Fréttablaðið - 14.10.2007, Síða 81
sport 41
LÍÐARENDA
bókstaflegri merkingu. En um
ann koms til vits og ára fór hann
augar til Valsmanna, sem líklega
ft einhver áhrif á ákvörðun hans
ra á Hlíðarenda þegar hann
æinn á unglingsaldri.
an vel eftir því þegar Valur
ana ´85 og ´87. Þá hékk maður við
útvarpið og hlustaði á beinar lýsingar frá
leikjunum. Allt landsbyggðarfólk hélt
með Val eða Fram og spennan var
sérstaklega óbærileg 1985,“ segir
Sigurbjörn, en það ár háðu erkifjendurnir
eftirminnilega baráttu um Íslands-
meistaratitilinn. Valur hafði betur á
endanum, eftir að hafa verið um tíma 11
stigum á eftir Fram, og fyrirliðinn
Grímur lyfti Íslandsmeistarabikarnum
eftir lokaumferðina. Í kjölfarið lagði
hann skóna á hilluna og Þorgrímur tók
við fyrirliðabandinu. Á þessum tíma
spilaði Guðmundur með liði Baden í Sviss
en hann hætti knattspyrnuiðkun árið
1987.
En hver af ykkur var besti leikmaður-
inn?
„Gummi var langbestur,“ segir
Þorgrímur án þess að blikna. Sigurbjörn
og Grímur kinka kolli. „Geta snýst um
hæfileika og hvað hæfileika varðar hafði
Gummi yfirburði,“ segir Grímur.
MÓTLÆTIÐ ENDURSPEGLAR
Fjórmenningarnir eru vongóðir um að ný
lota, ekki ósvipuð þeirri sem var uppi á
teningnum frá 1976-1987 þegar barátta
um Íslandsmeistatitilinn var árlegur
viðburður, sé í vændum á Hlíðarenda. Ný
gullaldarár, ef svo má að orði komast.
„Það eru allar forsendur til þess. Öll
umgjörð og aðstaða hjá félaginu er fyrsta
flokks og við finnum fyrir þessum
siguranda. Það hefur myndast öflugur
kjarni í leikmannahópnum og við erum
sannfærðir um að við getum haldið
dampi,“ segir Sigurbjörn.
Grímur segir félagið vera komið aftur
á þann stað sem það á að vera. „Valur
hefur gengið í gegnum gríðarlegt mótlæti
síðasta áratuginn og það hefðu líklega
margir bognað við minna. En starfið sem
unnið hefur verið til að koma liðinu á
réttan stall er með ólíkindum. Það býr
ótrúleg seigla í félaginu,“ segir Grímur.
„Besti mælikvarðin á styrk er ekki
velgengnin heldur mótlætið, og hvernig
tekist er á við mótlætið. Ég held að Valur
sé búinn að sýna það og sanna að þótt
hann nálgist 100 ára aldurinn óðfluga
hefur hann aldrei verið öflugri. Það er
björt tíð í vændum,“ segir Grímur.
Fjórmenningunum þykir vænt um gömlu góðu stúkuna við gamla heimavöll Valsmanna á Hlíðarenda. Nú hefur verið sett gras á gamla
malarvöllinn nær höfuðstöðvunum og munu meistaraflokkar félagsins spila heimaleiki sína þar frá og með næsta ári. SPORT/VALLI
hlustir. Þeir þrír fyrstnefndu mynduðu
SPORT/VALLI
eiðarsson er kennari. Allir eiga þeir það þó sameigin-
nni og með fyrirliðabandið á upphandleggnum. Vignir
Guðmundur Þorbjörnsson fékk
einstaka knattspyrnuhæfileika í
vöggugjöf.
Þorgrímur Þráinsson bregður á leik
með bikarinn árið 1987.
Grímur Sæmundsen var einn besti
varnarmaður úrvalsdeildarinnar
um árabil.
TM styður kvennaknattspyrnu