Fréttablaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 93
Myndlistarmaðurinn Magnús Tóm-
asson býður upp á leiðsögn um sýn-
ingu sína „Drasl“ í Listasafni ASÍ,
Freyjugötu 41, í dag kl. 15. Sýningin
er hluti af Sequences-listahátíðinni.
Magnús Tómasson er fæddur í
Reykjavík 1943. Hann nam mynd-
list við Listaháskólann í Kaup-
mannahöfn og útskrifaðist þaðan
árið 1970.
Þrátt fyrir að hann væri við nám
í Danmörku var hann í góðum
tengslum við það sem var að gerast
í myndlist á Íslandi. Hann tók meðal
annars þátt í stofnun Gallerí SÚM
árið 1968.
Magnús hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum á Íslandi og erlendis.
Hann hefur hlotið ýmis verðlaun og
viðurkenningar fyrir list sína. Verk
eftir hann eru meðal annars í eigu
Listasafns Íslands og Listasafns
Reykjavíkur og flestir Íslendingar
kannast við verk hans, Þotuhreiður,
sem er við Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar.
Það kennir ýmissa grasa á sýn-
ingunni í Listasafni ASÍ, en þar
sýnir Magnús til að mynda skúlpt-
úra og myndþrennur sem hann
nefnir Formrím, auk myndaraðar-
innar Samanburðarlandafræði en
hugmyndin að elstu myndinni í
þeirri röð er frá árinu 1977.
Leiðsögn um „Drasl“
Í kvöld býður Rás 1 hlustendum
sínum upp á beina útsendingu á
óperunni Ariadne auf Naxos eftir
Richard Strauss sem flutt verður í
Íslensku óperunni.
Arndís Björk Ásgeirsdóttir og
Elísabet Indra Ragnarsdóttir eru
umsjónarmenn útsendingarinnar.
Arndís Björk segir þetta í annað
sinn sem Rás 1 standi að beinni
útsendingu frá Íslensku óperunni.
„Við sendum út beint frá Flagara í
framsókn nú í vor og tókst það afar
vel. Við ákváðum því að halda
áfram á sömu braut og senda beint
út frá Ariadne auf Naxos.“
Óperan sjálf er aðalatriði útsend-
ingarinnar, en einnig verður rætt
við góða gesti. „Við verðum að
sjálfsögðu með smá fróðleik og
umræður sem snúast um verkið.
Áður en óperan sjálf hefst munum
við fara yfir söguþráð hennar og í
hléinu fáum við svo til okkar sér-
fræðinga sem ræða við okkur um
tónlistina, tónskáldið, uppsetning-
una og fleira,“ segir Arndís Björk.
Uppsetning Íslensku óperunnar
á verkinu hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda og því er upplagt
fyrir tónlistarunnendur að stilla
útvarpstækin á Rás 1 í kvöld, en
útsendingin hefst kl. 19.50.
Ópera í beinni
Gallerí Fold stendur fyrir uppboði í kvöld í
Súlnasal Hótel Sögu. Boðin verða upp fjöl-
mörg listaverk eftir íslenska listamenn, þar
á meðal Kjarval, Þórarin B. Þorláksson,
Kristján Davíðsson og Ólaf Elíasson.
Jóhann Hansen er einn af listaverkasölum Gallerís
Foldar. Hann segir mikið af eftirsóknarverðum
verkum á uppboðinu að þessu sinni.
„Við erum til að mynda með tvö verk eftir Ólaf
Elíasson, en við höfum ekki fengið verk eftir hann á
uppboð áður að mér vitandi. Annars vegar er um að
ræða grafíkverk sem líkist kannski helst innanhúss-
arkitektúr og hins vegar er um að ræða steinþrykk
sem minnir kannski frekar á skissu eða teikningu.
Þessi verk eru ekki dagsett en eru á að giska um tíu
ára gömul.“
Á þriðjudag fór fram uppboð í Kaupmannahöfn
þar sem málverk eftir Jón Stefánsson seldist á um
þrjár og hálfa milljón króna. Jóhann segir afar
sambærilegt verk eftir sama listamann verða boðið
upp í kvöld. „Það verður fróðlegt að sjá hvort það
selst á sambærilegu verði,“ segir Jóhann.
Af öðrum athyglisverðum verkum sem verða til
sölu nefnir Jóhann þrjú verk eftir Mugg. „Þar er
kannski markverðast olíumálverk, en þau eru
fremur sjaldgæf eftir þennan listamann. Svo er
vatnslitamynd sem er í anda Dimmalimm og sýnir
litla stúlku í berjamó. Þriðja verkið er skissa af
altaristöflu á Bessastöðum. Við höfum áður haft eitt
og eitt verk eftir Mugg á uppboðum en aldrei áður
þrjú í einu.“
Jóhann bætir við að auk ofantalinna verði fjöldinn
allur af öðrum spennandi verkum boðinn upp í kvöld
og því eigi listunnendur ekki að láta uppboðið
framhjá sér fara.
Uppboðið hefst kl. 18.45.
Allt frá upphafi djassins hafa
listamenn tekið vinsæl dægurlög
og spunnið á þau nýja búninga.
Lög nokkurra höfunda hafa náð
slíkri fótfestu meðal djassleikara
að ekki verður framhjá þeim litið
þegar djasssagan er skoðuð. Einn
þessara höfunda er Richard Rod-
gers, sem þekktastur er sem
annar helmingur tvíeykisins Rod-
gers og Hammerstein.
Gunnar Hrafnsson kontra-
bassaleikari, Kjartan Valdemars-
son píanóleikari, Kristjana Stef-
ánsdóttir söngkona og Pétur
Grétarsson trommuleikari hafa
leitað í smiðju Richard Rogers og
munu leika valin lög, af þeim
rúmlega 900 sem hann samdi, á
tónleikum í TÍBRÁ í Salnum í
kvöld kl. 20.
Vakin er athygli á því að fram-
hald verður á þessari fræðandi og
skemmtilegu dagskrá í TÍBRÁ í
marsmánuði, en þá verður tónlist
Cole Porter til umfjöllunar.
Almennt miðaverð á tónleikana
er 2.000 krónur.
Söngbók í Salnum
VELJUM LÍFIÐ
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Engin truflun3Minna af auglýsingum2Ekkert hlé1
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
FRUMSÝND 12 . OKTÓBER SÝND Í REGNBOGANUM
4months
3weeks&
2days
BESTA MYNDIN
GULLPÁLMINN CANNES 2007
4 MÁNUÐIR, 3 VIKUR & 2 DAGAR | 4 LUNI, 3 SAPTAMANI SI 2 ZILE
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig
„Ekki eintóna hrollvekja heldur rómmikill
lofsöngur til dýrðar hugrekki og vináttu,
listarinnar að komast af við ómennskar
aðstæður...vann Gullpálmann á Cannes í vor
og er vel að honum kominn, myndin er enn
ein rós í hnappagat rúmenskrar kvikmyndar-
gerðar sem hefur eflst með ólíkindum
síðustu árin.“
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið