Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 36
Vinsælasti poppsöngvari Make-
dóníu, Tose Proeski, lést í gær í
bílslysi þegar bíll hans rakst á
vörubíl nálægt króatíska bænum
Nova Gradiska. Slysið varð
snemma morguns þegar Proeski
svaf í farþegasætinu.
Proeski var einn vinsælasti
söngvarinn á Balkanskaganum og
átrúnaðargoð í Makedóníu, en
hann keppti fyrir hönd landsins í
Eurovision-söngvakeppninni árið
2004. Hann var einnig þekktur
fyrir hjálparstörf sín, var
velgjörðarsendiherra UNICEF og
hélt nokkra tónleika til styrktar
fötluðum börnum og munaðar-
lausum.
Á þinginu í Makedóníu var í
gær einnar mínútu þögn til
heiðurs Proeski. Ríkisstjórn
landsins sagði í gær að dagurinn í
dag yrði yfirlýstur sorgardagur.
Átrúnaðar-
goð látið
Kanadíska hljómsveitin Arcade
Fire steig óvænt á svið með
„stjóranum“ sjálfum, Bruce
Springsteen, á tónleikum í Ottawa
í Kanada. Sungu þau saman lag
Springsteen, State Trooper, og lög
Arcade, Neon Bible og Keep the
Car Running, við mjög góðar
undirtektir.
Springsteen er á tónleikaferð
til að fylgja eftir sinni nýjustu
plötu sem hefur fengið góða
dóma. Arcade fer aftur á móti í
tónleikaferð um Evrópu síðar í
mánuðinum. Eftir það spilar
sveitin í Ástralíu og á Nýja-
Sjálandi.
Arcade söng
með „Stjóra“
Alþjóðleg ráðstefna verður haldin í
Reykjavík í dag undir yfirskrift-
inni Neytandinn og netbyltingin.
Gerd Leonhard, sem hefur verið í
fararbroddi netbyltingarinnar, flyt-
ur erindi auk þess sem Einar Örn
Benediktsson, Stefán Hjörleifsson,
framkvæmdastjóri tónlist.is, og
blaðamaðurinn Árni Matthíasson
verða á meðal gesta.
„Það er verulegur kraftur í mörg-
um fyrirtækjum sem eru að vinna
með netið en við þurfum að taka
okkur á í að koma þeirri þekkingu
til almennings og til þeirra sem
þurfa á netinu að halda sem dreif-
ingartæki,“ segir Anna Hildur
Hildibrandsdóttir hjá Útón. „Þau
fyrirtæki sem standa þessu næst
eru í afþreyingarmálum. Við höfum
fundið fyrir þessu fyrst í tónlistinni
því viðskiptamódelið í tónlistinni
hrundi fyrst. Það varð í sumar sátt
á milli alþjóðlegu plötufyrirtækj-
anna og óháðu plötufyrirtækjanna
um að vinna saman að því að finna
lausn og það er jákvætt skref í rétta
átt. Það er líka skemmtilegt að
skoða hvernig Radiohead er að
leika sér með þetta með sinni nýj-
ustu plötu. Þeir nota hana sem
markaðsbrellu til að auglýsa gæða-
pakkningu fyrir fjörutíu pund,“
segir Anna Hildur og á þar við við-
hafnarútgáfu plötunnar In Rain-
bows sem er væntanleg í desem-
ber.
Nánari upplýsingar um dagskrá
ráðstefnunnar og þátttakendur má
finna á www.icelandicmusic.is.
Netið í brennidepli
Óskarsstyttan sem leikstjórinn
Orson Welles fékk fyrir mynd sína
Citizen Kane verður boðin upp af
uppboðshaldaranum Sotheby´s á
næstunni. Welles fékk Óskarinn
ásamt Herman Mankiewicz árið
1941 fyrir besta handritið. Talið er
að í kringum 70 milljónir króna
fáist fyrir gripinn.
Citizen Kane hefur löngum
verið talin besta mynd Welles og
jafnframt ein af bestu myndum
allra tíma, þrátt fyrir að hún hafi
aðeins fengið ein Óskarsverðlaun
á sínum tíma. „Myndin skartar
stjörnum í helstu hlutverkum.
Welles var óttalaus í sinni kvik-
myndagerð og réð algjörlega sjálf-
ur yfir myndunum sínum. Allt
þetta hjálpaði honum að búa til
tímamótamynd,“ sagði talsmaður
Sotheby´s.
Óskarsstyttan hefur lent í mikl-
um ógöngum síðan Welles fékk
hana í hendurnar. Styttan var talin
glötuð þar til hún birtist á uppboði
hjá Sotheby´s 1994. Reyndi þá
kvikmyndatökumaður nokkur að
selja hana eftir að hafa fengið
hana í formi launagreiðslu frá
Welles. Yngsta dóttir Welles höfð-
aði þá mál gegn tökumanninum og
fékk styttuna á endanum. Síðan
reyndi hún að selja hana en þá
höfðaði Óskarsakademían mál
gegn henni sem tapaðist. Árið 2003
seldi dóttirin styttuna til Dax-
stofnunarinnar, sem hefur nú sett
hana á uppboð.
Óskarsstytta til sölu
Leikarar sem tengjast næstu Star Trek-
kvikmyndinni eru farnir að tala
fjálglega um tökur á Íslandi í banda-
rískum fjölmiðlum. Sá nýjasti til að
stíga fram er Heroes-hetjan Zachary
Quinto sem fer með hlutverk
óþokkans Sylar í sjónvarpsþáttunum
en mun að öllum líkindum leika sjálfan
Spock í kvikmyndinni.
