Fréttablaðið - 25.09.2007, Side 42
Langri toppsetu FH-inga er lokið
Helgi Sigurðsson er besti
leikmaður 17. umferðar Lands-
bankadeildar karla að mati Frétta-
blaðsins en hann skoraði eitt mark
og lagði upp annað í 2-0 sigri Vals-
manna á FH í Kaplakrika.
Valsmenn eru því í lykilstöðu í
lokaumferðinni og geta tryggt sér
titilinn í fyrsta sinn í tuttugu ár
með sigri á HK.
„Við vorum staðráðnir í því að
njóta þess að spila þennan leik.
Þetta voru forréttindi fyrir okkur
því flestir vilja vera í þeirri stöðu
að spila úrslitaleik um sigur í
deildinni. Við ætluðum að njóta
hverrar einustu sekúndu í leikn-
um, hafa gaman af þessu og berj-
ast hver fyrir annan. Pressan var
á FH og þeir höfðu einhverju að
tapa en ekki við. Það var miklu
meiri pressa á FH-ingunum og
okkur tókst síðan að setja mikla
pressu á þá í upphafi leiks,“ segir
Helgi um leikinn frábæra gegn
FH.
Hann var mjög sáttur með sinn
leik. „Ég fann það strax í byrjun
leiks að þetta myndi verða góður
leikur hjá bæði mér og liðinu.
Þegar liðið spilar vel þá er auð-
veldara að vera virkur þátttakandi
í leiknum. Ég var mjög ánægður
með bæði frammistöðu liðsins
sem og mína eigin,“ sagði Helgi.
Helgi fagnaði marki sínu á 84.
mínútu af mikilli innlifun.
„Það var mjög mikilvægt að fá
þetta annað mark því annars hefð-
um við getað legið undir svaka-
legri pressu síðustu tíu mínúturn-
ar. Ég vissi að þetta væri komið
þegar ég skoraði þannig að þá
fagnaði ég meira en vanalega,“
sagði Helgi.
Valsliðið hefur unnið báða inn-
byrðisleikina við FH í deildinni
með markatölunni 6-1 og Helgi
hefur skorað í þeim báðum. „Það
er frábært afrek að hafa unnið
FH-inga tvisvar því þeir eru með
frábært lið. Það hafa verið til-
tölulega öruggir sigrar hjá okkur
á móti FH í deildinni en það er
samt bara eins stigs munur á lið-
unum og allt getur gerst ennþá.
Við erum mjög sáttir það sem af
er móti en vitum að það bíður
okkar erfiður leikur,“ segir
Helgi.
Helgi hefur nú eins marks for-
skot á Framarann Jónas Grana
Garðarsson fyrir lokaumferðina.
„Jónas Grani er búinn að standa
sig vel og er búinn að setja pressu
á mig. Ég vissi alveg að þetta mark
gegn FH myndi hjálpa til en það er
einn leikur eftir og báðir geta enn
skorað fleiri mörk. Íslandsmeist-
aratitilinn kemur fyrst og er
langmikilvægastur. Ef gullskór-
inn kemur líka þá er það bara frá-
bært. Ég kom í Val til þess að
verða Íslandsmeistari en ekki til
að verða markakóngur,“ segir
Helgi Sigurðsson sem á silfurskó
frá 1992 og bronsskó frá 1993.
„Við höfum þetta í okkur hönd-
um en vitum jafnframt að það
hefur oft brennt marga að vera í
þessari stöðu og klúðra þessu
síðan í síðustu umferð af því að
menn voru of öryggir með sig. Við
þurfum að hafa virkilega mikið
fyrir þessu ef við ætlum að vera
Íslandsmeistarar enda er ekkert
gaman að þessu nema maður þurfi
að hafa fyrir þessu,“ sagði Helgi
að lokum.
Helgi Sigurðsson átti frábæran leik þegar Valsmenn unnu 2-0 sigur á Íslandsmeisturunum og tóku topp-
sætið af FH-ingum. Helgi skoraði eitt mark og er markahæsti maður deildarinnar fyrir lokaumferðina.
Íslandsmeistarinn í
borðtennis, Guðmundur E.
Stephensen, vann öruggan 3-1
sigur á pólska landsliðsmanninum
Lucjan Blaszczvk þegar sænsku
meistararnir í Eslövs unnu þýska
stórliðið Zugbrucke Grenzau 3-0 í
meistaradeildinni í borðtennis.
Lucjan er í 28. sæti á heimslist-
anum þannig að árangur Guð-
mundar er eftirtektarverður.
Þetta var annar leikur Eslövs í
riðlinum en liðið tapaði 2-3 fyrir
Cajagranada frá Spáni í fyrstu
umferð keppninnar.
Guðmundur
með stórleik
Þegar ljóst varð að Valur
getur tryggt sér Íslandsmeistara-
titilinn á heimavelli í lokaumferð
Landsbankadeildar karla fóru
Valsmenn strax að athuga með að
spila leikinn við HK á nýja
Vodafone-vellinum á Hlíðarenda.
„Við erum að skoða þessi mál
en mér sýnist allt benda til þess
að við klárum mótið á Laugar-
dalsvellinum,“ sagði Ótthar
Edvardsson, framkvæmdastjóri
Knattspyrnudeildar Vals, í gær.
„Það er margþætt ástæða fyrir
því að við getum ekki spilað á
Hlíðarenda. Grasið er ekki alveg
klárt sem og aðstaðan fyrir
áhorfendur. Þá er ekki búið að
klára umhverfið í kringum
völlinn,“ segir Ótthar sem játar
því þó að það sé freistandi að
spila leikinn á Valssvæðinu.
„Það hefði verið virkilega
gaman að spila þennan leik á
Hlíðarenda og ef það er einhver
möguleiki þá reynum við það,“
bætir Ótthar við. Matsmaður mun
kíkja á grasið og endanleg
ákvörðun um hvar leikurinn
verður spilaður verður síðan
tekin í dag.
Klára mótið lík-
lega í Dalnum
Hörður Axel Vilhjálms-
son hefur ákveðið að spila með
Njarðvík í Iceland Express-deild
karla í körfubolta eftir að í ljós
kom að hann fékk ekki samning
hjá ítalska liðinu Benetton Treviso.
Hörður Axel er 19 ára gamall
leikstjórnandi sem er uppalinn
hjá Fjölni í Grafarvogi. Hörður
var með 15,2 stig og 5,7 stoðsend-
ingar að meðaltali með Fjölni á
síðasta tímabili og hefur hækkað
sig í bæði stigum og stoðsending-
um fyrstu þrjú tímabilin sín í
úrvalsdeildinni
Hörður Axel var í A-landsliðinu
sem tryggði sér gull á Smáþjóða-
leikunum í vor og það er því ljóst
að hann verður mikill styrkur
fyrir Njarðvíkurliðið.
Hörður Axel til
Njarðvíkur
Svo gæti farið að Guð-
jón Valur Sigurðsson leiki ekki
með íslenska handboltalandslið-
inu á EM. Guðjón fór út axlarlið í
leik með Gummersbach um helg-
ina og þurfti að gangast undir
aðgerð vegna meiðslanna í morg-
un.
Slík axlarmeiðsli eru erfið við-
ureignar og oftar en ekki eru leik-
menn frá keppni í sex mánuði í
kjölfar slíkra meiðsla. Það er því
ljóst að Guðjón Valur leikur ekk-
ert með Gummersbach fyrir EM
en hann er sjálfur vongóður um að
verða góður í tæka tíð fyrir EM
sem hefst eftir tæpa fjóra mán-
uði.
“Ég má ekkert hreyfa mig næstu
fjórar til sex vikurnar. Ég get
síðan farið að byggja mig upp eftir
tvo mánuði. Kostirnir eru náttúru-
lega þeir að ég verð í fínu líkam-
legu formi þegar kemur að EM og
verð að kasta á fullu enda fór ég
úr axlarlið á vinstri hendi. Þetta er
síðan síðan spurning um hversu
vel öxlin grær og vonandi grær
hún vel svo ég geti tekið þátt,”
sagði Guðjón Valur sem hefur
verið einstaklega heppinn með
meiðsli í gegnum tíðina og aðeins
misst af tveimur leikjum á sjö ára
ferli í Þýskalandi.
“Auðvitað mun eitthvað vanta
upp á leikformið ef ég verð líkam-
lega fær til að spila á EM en maður
vonast til að reynslan muni skila
manni eitthvað enda búinn að leika
á einum níu stórmótum,” sagði
Guðjón Valur ótrúlega jákvæður
þrátt fyrir mótlætið.
Guðjón Valur gæti misst af EM