Fréttablaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 70
Mannekla hrjáir bakarí
landsins og reyndar nær
það vandamál út fyrir
landsteinana að því er
Ragnheiður Héðinsdóttir
hjá Samtökum iðnaðar-
ins upplýsir.
„Það er skortur á starfsfólki
almennt í bakaríum, bæði
fagmenntuðu fólki og öðru,
það sést vel þegar atvinnu-
auglýsingar eru skoðaðar.
Erfiðast virðist að fá
afgreiðslufólk sem talar
íslensku,“ segir Ragnheiður
Héðinsdóttir sem starfar
hjá Samtökum iðnaðarins og
fylgist vel með málefnum
bakaríanna. Hún segir fáa
bakara útskrifast á hverju
ári hér á landi, því hafi
erlendir bakarar sums
staðar verið ráðnir til starfa.
Því fylgi ýmis vandkvæði
„Það er ekki alltaf auðvelt að
meta þekkingu annars staðar
frá og ráða í þá pappíra sem
menn eru með. Ég þekki
samt dæmi um bakara frá
Póllandi sem gengur alveg
ágætlega þegar þeir eru
komnir inn í rútínuna. En
auðvitað er erfitt í byrjun að
segja mönnum til sem ekki
skilja málið.“
Ragnheiður segir þessa
manneklu í bakaríum ekki
einskorðast við Ísland.
Hún er nýkomin af fundi
bakarasamtaka á Norður-
löndum þar sem vandamálið
var til umræðu. „Það sitja
allir í sömu súpunni hér í
Norður-Evrópu. Á Jótlandi
hafa menn bjargað sér með
fólki frá Þýskalandi sem
tekur langar tarnir og fer
svo heim á milli. Nú eru
Danir byrjaðir að leiðbeina
erlendu starfsfólki áður en
það kemur til landsins, bæði
um ýmis atriði í kerfinu og
undirstöðu í dönsku. Þeir
fara til atvinnumiðlana
erlendis og láta kenna fólkinu
þar. Framkvæmdastjóri
dönsku bakaranna var til
dæmis á förum til Póllands
að skipuleggja slíkt nám.
Þetta er gott til eftirbreytni
því bæði er erfitt fyrir
starfsfólkið sjálft og þá sem
ráða það í vinnu þegar ýmis
grundvallaratriði vantar.“
Ragnheiður telur iðn-
nám ekki hafa verið eins
hátt skrifað og annað fram-
haldsnám undanfarin ár,
hvorki hér né annars staðar
á Norðurlöndunum. Hún
segir þá þróun þó að snúast
við í Svíþjóð. „Svíar segja
mikinn áhuga orðinn á hand-
verki þar í landi og allt í
einu nóg af fólki sem vill
læra bakaraiðn þar. Vonandi
verður þess ekki langt að
bíða að sú bylgja skili sér til
okkar.“
Fáir bakarar út-
skrifaðir á ári
» Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf, Ráðningarþjónusta • Fiskislóð 81 • 107 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Leitar þú að
starfsmanni?
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi.
Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna
réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við
ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Nýr hugbúnaður gerir leit mjög markvissa og tryggir að við finnum hæfasta
einstaklinginn til starfsins.
Enginn auglýsingakostnaður
Við sjáum um að auglýsa starfið eins og þörf krefur án þess að
til komi aukakostnaður.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir eða er sagt upp störfum innan þriggja mánaða
er ráðning í hans stað án endurgjalds.
Nánari upplýsingar
í síma 561 5900
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Fyrirtæki og félagasamtök
Skólar og fræðsluaðilar
Opinn flokkur (t.d. einstaklingar, einstök verkefni og frumkvöðlastarf)
Tilnefningar skal senda á sérstökum eyðublöðum sem eru á
slóðinni www.starfsmenntarad.is
Frestur til að senda inn tilnefningar er til 2. nóvember nk.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Starfsmenntaráði, Hafnarhúsi
v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík, sími 515 4800, www.starfsmenntarad.is
2007
Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem eru að vinna framúr-
skarandi starf í starfsmenntun. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum: