Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 23
Jepplingurinn Tiguan frá Volkswagen verður fáanlegur hér á landi frá og með janúar á næsta ári. Volkswagen heimsfrumsýndi nýja jepplinginn Tiguan á alþjóð- legu bílasýningunni í Frankfurt. Tiguan þykir í mörgu eins og litli bróðir Touareg að útliti til, í fjöl- hæfni, þægindum og afli. Með undirvagni Tiguan eru sett ný viðmið í þessum flokki þar sem mikið er lagt upp úr aksturs- hæfni og öryggi. Í fyrsta sinn er boðið upp á fimm vélar sem allar eru með forþjöppum og skila miklum afköstum en um leið minni eldsneytiseyðslu og útblæstri mengandi lofttegunda. Ný, hljóðlát TDI-dísilvél með samrásarinnsprautun uppfyllir Euro 5-mengunarstaðalinn, sem þó tekur ekki gildi fyrr en 2009. Tvenns konar útlit á yfirbygg- ingum býðst með VW Tiguan. Fyrir borgaraksturinn er boðin búnaðarlínan Trend&Fun og Sport&Style en þeir bílar eru sérstaklega þægilegir í með- höndlun og minna mest á fólks- bíla í akstri. Hægt er að fá Tiguan með Park Assist-bíla- stæðalögn sem leggur bílnum nánast sjálfvirkt í þröng bíla- stæði. Track&Field er sérhannaður fyrir akstur utan malbiks og reiðubúinn í ævintýralegan akst- ur. Staðalbúnaður er nýhannað- ur utanvegahamur sem virkjar heilan herskara af stoðkerfum sem auka stórlega öryggi í utan- vegaakstri. Nýjasta kynslóð 4MOTION-fjórhjóladrifs er í Tiguan, en með kerfinu kemur annað hvort sex gíra handskipt- ing eða sex þrepa sjálfskipting. Tiguan er afburða hæfur í því að draga eftirvagna og getur dregið allt að 2.500 kíló. Útvarp og leiðsögukerfi með snertiskjá felur í sér 30 gígabæta minni á hörðum diski, leiðsögukerfi fyrir óbyggðaakstur og bakkmynda- vél. VW Tiguan verður fáanlegur hjá Heklu frá og með janúar á næsta ári. Nýr VW Tiguan Hitað upp fyrir bílasýningu í Tókýó. Fertugasta bílasýningin í Tókýó (Tokyo Motor Show) hefst 26. okt- óber. Nokkrir bílaframleiðendur tóku forskot á sæluna nýverið og kynntu nokkra skemmtilega hug- myndabíla í Tókýó til að hita upp fyrir sýninguna. Sumir bílanna minntu á leik- fangabíla en hugmyndirnar virð- ast sprottnar frá iPod, geim- skutlum framtíðar og japönsku manga-teiknimyndunum. Ekki má búast við að sjá þessa bíla á bílasölum í náinni framtíð. Furðuleg farartæki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.