Fréttablaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 2
Má vel vera að þarna sé farið að skína í ástæðu alls þessa máls frá byrjun og af hverju Björn Ingi Hrafnsson var til í að slíta meirihlutasamstarf- inu. Kona með tveggja ára barn í bíl sínum lenti utan vegar nálægt Hítará á Snæfellsnesvegi um klukkan eitt í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi virðist sem konan hafi ekið út í lausamöl í vegkant- inum og misst stjórn á bílnum þannig að hann valt hálfa veltu og endaði á hliðinni. Konan og barnið voru í bílbelti og sluppu með minni háttar skrámur. Sömuleiðis mun bíllinn hafa virst lítið skemmdur en hann var engu að síður fluttur á brott. Konan sem var á vesturleið sneri hins vegar við og fékk far með barnið aftur til Reykjavíkur þaðan sem hún kom. Sluppu ómeidd úr bílveltu Frumbyggjar í Ástralíu fagna áætlun Johns Howard forsætisráðherra um að frumbyggjar fái sérstaka viðurkenningu sem fyrstu íbúar landsins í stjórnarskránni. Howard hefur deilt við leiðtoga frumbyggja í ýmsum málum á ellefu ára valdatíma sínum. Gagnrýnendur segja þetta of lítið, of seint og aukinheldur kosningabrellu hjá Howard en búist er við því að hann boði bráðlega til kosninga. Frumbyggjar eru um 450.000 af 21 milljón íbúa Ástralíu. Eru þeir fátækasti og verst setti þjóðfé- lagshópurinn í landinu. Frumbyggjar viðurkenndir Þróunarsamvinnustofnun Íslands mun auka umsvif sín í Kalangala-héraði í Úganda á næstu árum. Frá árinu 2002 hefur stofnunin stutt við fullorðins- fræðslu í héraðinu, en nú verður farið út í allsherjar byggðaþróun. „Við erum að hefja miklu umfangsmeira þróunarstarf. Verkefnið nær til skólabygginga, menntunar, heilsugæslu, ráðlegg- ingar um fiskveiðar, eflingar stjórnsýslu og fleira,“ segir Sighvatur Björgvinsson, forstjóri stofnunarinnar. Hann áætlar að verkefnið kosti rúmar 600 milljónir króna á næstu fimm til sex árum. Eykur umsvif sín í Kalangala George W. Bush Bandaríkjaforseti segir mikil- vægt að efla frjáls viðskipti, enda muni verndarstefna í viðskiptum fækka góðum störfum í Bandaríkjunum. Nýleg skoðanakönnun sýndi minnkandi stuðning almennings við frjáls viðskipti, sérstaklega meðal þeirra sem styðja Repúblikanaflokk forsetans. „Aukinn útflutningur mun stuðla að betri og betur launaðri störfum,“ sagði forsetinn í vikulegu útvarpsávarpi sínu. „Til að hagkerfið eflist þurfum við að efla frjáls viðskipti.“ Styðja þarf frjáls viðskipti „Ótal tækifæri opnast með félagshyggju- stjórn sem eru ekki fyrir hendi í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri Reykjavíkur. Nýr meirihluti Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknarflokks og F-lista tekur við í næstu viku. „Við ætlum að láta málefnin koma fram í verkum okkar á næstu vikum. Heildarstefna verður kynnt í tengslum við kynningu fjárhagsáætlunar í nóvem- ber,“ segir Dagur. „Félagshyggja og varðstaða um almannahagsmuni sameinar þessa flokka. Við viljum starfa fyrir borgarbúa, en ekki einstaka flokka eða flokksbrot, eins og hefur birst okkur á undanförnum dögum.“ Dagur segir forgangsatriði að koma á festu og stöðugleika við stjórnun borgarinnar og fyrirtækja hennar. „Við viljum einhenda okkur í þau verkefni sem snúa að daglegu lífi og þjónustu við fólk, hvort sem það er í leikskólum, á öldrunarstofnunum í skólum eða í þrifum á götum úti.“ Dagur tekur undir staðhæfingu Björns Inga Hrafnssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, að aftur verði mögulegt að koma á gjaldfrjálsum leikskóla í borginni. Félagshyggja sameinar flokkana Undarlegt er að enginn hafi verið fenginn til að meta hlut Orkuveitu Reykjavíkur sem rann inn í Reykjavík Energy Invest (REI) við sameiningu við Geysi Green Energy, segir Jafet Ólafsson viðskiptafræð- ingur. „Enginn sérfræðingur eða matsfyrir- tæki hefur lagt mat á gengið í fyrirtækinu,“ segir Jafet. „Ég veit ekki til þess að þeir hafi spurt neinn banka, verðbréfafyr- irtæki, fjárfestingarbanka eða sérfræðinga um hvort menn treysti sér til að meta þetta.