Fréttablaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 96
Icelandair er
samstarfsaðili
West Ham og
býður ferðir á
alla heimaleiki
liðsins í vetur.
Fjölmargir leikir
framundan, s.s.
á móti Everton,
Manchester Utd
og Fulham.
24.–26.
NÓVEMBER
W W W. I C E L A N DA I R . I S
52.800 KR.
Verð á mann
í tvíbýli
+ Nánari upplýsingar:
www.icelandair.is/ithrottaferdir
Eiður Smári Guðjohnsen
fyrirliði var gríðarlega ósáttur.
„Við látum þá líta vel út. Þeir detta
inn í opin svæði því við vorum
greinilega ekki viðbúnir neinu í
dag. Við erum á heimavelli og með
sjálfstraustið í lagi eftir tvo góða
leiki. Byrjun frábærlega í leikn-
um en gefum síðan eftir á ein-
hvern óskiljanlegan hátt. Við
gefum þeim of mikil svæði og sitj-
um of aftarlega eftir að við kom-
umst yfir,“ sagði Eiður svekktur.
Eiður Smári náði loks að bæta
markamet Ríkharðs Jónssonar
eftir sex markalausa leiki í röð en
Eiður hefur nú skorað 19 mörk
fyrir Ísland. „Auðvitað er maður
stoltur að bæta þetta markamet.
Það er skuggi yfir metinu í dag en
ég hef trú á að ég eigi eftir að njóta
þess í framtíðinni. Ég hefði gefið
metið upp á bátinn fyrir þrjú stig í
dag. Velgengni hjá liðinu er mikil-
vægari en þetta markamet mitt.“
Ragnar Sigurðsson varnarmað-
ur var alls ekki sáttur með leik
sinn í gær. „Varnarleikurinn var
slakur hjá okkur og við vorum allt-
of langt frá mönnunum. Ég er
vægast sagt ósáttur með minn leik
og ég tek þetta á mig að hluta til,“
sagði Ragnar.
Skuggi yfir metinu
Lettar niðurlægðu Íslend-
inga á Laugardalsvellinum í gær
er þeir unnu sanngjarnan stórsig-
ur, 2-4. Slakt lettneskt lið, sem
hafði ekki skorað mark á útivelli í
riðlinum, skoraði ein fjögur mörk
í Dalnum í gær og hefði hæglega
getað skorað fleiri. Lettar, sem
meðal annars töpuðu fyrir Liecht-
enstein, hafa því skorað átta mörk
í tveim leikjum gegn Íslandi. Þeir
hafa samtals skorað níu mörk í
riðlinum. Það níunda var sjálfs-
mark andstæðinganna.
Fyrri hálfleikur var vægt til
orða tekið skelfilegur hjá íslenska
liðinu. Lettarnir voru augljóslega
mun ákveðnari strax í byrjun en
íslensku strákarnir fengu frábæra
forgjöf á 4. mínútu þegar Eiður
Smári batt endahnútinn á magn-
aða skyndisókn. .
Lettarnir létu þetta kjaftshögg
ekki buga sig heldur héldu áfram
að sækja. Sóknarleikur þeirra var
mun markvissari, þeir voru þess
utan grimmari í alla bolta. Miðju-
og varnarleikur íslenska liðsins
var í molum, sama hvar á var litið.
Dekkningar í teig voru átakanlega
lélegar, leikmenn voru á hælunum
og hreinlega ekki með í leiknum.
Sú stemning og baráttuandi sem
einkenndi liðið í síðustu leikjum
var hvergi sjáanleg og virðist sem
þeir leikir hafi verið algert stíl-
brot.
Það var fullkomlega sanngjarnt
þegar Klava jafnaði með skalla í
teignum eftir horn á en hann var
glæpsamlega illa dekkaður og átti
í engum vandræðum með að skora.
Aðeins fjórum mínútum síðar kom
Laizans Lettum yfir með marki
beint úr aukaspyrnu. Tíu mínútna
martröð íslenska liðsins var síðan
fullkomnuð þegar Verpakovskis
var fyrstur að átta sig í teignum
og kom Lettum í 1-3.
Þetta voru fyrstu mörk Letta á
útivelli í riðlinum og gestirnir
voru hreinlega að niðurlægja
íslenska liðið en það var ekki heil
brú í leik liðsins í hálfleiknum.
Hálfleiksræðan hjá Eyjólfi skil-
aði litlu því Verpakovskis skoraði
öðru sinni og kom Lettum í 1-4
eftir aðeins 19 sekúndur í síðari
hálfleik. Eiður Smári minnkaði
muninn með laglegu einstaklings-
framtaki á 53. mínútu og kveikti
lítinn vonarneista. Í kjölfarið kom
smá pressa frá íslenska liðinu en
hún stóð ekki lengi yfir.
Síðari hálfleikur var tíðindalítill
og íslenska liðið átti engin svör.
Hugmyndaleysið var algjört og
sóknarleikurinn ómarkviss og til-
viljanakenndur.
Leikur Íslands í heild sinni olli
vonbrigðum. Mikið hafði verið
gert með að byggja ofan á þá
stemningu og liðsheild sem var
einkennandi í liðinu í síðustu tveim
leikjum. Sú frammistaða hefði átt
að gefa mönnum vind í seglin en
liðið féll í sama farið og það hefur
verið í nánast alla undankeppnina.
Breytti engu þótt liðið fengi 1-0
forskot í leiknum. Liðið hefur
verið niðurlægt hvað eftir annað í
riðlinum og er yfirspilað á heima-
velli gegn Lettum og Liechten-
stein. Það er engan veginn ásætt-
anlegt og leikurinn í gær er lítið
annað en enn einn vitnisburðurinn
um að liðið og þjálfarinn séu ekki
á réttri leið.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu beið algjört afhroð gegn Lettlandi á Laugardalsvelli í gær. Lokatölur 2-4.
Leikurinn var afturhvarf til fortíðar og gamlir draugar létu sjá sig á ný. Vörnin var í molum og sú liðsheild
og stemning sem var í síðustu tveim leikjum var víðs fjarri. Niðurstaðan enn ein niðurlægingin.
Létum þá líta út eins og Diego Maradona