Fréttablaðið - 25.09.2007, Side 10

Fréttablaðið - 25.09.2007, Side 10
Það skiptir máli að spara á réttum stað Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is *Nafnávöxtun miðast við 31. ágúst 2006 til 31. ágúst 2007, skv. sjodir.is. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is. Bahamas eða Peningamarkaðssjóður SPRON hefur gefið langhæstu ávöxtun allra peningamarkaðssjóða á Íslandi síðustu 12 mánuði eða 15,4%* Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is Tryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630 Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 Útivistar- fatnaður 25–7 0% AFS LÁT TUR H im in n o g h af /S ÍA 25–70% afsláttur af útivistarfatnaði. Nú er lag að gera kjarakaup og dúða sig vel fyrir veturinn. Fjöldi manna hefur verið handtekinn í herferð pakist- önsku lögreglunnar undanfarna daga sem yfirvöld segja til þess að tryggja reglu í aðdraganda for- setakosninga sem fara fram 6. október næstkomandi. Bann var í gær lagt við að fleiri en fimm söfnuðust saman í höfuð- borginni Islamabad. Lögregla lok- aði götum í kringum hæstarétt Pakistans sem hafnaði í gær þremur frambjóðendum sem hugðust keppa við núverandi for- seta, Pervez Musharraf, um emb- ættið. Bandaríska sendiráðið í Pakist- an lýsti miklum áhyggjum yfir herferðinni og hvatti til þess að nokkrum stjórnarandstöðuleið- togum sem handteknir hafa verið síðustu daga yrði sleppt tafar- laust. Þessi gagnrýni þykir óvenjulega hörð en Bandaríkin hafa verið einn helsti stuðnings- aðili Musharrafs sem er lykil- bandamaður þeirra í stríðinu gegn hryðjuverkum. Hæstiréttur Pakistans hefur enn ekki gefið út hvort hann taki fyrir beiðnir sem honum hafa bor- ist um að úrskurða um hvort staða Musharrafs sem forseta og yfir- manns hersins geri hann óhæfan til að sækjast eftir öðru kjörtíma- bili sem forseti. Musharraf hefur boðist til að segja af sér sem yfir- maður hersins vinni hann kosn- ingarnar. Maður á fertugsaldri, sem var fangi á Litla-Hrauni, fannst látinn í klefa sínum á laugardags- morgun. Fangaverðir komu að honum þar sem hann lá í rúmi sínu en dánarorsök er óljós. Ekkert bendir til þess að hann hafi svipt sig lífi, að sögn Þórarins Viðars Hjaltasonar sálfræðings hjá Fangelsismála- stofnun. Maðurinn lét sig nýverið hverfa af áfangaheimili Verndar við Laugateig en var kominn aftur í vist innan fárra daga. Hann átti eftir að afplána innan við sex mánuði af dómi fyrir manndráp af ásettu ráði. Hann var dæmdur árið 1998 í sextán ára fangelsi fyrir að drepa mann í Heiðmörk á hrottalegan hátt ásamt tvíburabróður sínum, en hann fékk tólf ára fangelsi. Hann var að ljúka við afplánun þar sem hann hafði hagað sér vel í fangelsi og sýnt betrunarmerki. Afstaða, félag fanga, sendi í gær frá sér tilkynn- ingu þar sem atburðurinn er harmaður og mannsins sagt sárt saknað, endi hafi hann verið vel liðinn og átt marga félaga innan veggja fangelsins. Þá segir einnig að atburðurinn sé mikið áfall fyrir alla í fangelsinu þar sem stutt sé síðan ungur maður lést innan fangelsins. Að sögn Þórarins Viðars hafði maðurinn sýnt mikil betrunarmerki á þeim tíma sem hann sat í fangelsi og náð góðu sambandi við aðra fanga og fangaverði. Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri sagði atburðinn hörmulegan og að allir, jafnt fangar sem starfsmenn Fangelsismálastofnunar, væru harmi slegnir yfir honum. Hugur allra væri hjá fjölskyldu mannsins sem nú væri fallinn frá. Maður fannst látinn í fangaklefa sínum Maður á fertugsaldri fannst látinn í fangaklefa sínum á Litla-Hrauni á laugar- dagsmorgun. Dánarorsök mannsins er óljós en ekkert bendir til þess að hann hafi tekið sitt eigið líf, að sögn Þórarins Viðars Hjaltasonar sálfræðings.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.