Fréttablaðið - 14.10.2007, Side 18
2 sport
Mons Ivar Mjelde
Aldur: 39 ára
Þjóðerni: Norskur
Staðreyndir:
Mons Ivar Mjelde tók
við liði Brann í janúar
2003 eftir að Teitur
Þórðarson hafði verið
rekinn frá liðinu. Mons
fékk þjálfarastöðu hjá
Brann árið 2001, þegar
leikmannsferli hans
lauk. Í fyrstu stjórnaði
hann vara- og ungliða-
liðum Brann en fékk
óvænt tækifærið sem
aðalþjálfari liðsins eftir
aðeins rúmlega eins árs
þjálfaraferil.
Sem leikmaður
spilaði Mjelde sem
framherji og skoraði
alls 114 mörk í 250
deildarleikjum í
norsku og austurrísku
úrvalsdeildinni. Hann
lék 3 landsleiki fyrir
Noreg á ferlinum og
skoraði tvö mörk.
Hann varð markahæsti
leikmaður norsku
úrvalsdeildarinnar
árið 1993 og var valinn
framherji ársins 1996.
Eini stóri titill Mjelde
sem þjálfari var þegar
hann stýrði Brann til
bikarmeistaratitilsins í
Noregi árið 2004.
LEIKSTÍLL BRANN BYGGIST
Á EIGINLEIKUM KRISTJÁNS
Brann spilar mjög framar-
lega miðað við mörg önnur
lið í Noregi og beitir gjarnan
hápressu á andstæðinga
sína. Fyrir vikið er mjög
skemmtilegt að horfa á leiki
Brann, liðið skorar mest
allra í norsku úrvalsdeild-
inni en um leið hefur aðeins
eitt lið fengið á sig færri
mörk á tímabilinu. Einhverjir
kynnu að halda að varnarlínan yrði berskjölduð gagnvart
skyndisóknum andstæðinganna við slíkar aðstæður en
Mons Ivar Mjelde, þjálfari Brann, sagði við Sport að í
tilviki Brann væri hættan á því lágmörkuð eins og hægt
er. Ástæðan er Kristján Örn Sigurðsson.
„Hann er svo rosalega fljótur og svo gríðarlega
öflugur maður gegn manni að við þurfum oftast ekki að
hafa áhyggjur af því að beita hápressu. Ef við missum
boltann og það er sótt hratt á okkur hleypur Kristján
andstæðingana uppi í 9 af hverjum 10 tilvikum. Það eru
margir fljótir framherjar í Noregi en Kristján tekur þá
alla á sprettinum og það endar oftast á því að hann tekur
boltann af þeim. Þetta getur enginn annar miðvörður í
Noregi og þessi eiginleiki gerir Kristján að þeim besta í
þeirri stöðu í Noregi, að mínu mati,“ útskýrir Mjelde.
Kristján Örn hefur blómstrað í stöðu miðvarðar
Brann á tímabilinu í ár eftir að hafa spilað í stöðu hægri
bakvarðar, líkt og hann gerir venjulega með íslenska
landsliðinu, frá því að hann gekk í raðir norska liðsins
frá KR eftir sumarið 2004. Hann er eini leikmaðurinn
sem hefur spilað alla deildarleiki Brann á tímabilinu, 23
talsins, og hefur Kristján skorað í þeim fjögur mörk.
VARNARMAÐUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA
„Við misstum Paul Scharner til Wigan á síðasta ári og
settum þá Kristján í miðvörðinn. Í dag er hann orðinn
einn allra mikilvægasti leikmaður Brann. Allir vita að
Kristján hefur ákveðna veikleika, til dæmis sendingagetu
og tækni, sem gera það að verkum að það hentar honum
ekki eins vel að vera bakvörður. Í miðverðinum skipta
þessir þættir ekki eins miklu máli og hann bætir alla
veikleika upp með því að vera hrikalega góður
varnarmaður. Maður gegn manni er Kristján á
heimsmælikvarða – ég fullyrði það,” segir Mjelde og
bætir við að félagi Kristjáns í vörninni, Ólafur Örn
Bjarnason, bæti hann upp að mörgu leyti. „Í Ólafi erum
við með mann sem er öruggur á bolta og yfirvegaður.
Þeir smellpassa saman.“
Mjelde staðfestir að nokkur stærri lið frá meginlandi
Evrópu hafi spurst fyrir um Kristján upp á síðkastið en
ekkert formlegt tilboð hafi enn borist. Kristján er
samningsbundinn Brann til 2009 og ítrekar Mjelde að
félagið vilji ekki missa hann. „Það þarf virkilega gott
tilboð til að við föllumst á að selja hann,“ segir Mjelde.
