Fréttablaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 82
10 sport
MIKLU BETRI EN BECKHAM
W esley Sneijder var af mörgum stimplaður sem arftaki Davids
Beckham þegar hann kom til
Real í sumar og héldu flestir að
sá hollenski myndi eiga erfitt
uppdráttar við að standast slík-
an samanburð. En Sneijder
hefur sneitt allt slíkt tal fram-
hjá sér og einbeitir sér að sínum
leik. „Ég er ekki að reyna að
koma í staðinn fyrir einn eða
neinn, síst af öllu Beckham,“
sagði Sneijder við komuna til
Real. Samanburðurinn varð þó
ekki umflúinn og hafa spænsku
blöðin verið mjög dugleg að
líkja þeim saman. Í stuttu máli
má segja að niðurstaðan sé
einföld: Sneijder er miklu
betri en Beckham.
Dagblaðið Marca bauð
upp á fyrirsögnina „Mara-
donian“ eftir sigur Real
Madrid á Villarreal í
upphafi tímabilsins og
gaf þannig til
kynna hve góður
Sneijder hefði
verið í leiknum.
Það er ekkert
smá hrós. Kannski líkar Sneijder betur
að vera líkt við Argentínumanninn en
David Beckham?
Bernd Schuster, stjóri Real, gerði
grín að öllum samanburðinum við
Beckham og sagði: „Sneijder minnir
mig á annan ljóshærðan miðjumann
sem spilaði áður fyrr með Real
Madrid – hann var ekki slæmur held-
ur.“ Schuster var þar að tala um sjálf-
an sig. Fjölmiðlar á Spáni gera nánast
lítið úr Beckham og segja hann þegar
gleymdan í Madrídarborg; liðið sé
þegar búið fá nýjan „Galactico“.
GRÍÐARLEGA FJÖLHÆFUR
Eins og áður segir hefur Sneijder slegið
í gegn á Spáni og verið að öðrum ólöst-
uðum einn allra besti leikmaður deild-
arinnar hingað til. Hann er knár þótt
hann sé smár, aðeins 1,70 metrar. Hann
er einnig með frábæra yfirsýn yfir völl-
inn og stelur mörgum boltum af and-
stæðingum sínum. Þá eru föst leikatriði
hans vís til að skapa hættu en hann er
nánast jafnfættur. Snöggur, áræðinn,
með góð skot og frábæra tækni sem
gerir hann að stórhættulegum leik-
manni sem var eitt sinn talinn efnileg-
asti leikmaður Evrópu. Í dag er hann á
meðal þeirra bestu.
Wesley Sneijder
er í guðatölu hjá
stuðningsmönn-
um Ajax og
hefur á aðeins
nokkrum vikum
orðið uppáhald
stuðningsmanna
Real Madrid.
SPORT/AFP
„Hann
er besti
leikmaður
sem Real
hefur
keypt
frá því Zidane fór
þangað.“
Juanfran, leikmaður
Real Zaragoza, sem
spilaði með Sneijder
hjá Ajax.
„Hann er
frábær á
báðum
köntun-
um, hann
getur spil-
að sem framliggjandi
miðjumaður og aftar á
vellinum. Hann hefur
frábært hugarfar og er
sannur sigurvegari.“
Frank Rijkaard, stjóri
Barcelona, eftir að
Sneijder fór til Real
Madrid.
„Hann var
stressaður
í sínum
fyrsta leik
en hann
hefur
staðið
sig fullkomlega alveg
síðan þá. Liðið stendur
í þakkarskuld við
hann. Það er auðvelt
fyrir aðra leikmenn að
aðlagast með hann
inni á vellinum.”
Bernd Schuster, stjóri
Real Madrid.
„Hann er
alvöru
leik-
maður,
jafnfættur
og með
frábærar
sendingar. Hann getur
spilað vel í öllum
leikkerfum.”
Martin Jol, landi
Sneijder og núverandi
stjóri Tottenham.
Wesley Sneijder
Hæð: 170 cm
Fæddur: 9. júní 1984
Landsleikir: 38 (7 mörk)
Staða: Miðjumaður
Einstaklingsverðlaun:
2004: Efnilegasti leik-
maður Hollands
2007: Besti leikmaður
Hollands
Titlar: Hollenskur meist-
ari (2004), bikarmeist-
ari (2006 og 2007). Allt
með Ajax.
Fyrri félög: Ajax – 55
mörk í 175 leikjum.
Mottó:
„Á hverjum degi er ég
ákveðinn í að sýna mitt
besta á æfingum til að
sannfæra þjálfarann
um að ég verði að spila
næsta leik.”
Vissir þú?
...Sneijder kemur
úr mikilli fótbolta-
fjölskyldu. Faðir hans
var atvinnumaður,
bróðir hans Jeffrey
spilar einnig og yngsti
bróðirinn, Rodney, er á
góðri leið með að verð
atvinnumaður.
...Sneijder á svipaða
sögu og Marco van
Basten. Báðir eru fæddir
í Utrecht og enduðu svo
hjá Ajax. Van Basten var
einn besti leikmaður
sögunnar og þjálfar
Sneijder í dag í landsliði
Hollands.
...Sneijder er stundum
kallaður Þolinmóði bol-
abíturinn (The patient
pitbull). Það er skírskot-
un í Edgar Davids sem
var oft kallaður Bolabít-
urinn. Viðurnefni landa
hans vísar í það hversu
meira alhliða, og betri,
leikmaður Sneijder er.
Hann spilar í treyju númer 23, tekur framúr-
skarandi aukaspyrnur, sendir auðveldlega
50 metra stoðsendingar og er þegar
orðinn dáður og dýrkaður af aðdáen-
dum Real Madrid. Hann heitir Wesley
Sneijder og hefur slegið í gegn á tíma-
bilinu.
EFTIR HJALTA ÞÓR HREINSSON
UMMÆLI
Sneijder fæddist í bænum Utrecht en fór til Ajax aðeins sjö ára
gamall og var ekki lengi að vekja athygli á sér í hinu margrómaða
unglingakerfi þar. Gamla goðsögnin Danny Blind hreifst af
Sneijder og þrýsti mikið á þáverandi stjóra Ajax, Ronald Koeman,
að gefa honum tækifæri. Það kom loksins árið 2002 og skemmst
er frá því að segja að Sneijder nýtti sér tækifærið vel og leit aldrei
til baka. Hann varð fljótlega fyrirliði
hjá Ajax og er enn í dag í guðatölu í
Amsterdam.
Í unglingakerfi Ajax er leikmönnum
kennt að spila margar stöður og á því
græddi Sneijder. Hann var upphaflega
talinn bestur sem kantmaður en í dag
er hann allt eins líklegur til að spila sem
afturliggjandi miðjumaður eða í hvaða
stöðu sem er framar á vellinum.
Hvorki Sneijder sjálfur né Ajax gátu
hafnað gylliboði Real Madrid.
SPORT/GETTY
ALINN UPP OG
MÓTAÐUR HJÁ AJAX
Wesley Sneijder gegnir í raun nákvæmlega sama hlutverki hjá Real og David Beckham
gerði áður. Hann spilar oftast á hægri kantinum og tekur flestar horn- og aukaspyrnur
liðsins. SPORT/AFP
Októberbölvunina
nefna Spánverjar
það þegar
sláturtíð þjálfara
hefst að hausti. Í
október fær alltaf
einn þjálfari að
fjúka og sá fyrsti
þetta árið var Abel Resino, þjálfari
Levante, sem situr snautlega á botni
deildarinnar með aðeins eitt stig.
Við starfi hans tekur ítalski þjálfarinn
Giovanni De Biasi, þrautreyndur boli
sem hefur náð að halda smáliðum
í Serie A. Levante er hálfgerð litla-
Ítalía því helstu leikmenn liðsins eru
Ítalirnir Damiano Tommasi, Bruno
Cirillo, Marco Storari og Christian
Riganó.
Michael Laudrup fær eitthvað meiri
þolinmæði hjá Getafe þótt stig
Madrídardvergliðsins séu ekki nema
tvö enda Laudrup nýtekinn við
liðinu. Og gæti lifað á fornri frægð
sem leikmaður enda kosinn besti
erlendi leikmaðurinn á Spáni á síðasta
aldarfjórðungi tuttugustu aldar.
Michelino er töluvert dáðari en Bernd
Schuster, forveri hans hjá Getafe
sem flutti sig um set
í höfuðstaðnum
og hefur leitt Real
Madrid til hásætis í
deildinni.
En það
eru ekki
þjálfar-
arnir sem
mesta athygli hafa
vakið á Spáni í haust
heldur argentínsku
nýstirnin
Lionel
Andrés
Messi og
Sergio „el
Kun” Agüero. Þeir eru markahæstir í
deildinni með sex mörk og margt líkt
með þessum smávöxnu framherjum
sem voru lykilmenn þegar Argentína
varð heimsmeistari landsliða undir 20
ára. Báðir skoruðu mark með hendi á
síðustu leiktíð, hönd Guðs auðvitað
eins og Maradona, og sitthvað fleira er
hægt að yfirfæra á meistara Maradona.
Messi er þó bráðgerri og í betra liði þar
sem ljósið skín skærar. Og fyrirsagnirnar
hættar að ganga út á nýi Maradona
þetta og hitt og meira lagt út frá
Messíasartengingum sem hægt er að
mynda úr nafni hans. Messi er ekki
lengur sauðtryggur aðstoðarmaður
hinna stjarnanna og sennilega hefur
enginn í heimsboltanum slegið honum
við í haust. Barcelona fer vel af stað
og stefnir í einvígi við Real Madrid
sem aðrir virðast ekki ætla að blanda
sér í. Telja flestir að eina liðið sem geti
átt séns sé einmitt Atlético Madrid,
nái liðið vopnum sínum eftir miklar
breytingar á leikmannahópnum í
sumar. Aurarnir fyrir Fernando Torres
voru vel nýttir og Jose Antonio Reyes,
Simao Sambrosa og Diego Forlan
hafa allir staðið sig vel. En liðið á
langt í landa, Barca slátraði Atlético á
dögunum og væntingarnar til Agüero
kannski fullmiklar. Nýr Maradona eða
Messi er ekki á hverju strái hverju
sem líður messíasarkomplexum
fyrirsagnasmiðanna.
BÖLVUNIN
OG NÝIR
SPÁMENN
Boltinn í Suður-Evrópu:
Einar Logi Vignisson