek (Efna-
hagsbandalag Norðurlanda),
Volvo-fyrirtækið og Norðmenn,
já og nú þessa stundina nefna
menn Nordsat (Norræna sjón-
og hljóðvarpshnöttinn). Opin-
berum samstarfsaðilum er eng-
in launung á þessu, en lögö er á-
hersla á það, að tekist hefur t.d.
að ná svipuðum árangri og
ætlað var með stofnun Efna-
hagsbandalags Norðurlanda, i
nokkrum áföngum.
Vist mundi það draga úr von
manna og trú á norræna sam-
vinnu, ef stórmál eins og sam-
starfið um Nordsat næði ekki
fram að ganga. Mjög er mikil-
vægt að skapa jákvæð viðhori
meðal almennings með þvi að>
efla þá starfsemi sem til hans
höfðar. Ekkert er meira virði en
bein persónuleg tengsl i þessum
efnum sem öðrum. Væri ekki
ráð að efla þátt Norrænu félag-
anna i norrænni samvinnu?
Á 25 ára afmæli Norðurlanda-
ráðs var Norrænu félögunum
falið það verkefni að kynna
starfsemi þess og stofnana þess.
meðal allra samstarfsþjóðanna
Talið er að þessi kynning hafí
tekist vel i hvivetna. Okkur er
nauðsyn á þvi að kynna hin
merku störf Norðurlandaráðs;
og stofnana þess betur öllum al-
menningi.
Ég tel vist að þá muni áhugi
vaxa á Norðurlöndum öllum á
þvi einstæða starfi sem unnii)
er. Ennfremur mundi þá geta
skapast aukin tækifæri alls al-
mennings til þess að hafa áhrif á
störf fyrrgreindra aðila
norrænni samvinnu til aukinna
heilla.
lljálmar Ólafsson.
Saltkjöt
og
baunir
Lítið við í verslunum okkar
Stórmarkaðurinn Skemmuvegi 4a
KRON Fellagörðum
KRON Snorrabraut
KRON Stakkahlið
KRON Dunhaga
KRON Tunguvegi
KRON Langholtsvegi
KRON Álfhólsvegi
KRON Hlíðarvegi
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
allt undir einu þaki
þú verslar í „
húsgagnadeild
og/eða
og/eða
og/eða
þúfærd allt á einn og santa
kaupsamninginn/skuldabréff
og þú borgar allt niður i 20% SEM ÚTBORGUN,
og eftirstöðvarnar færðu lánaðar allt að 9 MÁNUÐUM.
Nú er að hrökkva eða stökkva, óvist er hvað þetta tilboð stendur lengi lokkur getur snúist hugur
hvenær sem er). Þegar þú hefur reitt af hendi útborgunina og ritað nafn þitt undir
KAUPSAMNINGINN, kemur þú auðvitað við i .MATVÖRUMARKAÐNUM
og' birgir þig upp af ódýrum og góðum vörum.
Opið til kl. 22 á föstudögum og til hádegis á laugardögum I Matvörumarkaðnum og Rafdeild.
JIS
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
HURDA-
HLÍFAR
EIR - MESSING - STÁL
Hringiö og viö sendum pöntunarseðil með teikningum
fyrir möltöku.
BIIKKVER
BUKKVER
SELFOSSI
Skeljabrekka 4 - 200 kópavogur - Sími: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040.