Quinto greinir frá því í samtali við
vefrit USAToday að tökur á Star Trek-
myndinni eigi að hefjast í næsta mánuði
og að Paramount-kvikmyndaverið sé
þegar búið að byggja risastóra
leikmynd á þremur hæðum. „Og svo
verðum við í tvær vikur á Íslandi,“
segir Zachary í samtali við vefritið.
Nú þykir orðið ljóst að þessi næsta
stórmynd nýjasta gullkálfsins í
Hollywood, J. J. Abrams, verður
unnin hér af fullum krafti. Að öllum
líkindum hefjast tökurnar þó ekki fyrr
en eftir áramót og þá annaðhvort í mars
eða apríl. Nú þegar hefur verið ráðið í
stærstu hlutverkin og er athyglisvert að
stórleikarinn Eric Bana verður að öllum
líkindum illmennið Nemo en Bana lék
meðal annars aðalhlutverkið í stórmynd
Stevens Spielberg, Munchen.
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá
stendur valið á milli Saga Film og
Pegasus um að þjónusta Hollywood-
stjörnurnar en samkvæmt heimildum
blaðsins hefur enn ekki verið ákveðið
hvor aðilanna hreppir hnossið.
Star Trek í tvær vikur á Íslandi
„Ég hef aldrei hugsað um
son minn sem fatlaðan,“
segir leikarinn Colin Farrell
um fjögurra ára gamlan son
sinn í hjartnæmu viðtali við
írska blaðið Independent.
James fæddist með sjald-
gæfa fötlun.
Stórstjarnan Colin Farrell eign-
aðist soninn James með þáver-
andi kærustu sinni, Kim Borden-
ave, í september árið 2003.
Farrell ræddi opinskátt um veik-
indi sonar síns við írska blaðið
Independent á sunnudag, en hann
hefur að miklu leyti haldið honum
frá sviðsljósinu hingað til og
forðast að tala um fötlun hans.
James fæddist með Angelman-
heilkenni sem er sjaldgæft form
heilalömunar. Farrell segir að
hann sé þó „ótrúlega heppinn að
hafa hann í lífi mínu“. Hann segir
að James hafi sýnt ótrúlegt hug-
rekki á fyrstu fjórum árum lífs
síns og að hann sé mjög ham-
ingjusamur drengur, þrátt fyrir
fötlunina, sem hefur haft áhrif á
tal hans og hreyfigetu.
„Í einu skiptin sem ég verð var
við að það er eitthvað öðruvísi
við son minn, að hann sé eitthvað
frábrugðinn því sem er litið á
sem eðlilegt, er þegar ég sé hann
með öðrum fjögurra ára gömlum
börnum,“ sagði Farrell. „Þá hugsa
ég, „ó, já“, og ég man eftir því. En
frá fyrsta degi hefur mér fundist
að hann sé eins og hann eigi að
vera,“ sagði hann.
Leikarinn sagðist stoltur yfir
því sem James hefur áorkað og
komist yfir á ævi sinni. „Hann
tók fyrstu skrefin sín fyrir um
sex vikum síðan, og það var fjög-
urra ára aðdragandi. Öll vinnan
var hans, hann hefur unnið eins
og brjálæðingur í fjögur ár,“
sagði Farrell. „Og þegar hann tók
fyrstu skrefin sín var það tilfinn-
ingaþrungin stund. Það var ekki
þurrt auga í húsinu,“ bætti hann
við.
Ferill írska töffarans Farrells
hefur blómstrað í Hollywood, en
hann deilir forræði með móður
James og reynir að verja eins
miklum tíma með syni sínum og
mögulegt er. Leikarinn kveðst
þar að auki einbeita sér að því að
hjálpa syni sínum að þroskast og
vera eins hamingjusamur og
hægt er. Hann er harður á því að
allir sem eiga við fötlun að stríða
geti lagt sitt af mörkum í samfé-
laginu og lifað hamingjuríku lífi.
„Ég hef aldrei hugsað um son
minn sem einstakling með fötlun.
Þetta snýst um sérstakar þarfir,
hvað jafngildir fötlun og hvað
ekki,“ segir hann.
Britney Spears mætti til lögregl-
unnar í Los Angeles og gaf sig
fram í sambandi við ákæru um að
ökulagabrot sem átti sér stað 6.
ágúst. Britney er talin hafa ekið á
kyrrstæðan bíl auk þess sem hún
var á þeim tíma ekki með gilt
ökuleyfi. Teknar voru myndir af
Britney og fingraför og eyddi
söngkonan 45 mínútum inni á
lögreglustöðinni.
Britney gæti átt yfir höfði sér
sex mánaða fangelsi og yfir
þúsund dollara í sekt eða rúmar
sextíu þúsund íslenskra króna en
talið er að réttarhöldin yfir
söngkonunni hefjist 25. október.
Lögreglumaðurinn Mike Lopez
sagði í samtali við BBC fréttavef-
inn að Britney hefði ekki verið til
neinna vandræða. „Hún gerði bara
sitt og fór,“ sagði Lopez en Britney
hefur nú sótt um rétt ökuleyfi til
að keyra um götur Los Angeles.
Ökuleyfismissirinn og frekar
villt líferni eru taldar vera
meginástæður þess að Britney
missti forræðið yfir sonum sínum
tveimur. Henni var í kjölfarið gert
að sækja foreldranámskeið og
mæta reglulega í bæði lyfja- og
áfengispróf.
Britney hjá
löggunni