Fréttablaðið - 17.10.2007, Síða 1

Fréttablaðið - 17.10.2007, Síða 1
100 myndir á 2500 krónur í október www.tengi.is • tengi@tengi.is MORA INXX BLÖNDUNARTÆKI Smiðjuvegi 76 • 200 Kópavogur • Sími 414 1000 Baldursnes 6 • 603 Akureyri • Sími 414 1050 Með Strákafélaginu Styrmi til Argentínu skipulag&hönnun MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 Félag í eigu bandarískra og íslenskra aðila hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við íslenskt raforkufyrirtæki sem felur í sér byggingu allt að fimm megavatta tilraunaverksmiðju sem framleiðir metanól úr útblæstri álvera. Með tækninni er hægt að draga úr útblæstri álvera um rúm níutíu prósent. Metanólið er svo hægt að vinna frekar í bensín fyrir óbreytta bíla og önnur öku- tæki. Stefnt er að því að fyrsta verksmiðja fyrirtækis- ins rísi að ári en vonir standa til að hægt verði að nýta tæknina við álver í Helguvík og Bakka. Þá er sömuleiðis gert ráð fyrir að tæknina sé hægt að nota til að draga úr útblæstri ál- og raforkuvera í öðrum löndum. Tilraunir með metanólframleiðsluna hafa gengið vel til þessa en stefnt er að því að framleiða allt að tíu þúsund lítra af metanóli á dag þegar fram- leiðslan verður komin á fullt skrið. Úr því ættu að fást um fimm þúsund lítrar af bensíni. Strákafélagið Styrmir lagði leið sína alla leiðtil Argentínu á dögunum þar sem heimsmeist-aramót homma í knattspyrnu fór fram. Hannes Pálsson er einn leikmannanna og i b Þrátt fyrir skemmtilega keppni í knattspyrnunni segir Hannes að borgin standi upp úr eftir ferðalagið. „Það er merkilegt að fara yfir hálfan hnöttin já að Búenos Aí Tveir menn á þrítugsaldri hafa verið úrskurð- aðir í gæsluvarðhald í viku grun- aðir um að hafa vísvitandi villt á sér heimildir er þeir komu hingað til lands. Auk þess eru mennirnir grunaðir um að hafa brotist inn í bæjarskrifstofurnar í Reykjanes- bæ aðfaranótt laugardags. Óverulegum verðmætum var stolið af bæjarskrifstofunum. „Við höfðum afskipti af mönnun- um vegna gruns um aðild að inn- broti í bæjarskrifstofur Reykja- nesbæjar. Síðan kom í ljós að þeir væru hælisleitendur hér á landi. Í fórum mannanna fundust vega- bréf sem við erum að rannsaka. Þrátt fyrir yfirheyrslur undan- farna daga, hefur ekki tekist að fá staðfest hverrar þjóðar mennirn- ir eru en málið er ennþá á frum- stigi rannsóknar,“ sagði Guð- mundur Baldursson, fulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, við Fréttablaðið í gærkvöld. Vegabréfin sem fundust í fórum mannanna eru tékknesk en ekki hefur verið staðfest enn að menn- irnir séu eigendur þeirra. Gæsluvarðhaldsúrskurður Hér- aðsdóms Reykjaness byggist á grunsemdum um brot á útlend- ingalögum, fyrir að hafa vísvit- andi villt á sér heimildir, en ekki aðild að innbrotinu. Talið er að mennirnir hafi komið hingað til lands fyrir um fjörutíu dögum. Reykjanesbær hefur útvegað mönnunum gist- ingu á gistiheimilinu Fitjum í Njarðvík. „Það hefur ekki tekist að upplýsa það enn hvernig menn- irnir komu hingað til lands og beinist rannsóknin meðal annars að því. Í kjölfarið ættu aðrir óvissuþættir í málinu að skýrast frekar.“ Tveir í haldi fyrir að villa á sér heimildir Tveir menn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum vegna gruns um að villa á sér heimild- ir við komu til landsins. Þjóðerni mannanna óljóst. Gestum boðið til hönnunarveislu Hegningarhúsið við Skólavörðustíg fékk nýverið óvænta gjöf sem Árni Johnsen, þingmaður Sunnlendinga, afhenti. Um er að ræða tíu flatskjái en slíkar tæknigræjur hafa ekki verið á hverju strái þar. „Þetta á eftir að nýtast okkur ótrúlega vel,“ segir Gunnar Valur Jónsson, fangavörður í Hegningarhúsinu. „Hér hafa bara verið tvö til þrjú sjónvarpstæki þannig að þetta á eftir að breyta miklu,“ bætir hann við og segir jafnframt að það skipti miklu máli að minni eldhætta stafi af flatskjám en öðrum gerðum sjónvarpa. Árni Johnsen vildi lítið tjá sig um gjöfina við Fréttablaðið en vonaðist auðvitað til þess að hún kæmi sér vel. Hann vildi heldur ekki gefa upp hverjir hefðu verið honum innan handar. Hann hefði bara frétt af þessum skorti og gengið í málið. „Og þegar margar hendur vinna saman þá er ýmislegt hægt að gera.“ Færði föngum tíu flatskjái Fær veglegan sess í ævisögu forsetans

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.