Kristján Örn hefur spilað frábærlega í vörn Brann á tímabilinu og
hefur auk þess verið afar skæður í föstum leikatriðum. Kristján Örn
hefur skorað alls 4 mörk í 23 leikjum. SPORT/SCANPIX
„Þeir hafa reynst okkur gríðarlega vel og
það er mikil ánægja með þeirra störf,“
segir Gunnar Svanlaugsson, skólastjóri
Grunnskólans á Stykkishólmi, en hann er
yfirmaður þeirra Justin Shouse og Anders
Kattholm, sem eiga það sameiginlegt að vera
leikmenn með körfuboltaliði Snæfells og
kennarar við grunnskólann.
Bandaríkjamaðurinn Shouse er kennari að
mennt og er að leika sitt annað tímabil með
Snæfellinum. „Shouse kom að forfallakennslu
síðasta vetur og stóð sig frábærlega og því
vildum við endilega fá hann í fasta kennslu í
vetur,“ segir Gunnar, en Shouse kennir ensku
í skólanum. Kattholm er menntaður uppeldis-
fræðingur og kom til landsins fyrir tilstilli
Justin Shouse og Anders Kattholm eru í hópi vinsælustu kennara
skólans, enda sóma þeir sér einkar vel við kennslutöfluna.
ERLENDU LEIKMENNIRNIR
KENNA Í GRUNNSKÓLANUM
Brann í Bergen á norska meistaratitilinn í fótbolta næsta vísan og yrði það
í fyrsta skipti í 44 ár sem liðið hreppir titilinn. Þrír Íslendingar leika með
liðinu, Kristján Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason og Ármann Smári
Björnsson, og spilar sá fyrstnefndi sérlega stórt hlutverk í liðinu. Þjálfarinn
Mons Ivar Mjelde segir Kristján vera besta miðvörðinn í Noregi.
EFTIR VIGNI GUÐJÓNSSON
MJELDE UM
ÓLAF ÖRN
OG ÁRMANN
SMÁRA:
Mjelde ber hinum Íslending-
unum í liði Brann, Ólafi Erni
og Ármanni Smára, einnig
einkar vel söguna. „Íslending-
ar hafa reynst Brann mjög vel
í gegnum árin og við vitum
nokkurn veginn alltaf hverju
við eigum von á. Íslending-
arnir hafa allir fallið mjög vel
í hópinn, læra tungumálið vel
og fljótt og leggja sig alltaf
100% fram á æfingum. Það er
mjög stór þáttur í þessu öllu,“
segir Mjelde.
Óvíst er hvort Ólafur Örn
verði í herbúðum Brann
á næstu leiktíð en félagið
hefur enn ekki boðið honum
nýjan samning. Mjelde segir
öll leikmannamál í biðstöðu
þar til tímabilinu er lokið
en viðurkennir að það verði
söknuður að Ólafi, kjósi hann
að róa á önnur mið. „Hann
hefur staðið sig mjög vel á
tímabilinu þrátt fyrir allt og
það hefur bitnað svolítið
á Ármanni. Við keyptum
Ármann sem varnarmann
þó svo að við vissum að
hann gæti spilað í sókninni.
Og í ár hefur hann hentað
okkur betur í sóknarleiknum.
Hann hefur skorað mikið
þegar hann hefur fengið
tækifæri og skapar mikla ógn
í föstum leikatriðum. En ég
vil sjá Ármann grimmari og
ákveðnari í sínum leik – og ég
er alltaf að segja honum það,“
segir Mjelde og hlær. „Staðan
gæti breyst á næstu leiktíð
ef Ólafur fer. Hver veit nema
Ármann taki hans stöðu við
hlið Kristjáns í vörninni?“
skólans og körfuknattleiksdeildar Snæfells. „Við
áttum í erfiðleikum með að fá dönskukennara
og ég tók því höndum saman við Geof
Kotile um að fá öflugan kennara til starfa og
það myndi ekki skemma fyrir ef hann kynni
körfubolta. Við fundum Kattholm og erum
mjög sáttir með hann.“
Gunnar segir að erlendu leikmennirnir tveir
séu mjög vinsælir innan veggja skólans. „Þeir
eru strax búnir að sanna að það er mögnuð
aðferð að vera með kennara sem talar bara
tungumálið sem verið er að kenna. Fremstu
nemendurnir verða þannig eins konar
aðstoðarmenn og þeir læra íslenskuna mun
fyrr í gegnum nemendurna. Þetta gæti ekki
verið betra.“