Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 46

Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 46
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Það er fiskurinn frá Fylgifisk- um. Þótt ég myndi vilja soðna ýsu í hvert mál þá leysir þetta fiskvandann á heimilinu því þarna er fjölbreyttur matur sem hentar fjölskyldunni vel.“ Kirkjuklukkur Hallgrímskirkju og fallbyssuskot er á meðal þess sem hljómar á fyrstu sólóplötu Bobs Justman, Happiness and Woe. „Þetta er hugmynd sem ég fékk fyrir þremur til fjórum árum,“ segir Kristinn Gunnar Blöndal, maðurinn á bak við Just- man, um notkun klukknanna. „Þær eru notaðar í laginu I Am in Love sem er bæði fallegt og hálf- sorglegt. Eitthvert kvöldið hugs- aði ég að það væri skemmtilegt að hafa kirkjuklukkur í laginu eftir að ég heyrði þær spila niðri í bæ.“ Eftir að hafa fengið leyfi frá Hallgrímskirkju fór Kristinn upp í turninn, tengdi „synthesizerinn“ sinn við midi-tæki sem stjórnar klukkunum og lét síðan vaða. „Það er magnað að það sé hægt að spila á klukkurnar svona. Þetta tók svo- lítinn tíma því það var svo mikið af túristum þarna og það þurfti að stoppa alla traffík upp,“ segir hann og viðurkennir að hávaðinn hafi verið mikill. „Þetta var svaka hávaði enda var það planið, en þetta var mjög fallegur hávaði.“ Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem kirkjuklukkurnar eru notað- ar á hljómplötu hérlendis því kór Hallgrímskirkju hefur notast við þær á jólaplötu. Daginn eftir að upptökunum lauk fór Kristinn suður á land og tók upp fallbyssuskot fyrir loka- lagið á plötunni. „Það var góður maður sem er með fallbyssu sem leyfði okkur að taka upp hljóðið í henni. Það var rosalegt,“ segir Kristinn Gunnar, sem vonast til að platan komi út fyrir jólin. Klukkur Hallgrímskirkju á nýrri plötu Lag Jet Black Joe, Rain, nýtur mikilla vinsælda á myndbanda- síðunni Youtube. Að minnsta kosti fjórir erlendir tónlistarmenn sjást á síðunni spreyta sig á lag- inu, þar af tveir frá Filippseyj- um. „Ég hef ekki beint skýringu á þessu, nema að einhvern tímann vorum við með lagið á vinsælda- lista á Filippseyjum. Það var gefið út víða og komst á toppinn á Man- ila,“ segir Gunnar Bjarni Ragn- arsson, sem samdi lagið ásamt söngvaranum Páli Rósinkrans. „Okkur var boðið að fara þangað út á sínum tíma og spila fyrir fólkið en við létum Þýskalandstúr ganga fyrir. Maður sér eftir því í dag því það hefði ábyggilega verið alveg meiri háttar. Ég veit samt ekki af hverju menn eru að spila þetta í dag. Kannski hefur þetta komið í einhverjum sjón- varpsþætti.“ Að sögn Gunnars er markaður- inn stór á Filippseyjum. Samt ætlar hann ekki að fylgja laginu frekar eftir þrátt fyrir að það hafi líkast til aldrei komið út á geisla- diski þar í landi. „Þarna búa sex- tíu milljónir og fjörutíu prósent af þeim eru hrísgrjónabændur,“ segir hann. „Ég held að þetta lag hafi komið út á kassettu á sínum tíma því þetta var fyrir daga geisladiskanna.“ Rain kom út á fyrstu plötu Jet Black Joe árið 1992 og varð strax gríðarvinsælt hér heima. Gunnar Bjarni segist alltaf hafa þótt vænt um lagið en vill þó ekki fullyrða að það sé besta lag sveitarinnar. „Það er melódískt og bandið var líka í blússandi fjöri. Tíðarandinn spilaði líka inn í á þessum tíma og „kombakkið“ hjá okkur sýnir að það var eitthvað í tónlistinni okkar sem fólk vildi heyra aftur.“ Jet Black Joe hætti störfum árið 1996 eftir að hafa gefið út þrjár hljóðversplötur. Sumarið 2002 kom sveitin aftur saman og á síðasta ári kom síðan út fyrsta plata hennar í tólf ár, Full Circle. Naut titillagið mikilla vinsælda hér á landi. Ný plata með Jet Black Joe er væntanleg á næsta ári og því ljóst að sveitin er fjarri því að vera dauð úr öllum æðum. „Við erum að vinna að nýju efni en það er of snemmt að segja hvernig loka- útkoman verður,“ segir Gunnar Bjarni. Hafsteinn Þórólfsson er nú stadd- ur á heimsmeistaramóti samkyn- hneigðra í fótbolta í Buenos Aires í Argentínu, ásamt öðrum liðs- mönnum Strákafélagsins Styrmis. Fréttablaðið náði tali af Hafsteini, þjálfara liðsins, í gær, þegar Styrmir hafði nýlokið sínum fyrsta leik. „Við spiluðum á móti Kanada og unnum tvö-núll, svo þetta byrjar vel,“ sagði Hafsteinn kátur, en liðið á eftir leiki gegn liðum frá Argentínu, London og San Francisco. Hafsteinn sagði mikla stemningu fyrir mótinu í borginni. „Það eru um fimm hundruð þátttakendur í þessu, svo þetta er nokkuð stórt og sérstak- lega á þessum mælikvarða, innan samkynhneigðra íþrótta,“ sagði hann. Styrmir hlaut fjárstyrki frá ýmsum aðilum til að komast á áfangastað, en þar á meðal er bandaríski þingmaðurinn og rep- úblikaninn Michael Huffington. „Hann var í för með Bush eldri þegar hann kom til Íslands. Hann er samkynhneigður, og það voru tveir úr liðinu sem sýndu honum hvernig gay-lífið væri á Íslandi og sögðu honum frá Styrmi. Honum fannst kjörið að styrkja okkur, gegn því að við gæfum honum treyju,“ sagði Hafsteinn og hló við. Mótinu lýkur 29. september, en þá munu nokkrir liðsmenn Styrm- is halda áfram förinni um Suður-Ameríku. „Nokkrir okkar ætla til Perú og Bóliv- íu að skoða fornar rústir, fyrst við erum nú komnir hingað,“ sagði Hafsteinn. Hann bjóst ekki við að liðsmenn myndu spreyta sig á arg- entínskum tangó meðan á dvölinni í Buenos Aires stæði. „Nei, ég held að við höld- um okkur í takka- skónum, við erum betri í því,“ sagði hann og hló við. Taka takkaskóna fram yfir tangóinn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.