Fréttablaðið - 25.09.2007, Qupperneq 22
25. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR2
Hópur ástríðufullra veiðigarpa
fór í ævintýraleit með veiði-
stangir sínar til Grænlands.
Upplifun þeirra var sterk,
veiðin góð og alla dreymir um
grænlenska endurfundi á ný.
„Oft leitum við Íslendingar langt
yfir skammt. Flestir hafa ferðast
um víða veröld og séð Austurlönd
nær og fjær, Bandaríkin og marg-
ir keyrt um Evrópu þvera og endi-
langa. Hins vegar virðast nágrann-
ar okkar í vestri oft verða útundan
og samgöngur þangað geta verið
erfiðar en staðurinn þótti okkur
spennandi, framandi þrátt fyrir
nálægð,“ segja vinirnir Jón Björn
Skúlason, Kristinn Hjálmars-
son og Sölvi Sturluson sem lentu
verulega harkalega í snarvitlausu
veðri á flugvellinum í Narsarsuaq
10. ágúst síðastliðinn, en flugvell-
inum var lokað í tvo daga eftir að
þeir gengu frá borði.
„Aftakaveður fylgdi okkur
fyrstu tvo dagana. Menn komust
samt til veiða en aflinn var frek-
ar rýr fyrsta daginn vegna veðurs
og erfitt að koma flugunni út í rok-
inu. Og til að komast á veiðistað-
inn þurfti úrræðagóða veiðimenn
til að finna leið yfir jökulá,“ segja
strákarnir sem fengu starfsmann
flugvallarins til að skutla þrettán
íslenskum veiðimönnum yfir Nar-
sarsuaq-ána á stórri hjólaskóflu.
Gaf hvítfyssandi jökuláin svo á
Íslendingana þar sem þeir hengu
utan á stórri vinnuvélinni að nef
þeirra flöttust út og andlitsdrætt-
ir aflöguðust undan rokinu.
„Á þriðja degi rættist loks úr
veðrinu og dagarnir liðu hratt í
flakki milli fjarða og dala þar sem
jökulár og ferskvatnsár skiptust á
um að taka á móti hópnum. Veiði
var mikil í nálega tuttugu stiga
hita og að takast á við nýgengna
þriggja til sjö punda sjóbleikju er
stórkostlegt ævintýri,“ segja þeir
Jón Björn, Kristinn og Sölvi sem
höfðust við á hótelinu í Narsarsu-
aq, í mjög fínni aðstöðu.
„Þar var allt sem þurfti til
að taka á móti veiðiþyrstum Ís-
lendingum. Svo fórum við út að
borða í Bröttuhlíð þar sem borin
var á borð snæhérasúpa, hrein-
dýrakjöt, reykt bleikja og fleira.
Þarna sátum við og kneyfuðum
öl og nutum matar á slóðum Ei-
ríks rauða, með ísjaka við glugg-
ann. Öll upplifun var mjög sterk;
að sigla á milli borgarísjaka á leið
í eyðifirði þar sem ekkert er nema
áin og bráðin í henni,“ segja þess-
ir fræknu veiðimenn sem veiddu
hundruð fiska í mikilli veðurblíðu
þegar leið á ferðina og moskító-
flugur voru í rólegri kantinum.
„Fjöldi fiskanna er ótrúleg-
ur. Ef maður kom flugunni nógu
langt út var magnið af fiskin-
um það mikið að ekki var spurn-
ing hvort fiskurinn kæmi heldur
hvort hann kæmi inn með haus-
inn á undan eða sporðinn; þvílíkar
torfur voru sums staðar. Það mátti
sjá fluguna lenda við bleikjutorfu
og engin vildi taka og því rann
flugan yfir fjöldann og straukst
við fiskinn undan straumnum,“
segja þremenningarnir sem gerðu
að afla sínum á siglingunni milli
fjarða og veitingastaða; flökuðu,
beinhreinsuðu, skáru bleikjuna
í munnbita og renndu niður með
sojasósu og hvítvíni.
„Grænland er merkilegt land
fyrir margar sakir, jöklar og
borgarísjakar hvert sem litið er,
vegasamgöngur afar takmarkað-
ar og lífsstíll talsvert annar en sá
sem við þekkjum hér heima. Allt
er þetta heillandi umhverfi sem
hefur mikið aðdráttarafl og ljóst
að allir sem þarna voru stefna
ótrauðir á að fara aftur,“ segja
Jón Björn, Kristinn og Sölvi, sem
sigldu og gengu á milli veiði-
staða.
„Ferðir á slíkar slóðir eru ekki
fyrir þá sem vilja lúxus eða dek-
urferðir. En vilji menn kynn-
ast nýjum heimi, vinalegu og ró-
legu landi, er ekki annað hægt en
að mæla með ferð til Grænlands.
