Tíminn - 01.03.1981, Blaðsíða 28

Tíminn - 01.03.1981, Blaðsíða 28
Sími: 3370« A nótju ogTegi er vaka A vegi HÖGGDEYFAR QJvarahlutir abriel <S Ármúla 24 Sími 36510 I ^ ^3<i : . *t ?■ MSIGNODE Sjálfvirkar bindivélar Sjávarafurðadeild Sambandsins Sími 28200 Sunnudagur 1. mars 1981 Langstærsti skeldýrastofninn við landið er með öllu ónytjaður Líklegt að veiða mœtti tugþúsundir tonna af kúskel árlega, ef fjárhags grundvöllur er fyrir slíka útgerð Kúskelin viö lanúið er ekki nvtt siðan hætt var aö afla henn- ar til beitu. Samt myndar hún langstærsta stofn skeldýra, sem til er hér við land, og raunar eini skeldýrastofninn, scm er verulega stór, sagði Ilrafnkeli Eiríksson, fiskifræðingur hjá liafrannsóknarstofnun, er Tlm- inn ræddi við hann. Kúskeliner afarviöa þar sem sjávarbotn hentar henni og raunar allt ofan úr fjöruborði og út á 180 metra dýpi eða meira. Mest virðist þo af henni á fimm til tuttugu og fimm faöma dýpi, og þar er hún lika vænst. Bandarikjamenn hafa lengi veitt tvær tegundir skelja, sem eru skyldar kúskelinni islenzku. En afli hefur dregizt saman hjá þeim, og það hefur orðið til þess, að þeir hafa tekið að veiöa þessa tegund. En fyrir hana fæst ekki jafnhátt verö og hinar tegund- imar tvær, svo að veiðarnar bera sig ekki nema afli sé mik- ill. Við kúskeljatekju eru notuð allt önnur veiöarfæri en við hörpudiskveiðar, og vinnslan er önnur og markaðurinn annar. Veiðarfærin eru vatnsþrýsti- plógur, sem sjó er dælt i til þess að þyrla upp leimum á botnin- um, þar sem skeljarnar eru, áð- ur en þeim er skarað saman. Þetta er dýr búnaður, og auk þess þarf sérhæfð skip til veið- anna, og auk þess myndi ekkert islenzkt skip henta til þeirra eins og þau eru nú úr garði gerð, nema með ærnum tilkostnaði. Þess vegna er ekki hlaupið að þvi að hefja kúskeljatekju. Bandarikjamenn telja sig verða að fá tugi tonna i dags- róðri til þess að bera uppi kostn- aðinn. Vart er efamál, að kú- skelin liggur nógu þétt á miöum hér við land til þess að slikan afla sé hægt að fá, ef búnaði, verkkunnáttu og þekkingu á miðunum er ekki áfátt. Hrafnkell sagði, að þrátt fyrir þau ljon, sem hér væri i vegi, myndu ýmsir leiða hugann að þvi um þessar mundir, hvort til- tök sé að leggja i slikar veiðar, þvi að til mikils getur verið að vinna, ef þær lánast og jafnvel sennilegt að kúskeljastofninn þyldi árlegar veiðar er næmu tugþúsundum tonna. En fyrsta skrefið verður að búa skip svo að þau hæfi til slikra veiða og finna og kanna miðin, auk athugana á vinnslu, verði og markaði. Kúskeljaveiðar. Fiskurinn er eingöngu notaður til beitu. Utfall Markarfljóts nálgast mannvirkin á Bakkafjöru Vatnslögnin og rafstrengur- inn til Vestmannaeyja geta inn- an fárra ára verið i hættu af völdum Markarfljóts, sem leit- ar sifellt vestar og vestar þegar kemur fram á Bakkafjöru. Þetta er álit þeirra, sem kunnugir eru I Austur-Landeyj- um. Þegar Markarfljót var brúað og fyrirhleðslur geröar til varnar landbroti af völdum þess, var tveimur jöröum, Tjörnum og Brúnum, fórnað. Siðan hefur þaö ekki valdiö miklum usla. Neöan brúarinnar fylgir það austurlandinu, þar sem næðir á varnargörðum, allt austur að Seljalandsmúla, þar sem það snarbeygir til vesturs. Útfall Markarfljóts hefur smám saman færzt vestar og vestar, og virðist ekki eiga langt i land, að nálgast mannvirki þau á Bakkafjöru, þar sem vatnslögn Vestmannaeyinga liggur í sjó fram. Það er eðli Markarfljóts að leita úr gömlum farvegi sinum, þar sem hann er á sléttlendi. Orsökin er sú, að það ber sifellt undir sig, og þegar farvegurinn hækkar, hemst fljótið að sjálf- sögðu ekki lengur i honum. Með stórvirkum vinnuvélum, sem nú er kostur á, ætti á hinn bóginn ekki aö vera óviðráðan- legt að halda Markarfljóti i skefjum og marka þvi braut, sem öllum er að meinalausu. Fleiri og fleiri fá sér TIMEX mest seida úrið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.