Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 43
Í DAG KL. 17:40 LIECHTENSTEIN ÍSLAND RÚSSLAND-ENGLAND KL. 14:50 SVÍÞJÓÐ-N. ÍRLAND KL. 20:15 ÚTSALAN HJÁ SPORTLAND ER HAFIN Í ÁRMÚLA 17 afslát tur af líkam srækt arfatn aði frá Be tter B odies 50% Troðfullar slár af vörum á 500, 1.000 og 2.000 kr. Ekkert lát er á velgengni Norrköping í sænsku 1. deildinni og liðið vann 0-5 útisigur á Örgryte í gær. Norrköping situr því enn sem fastast á toppi deildarinnar með ellefu stiga forskot á næsta lið þegar tveimur umferðum í deildinni er ólokið. Garðar Gunnlaugsson og Stefán Þórðarson skoruðu sitt markið hvor í gær, en Garðar er í harðri samkeppni um gullskóinn á leiktíðinni og er sem stendur í öðru sæti með 15 mörk en Stefán er í ellefta sæti með 10 mörk. Yfirburðir hjá Norrköping Peter Jehle, 25 ára markvörður Liechtenstein, er bjartsýnn fyrir leikinn á móti Íslandi í dag. „Það er allt mögulegt í þessum leik. Við áttum án nokkurs vafa að fá meira en stig út úr fyrri leiknum á Íslandi. Þegar þú nærð í stig á útivelli gegn Íslandi þá átt þú líka að geta það á heimavelli. Við eigum alveg að geta unnið þennan leik en íslenska liðið er engu að síður mjög sterkt og sigurstranglegri aðilinn í leiknum,“ sagði Jehle í viðtali við við Volksblatt, staðarblaðinu í Liechtenstein. Allt hægt Bidu Zaugg, landsliðs- þjálfari Liechtenstein ætlar að taka meiri áhættu og láta lið sitt spila meiri sóknarbolta gegn Íslandi í kvöld en það gerði í 0-3 tapi gegn Svíum á sama stað á laugardaginn en heimamenn hafa trú á sínu liði eftir fína frammi- stöðu á Íslandi í fyrri leiknum. „Við verðum að verða sókn- djarfari gegn Íslendingum, sækja framar og taka meiri áhættu. Það verður samt ekki létt því í íslenska liðinu eru margir góðir leikmenn sem eru á mála hjá sterkum evrópskum félagsliðum,“ sagði Zaugg í viðtali við Volksblatt, staðarblaðinu í Liechtenstein. Tek meiri áhættu í kvöld

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.