Allir sem hafa minnsta áhuga á
útivist munu njóta sín í hrikalegu
landslagi án truflunar frá hefð-
bundnu amstri nútímans. Ferðin
til Grænlands opnaði huga okkar
gagnvart ferðalögum sem bjóða
upp á óvænt viðfangsefni og að-
búnað sem er jafn frábær og hann
er fábrotinn.“
thordis@frettabladid.is
Fábrotið og frábært
Hér er undirbúin veisla um borð á siglingu milli fjarða og boðið upp á smátt skorna
bleikju í sojasósu. MYNDIRNAR Á SÍÐUNNI TÓKU SÖLVI STURLUSON OG KRISTINN HJÁLMARSSON
Fyrsta þing Grænlendinga var í Bröttuhlíð, þar sem nú sjá má rústir bæjar Eiríks
rauða Þorvaldssonar, hins mikla landkönnuðar. Sonur Eiríks, Leifur heppni, fann
Ameríku.
Kristinn Hjálmarsson þreyttur en sæll
eftir langa göngu á milli veiðistaða.
Sölvi Sturluson í aðgerð eftir langan og
góðan veiðidag.
Jón Björn Skúlason sem skipulagði
ævintýraferð þrettán veiðimanna til
Grænlands.
Ævintýraferðir
– fyrir þá sem vilja fara ótroðnar slóðir
fréttablaðið ferðalög
Fyrirtækið Fjallamenn ehf/Mount-
aineers of Iceland er langstærst á
sviði jökla- og snjóævintýraferða
á suðvesturhorninu. Árið um
kring er boðið upp á vélsleðaferð-
ir á Langjökul og farið upp á gríð-
arstóra ísbreiðuna á sérútbúnum
risatrukkum.
Vinsælt er að njóta gnægtar-
borðs kræsinga að lokinni sleða-
ferð á jöklinum og nú er hægt að
skála í kampavíni yfir borðum
í glerhúsi meðan stjörnur blika
á næturhimni og brakar í jökul-
sprungum fyrir utan. Sérstak-
ur átta hjóla opinn trukkur gefur
hreyfihömluðum og eldri borgur-
um tækifæri til að komast í jökla-
torfærur líkt og um vélsleða væri
að ræða, og einnig er hægt að fara
í þyrlu sem eltir trukkana á jöklin-
um, ásamt því að skoða hrikaleika
íslenskrar náttúru eins og fuglinn
fljúgandi sér hana.
Snjóleikir eru ómissandi í þess-
um óbyggðum og ómótstæðilegt
að taka hring í ísgolfi eða renna
sér á slöngum í hvítri jöklaveröld-
inni.
Sjá nánar um ævintýraferð-
ir um Ísland á mountaineers.is og
activity.is.
Ísgolf undir stjörnunum
Sérbreyttur Ford Econoliner með 44
tommu dekk og tekur 14 manns í sæti.
MYND/GUNNAR GUÐJÓNSSON
Ísland er land ævintýranna og
Jökulfirðir Vestfjarða sveipað-
ir fágætum töfrum og leyndar-
dómum. Borea Adventures býður
ævintýra- og sælkeralíf í einu far-
þegaskútu landsins.
Hún heitir Áróra, 60 feta skút-
an sem þeir Sigurður Jónsson
skipaarkitekt og Rúnar Óli Karls-
son landfræðingur keyptu af
breskum kappsiglara sem sigldi
á henni fjórum sinnum í kring-
um hnöttinn, en þeir Sigurður og
Rúnar hafa innréttað Áróru upp á
nýtt svo notalega fari um sjófara
þeirra.
„Nú eru dagarnir farnir að stytt-
ast svo Áróra fer í vetrarhvíld, en
frá mars til september bjóðum við
upp á skíðaferðir, kajaksiglingar,
náttúruskoðunarferðir og siglingu
til Grænlands,“ segir Rúnar um
ferðamöguleika Borea Advent-
ures sem býður afbragðs aðbúnað
um borð, og allt innifalið.
„Áróra tekur tíu farþega sem
við siglum með í Jökulfirði í fimm
nótta ferðum. Þá gengur fólk á
fjöll yfir daginn en rennir sér á
skíðum niður í nýjan fjörð þegar
kvöldar, þar sem skútan og nýtt
útsýni bíður þeirra hvern dag.
Sama er upp á teningnum í sjó-
kajakferðum, þegar skútan sigl-
ir á eftir kajökunum milli fjarða.
Við förum einnig í náttúruskoðun-
arferðir með líffræðingi og kíkj-
um á refi, seli og fugla í tveimur
stærstu af fuglabjörgum Evrópu,
Hornbjargi og Hælavíkurbjargi,“
segir Rúnar, en ferðalangar gista
um borð í Áróru og njóta þar úr-
vals kosts.
„Ferðirnar eru fyrir þá sem
hafa áhuga á útivist og náttúru.
Við leggjum mikið upp úr góðum
aðbúnaði og erum alltaf með gítar
um borð. Ef veðrið verður leiðin-
legt er því alltaf hægt að galdra
fram góða rétti, veiða í matinn,
tína krækling eða búa til ýmis
ævintýri á annan hátt.“
Sjá nánar á www.boreaadvent-
ures.com.
Á skútu um Jökulfirði
Sætsúpusigling skútunnar Áróru í
Ísafjarðardjúpi. MYND/RÚNAR ÓLI KARLSSON
silico
l
ER
MAGINN
VANDAMÁL?
Silicol hjálpar!
Fæst í öllum apótekum