“ Björn Ingi Hrafnsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins og stjórnarmaður í OR og REI, sagði á föstudag að án opinbers verðmats hafi hluturinn selst fyrir sjö til átta milljörðum meira en ella. Enginn beðinn um að meta REI Björgvin, verður Volcano í Eyjum næsta sumar? Einn helsti leiðtogi sjía-múslima í Írak hvatti í gær til sjálfstjórnar héraða í Írak. Með því að skipta landinu upp í mörg ríki eftir trúarbrögðum og kynþætti mætti styrkja það. Ammar al-Hakim er talinn verða næsti leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks sjía í Írak. Á fundi með hundruðum stuðningsmanna vakti hann máls á hugmyndum sínum. „Ég skora á alla syni þjóðarinnar að berjast fyrir sjálfstjórn í héruðum sínum,“ sagði al- Hakim. Hann sagði að stjórnvöld í höfuðborginni hefðu einokun á ákvarðanatöku. Tveir bandarískir þingmenn og forsetaframbjóð- endur, demókratinn Joseph Biden og repúblikaninn Sam Brownback, hafa stungið upp á sams konar hugmyndum um aukna sjálfstjórn ólíkra héraða í Írak. Þingsályktunartillaga þess efnis var samþykkt í öldungadeild Bandaríkjaþings í september, en George W. Bush Bandaríkjaforseti segist ekki munu þrýsta á slíkt kerfi án vilja Íraka. Forsætisráðherra Íraks, Nouri Al-Maliki, er andvígur hugmyndinni og segir þingsályktunina vera brot gegn sjálfræði Íraka. Forseti Íraks, Jalal Talabani, er hins vegar fylgjandi hugmyndinni. Hann er Kúrdi og mikill talsmaður aukinnar sjálfstjórnar héraða. Vilja sjálfstjórn íraskra héraða „Það kemur ekkert á óvart að frétta af framsóknar- mönnum þegar um svona fyrir- tæki er að ræða, þetta er ekki í fyrsta sinn,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að tveir áhrifamenn í Framsókn- arflokknum, Helgi S. Guðmunds- son og Kristinn Hallgrímsson eiga helmingshlut í félaginu VGK- Invest sem í gegn um hlut sinn í Geysi Green Energy (GGE) á nú tveggja prósenta hlut í Reykjavík Energy Invest (REI). Helgi var formaður kosningastjórnar Fram- sóknarflokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Vilhjálmur segist ekkert hafa vitað um eign Helga og Kristins í GGE. „Og ég vil ekki vera að dæma eitt eða neitt í þessu sam- bandi,“ segir hann. Kjartan Magn- ússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks, er harðorðari. „Ef upplýsingar Fréttablaðsins um eignatengsl Helga S. Guð- mundssonar og Kristins Hall- grímssonar við REI eru réttar þá horfir máli öðru vísi við en áður. Ef þeir eiga þarna stórra fjár- hagslegra hagsmuna að gæta þá má vel vera að þarna sé farið að skína í ástæðu alls þessa máls frá byrjun og af hverju Björn Ingi Hrafnsson var til í að slíta meiri- hlutasamstarfinu,“ segir Kjartan. Björn Ingi Hrafnsson segist ekkert hafa vitað um hlut Helga og Kristins í GGE. „Ef ég væri í þessu máli bara að hugsa um hags- muni auðmanna, hvort sem þeir væru í Framsóknarflokknum, Sjálfstæðisflokknum eða öðrum flokkum, þá hefði ég að sjálfsögðu fallist á óskir sjálfstæðismanna um að selja strax hlut Orkuveit- unnar í REI. Þá hefðu þessir svo- kölluðu auðmenn fengið REI strax og fyrir lítið fé,“ segir Björn Ingi. Á fundi 3. október samþykkti stjórn Orkuveitunnar samning sem meðal annars veitir REI for- gang að verkefnum sem Orku- veitan aflar erlendis næstu tut- tugu árin. Einnig hefur REI aðgang að sérfræðingum Orku- veitunnar gegn þóknun. Vilhjálm- ur borgarstjóri segir að ekki hafi verið dregin upp rétt mynd af innihaldi samningsins á stjórnar- fundinum. „Tillagan gekk einfald- lega út á það að við værum að samþykkja það að veita þessu fyr- irtæki aðgang að tækniþjónustu. Samingurinn sem lá til grundvall- ar var ekki ræddur á fundinum og er mun víðtækari en orðalag til- lögunnar gefur til kynna. Hann var ekki kynntur sem einkaréttar- samningur. Tillagan var því vill- andi,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson. Borgarstjóri vissi ekki um framsóknarmenn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist ekkert hafa vitað um eign áhrifa- manna í Framsóknarflokknum í REI. Vilhjálmur segir að veittar hafi verið villandi upplýsingar um 20 ára einkaréttarsamning við REI á stjórnarfundi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.