Fréttablaðið - 25.09.2007, Qupperneq 24
25. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR4
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að verðlag á Íslandi er með því hæsta sem gerist. Með
auknum flugsamgöngum ferðast fólk meira og því gefast fleiri tækifæri til að versla erlendis. Þá má
oft gera góð kaup og finna sérstaka hluti sem erfitt er að nálgast á gamla góða Fróni. Hér tökum
við fyrir fjórar borgir sem gaman er að heimsækja og gott að versla í.
Verslun og skemmtun í einni ferð
Borgarferðir
– draumaferðir kaupalkans
Þessi umfjöllun er langt frá því að vera tæmandi hvað varðar frábærar
verslunarborgir. Hér að neðan er listi yfir aðrar góðar borgir sem flogið er
beint til frá Íslandi.
Icelandair flýgur til Amsterdam, Baltimore, Barcelona, Bergen, Berlínar,
Boston, Frankfurt, Gautaborgar, Glasgow, Halifax, Helsinki, Kaupmanna-
hafnar, London, Madríd, Manchester, Minneapolis, Mílanó, München, New
York, Orlando, Osló, Parísar, Salzburg, Stokkhólms og Washington DC.
Iceland Express flýgur til Alicante, Barcelona, Berlínar, Billund, Lúxem-
borgar, Friedrichshafen, Frankfurt Hahn, Gautaborgar, Kaupmannahafn-
ar og London.
Plúsferðir bjóða upp á Barcelona, Búdapest, Dublin, Madríd, Ríga og
Róm, auk sólarlandaferða.
Heimsferðir bjóða upp á ýmiss konar sérferðir en borgarferðirnar eru til
Barcelona, Búdapest, Kraká, Ljubljana, Prag, Rómar, Flórens, Edinborgar,
Montréal, Ríga, Stuttgart og Vilníus.
Úrval-Útsýn býður upp á borgarferðir til Barcelona, Búdapest, Boston,
Dublin, Madríd, Parísar, Ríga, Rómar, Stokkhólms og Washington DC.
Ferðaþjónusta bænda býður líka upp á ýmsar ferðir.
Glasgow
Verslunarferðir til Glasgow hafa löngum verið vinsælar á Íslandi enda er
flugið til Glasgow stutt og frek-
ar ódýrt. Þar að auki má finna
þar góða merkjavöru á lágu
verði. Buchanan Galleries á 220
Buchanan Street er verslunarmið-
stöð með meira en áttatíu búðum.
St. Enoch‘s Shopping Center við
St. Enoch Square er frábær versl-
unarmiðstöð undir stóru glerþaki.
Einnig eru ýmsir markaðir bæði
innan- og utandyra. Borgin býður
upp á alls konar skemmtun og er gaman að kíkja í leikhús og á skoska krá
og síðan eru oft ýmsir menningarviðburðir í gangi. Ekki má gleyma því
að þó að margt sé um að vera í borginni þá er landið sjálft mikil náttúru-
paradís og auðvelt er að bregða sér út fyrir borgarmörkin.
Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn er flestum Íslendingum að góðu kunn og er auðvelt
að komast þangað því flug eru tíð. Vinsælt er að fara í aðventuferðir
til Kaupmannahafnar og fá þar
jólastemninguna beint í æð og
taka jafnvel aðeins til hendinni
í jólainnkaupunum. Kaupmanna-
höfn er ein af þægilegustu borg-
um Evrópu og er lítið mál að at-
hafna sig í henni og komast á
milli staða. Ekki spillir fyrir að
auðvelt er að fá ódýrt flug til
Danmerkur og því hægt að nota
peningana í verslun og skemmt-
anir. Strikið þekkja flestir en þar má finna fjölda verslana auk þess sem
margar skemmtilegar verslanir leynast í hliðargötunum. „Pisserenden“
er gamalt verkamannahverfi sem minnir á Latínuhverfið í París og þar
er að finna fjölda veitingahúsa og sérstæðra verslana sem selja tísku-
fatnað og notaða muni. Kronprinsengade er nokkurs konar tískubraut
Kaupmannahafnar og má þar finna skóbúðir og fataverslanir fína fólks-
ins. Í Pilestræde-hverfinu má finna helstu tískumerkin. Á Norðurbrú má
finna flóamarkaði, grænmetisverslanir og kebabstaði í bland við glæsi-
legar tískuverslanir, gallerí, sérvöruverslanir og kaffihús. Helstu versl-
unarmiðstöðvar eru Fisketorvet og Fields og er auðvelt að taka leigubíl
þangað frá miðborginni.
Á gangi um götur Glasgow.
Kaupmannahöfn - Tívolíið í jólabúningi.
Ríga
Í Ríga, höfuðborg Lettlands, finn-
ur þú allt sem hugurinn girnist í
verslunum borgarinnar og ekki
skemmir fyrir að verðlag er lágt.
Verðlag í Prag hefur löngum þótt
lágt á Íslandi en verðlagið í Ríga
er enn lægra og því endast pen-
ingarnir lengi. Skemmtanalífið
er spennandi, veitingastaðir góðir
og gamli bærinn er fallegur með rólegu og þægilegu andrúmslofti. Plús-
ferðir eru með borgarferðir til Ríga og má finna frekari upplýsingar á vef
þeirra, www.plusferdir.is. hrefna@frettabladid.is
Hin heillandi Riga, höfuðborg Lettlands.
Boston
Boston er einstök og lífleg hafnarborg í Massachusetts-
ríki. Borgin er afar mikilvæg í sögu Bandaríkjanna en
þykir þó evrópsk í anda. Í Boston geta allir fundið eitt-
hvað við sitt hæfi hvort sem um er að ræða tónlist,
leiklist, íþróttir, veitingastaði eða verslanir. Um þess-
ar mundir er dollarinn mjög lágur og því hagstætt að
versla í Bandaríkjunum. Á Newbury Street má finna
fjölda verslana og þá allt frá þekktum vörumerkjum
og tískuhúsum yfir í litlar verslanir með sál. Stutt frá
Newbury Street eru Prudential Center og Atrium Mall
við Boylston Street en þar er einnig Colonnade-hót-
elið. Aðrar verslunarmiðstöðvar eru til dæmis Cam-
bridgeside Galleria sem er hinum megin við Charles-
ána þar sem Harvard-háskólasvæðið er og Copley Place
en Marriott-hótelið er þar í nágrenninu. Icelandair er
með beint flug til Boston og skipuleggur einnig borgar-
ferðir þar sem gisting er innifalin.
Hafnarborgin Boston.
fréttablaðið ferðalög