Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 34
kl. 18 Nýtt gallerí sem ber nafnið
Himnaríki & helvíti opnar í dag kl.
18. Galleríið er til húsa í bakhúsi á
Laugavegi 29 við hliðina á Dead-
versluninni. Listamennirnir Jón
Sæmundur Auðarson og Hafsteinn
Michael eiga verk á þessari fyrstu
sýningu gallerísins. Opnunin er
hluti af Sequences-myndlistar-
hátíðinni.
Tríó Tómasar R. Einarssonar ásamt
Ragnheiði Gröndal leikur á
háskólatónleikum í Norræna hús-
inu í dag kl. 12.30.
Á tónleikunum verða flutt lög
eftir Tómas, en um frumflutning er
að ræða í flestum tilvikum. Tríóið
skipa auk Tómasar þeir Ómar Guð-
jónsson, gítar, og Matthías M. D.
Hemstock, slagverk.
Tómas R. Einarsson, kontra-
bassaleikari og tónskáld, hefur
verið einn afkastamesti lagasmiður
í íslenskri djasstónlist síðustu tvo
áratugi.
Á síðasta ári spilaði hljómsveit
Tómasar bæði á helsta djassklúbbi
Moskvuborgar og í Casa de la
Amistad í Havana. Árið 2006 gaf
hann út geisladiskinn Romm Tomm
Tomm og í haust er væntanlegur
geisladiskur þar sem fjölþjóðlegur
hópur raftónlistarmanna endur-
hljóðblandar latíntónlist hans.
Frumflutningur í
Norræna húsinu
Þáttaröð um myndlist
Íslenskum tónlistarunnend-
um býðst á næstu dögum
að hlýða á tegund tónlistar
sem er jafnan sjaldheyrð
hérlendis. Egypski tón-
listarmaðurinn Hanan
El-Shemouty mun halda
þrenna tónleika hér á landi
og koma fram ásamt ís-
lenskum hljóðfæraleikurum
og kórum.
Steingrímur Guðmundsson slag-
verksleikari er annar tveggja
íslenskra tónlistarmanna sem
koma fram með Hanan á tónleik-
unum hérlendis, en hinn er Hilmar
Örn Agnarsson orgelleikari. Stein-
grímur segir heimsókn Hanan til-
komna þannig að Hilmar sá hana
koma fram á tónleikum í Berlín og
þótti mikið til hennar koma. „Hann
fór því að kanna möguleikana á
því að fá hana hingað til Íslands til
tónleikahalds og það gekk eftir.
Þessir tónleikar eru sannarlega
spennandi fyrir íslenska tónlistar-
unnendur, ekki síst vegna þess að
Hanan leikur á hljóðfæri sem ég
veit ekki til að hafi verið leikið á
hérlendis áður.“
Hljóðfærið sem Steingrímur
vísar til kallast qanun og er eins
konar arabísk harpa eða sítar.
Hanan leikur einnig á arabísk
slagverkshljóðfæri og syngur.
Hún fer í stutta tónleikaferð um
landið og býður þannig sem flest-
um upp á að hlýða á tónlist hennar.
Hún leikur á tónleikum í Fríkirkj-
unni í Reykjavík ásamt Vox Fem-
ine annað kvöld kl. 20. Hún leikur
í Vélasalnum í Vestmannaeyjum á
laugardag kl. 16 og á sunnudag
leikur hún í Skálholti kl. 16 ásamt
Kammerkór Suðurlands. Stein-
grímur og Hilmar koma fram með
henni á öllum tónleikunum.
Á tónleikunum verða meðal ann-
ars flutt íslensk þjóðlög sem sett
verða í nýjan búning. „Uppistaðan
í tónleikadagskránni er þjóðlög,
bæði evrópsk og arabísk. Á þess-
um tónleikum mun íslenskum tón-
leikagestum bjóðast að heyra
gamla íslenska tónlist leikna á
alveg nýjan hátt og því er þetta
tækifæri sem áhugafólk um tón-
list og menningu ætti ekki að láta
framhjá sér fara,“ segir Stein-
grímur.
MIÐASALA Á WWW.OPERA.IS
MIÐASÖLUSÍMI 511 4200
KOLBEINN
ANNA MARGRÉT
ÁSGEIR PÁLL
BERGÞÓR
GUÐRÚN JÓHANNA
ÁGÚST
HRAFNHILDUR
INGVAR
JÓN
ÞORSTEINN HELGI
ÞORVALDUR
BRAGI
DAVÍÐ
HALLVEIG
HLÖÐVER
F
A
B
R
I
K
A
N
AÐEINS EIN SÝNING EFTIR!
SÍÐASTA SÝNING 19. OKTÓBER KL. 20.00
„Fyrir þá sem vilja fylgjast með íslenska
söngvarahópnum er því skyldumæting á
sýninguna.…Flottur söngur.“
Fréttablaðið, Páll Baldvin Baldvinsson
3 stjörnur
„Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, dásamleg…
Arndís Halla, töfrandi…
Hanna Dóra Sturludóttir, stórbrotin…
Kolbeinn Jón Ketilsson, heillandi…
Þvílíkt partý!“
Silja Aðalsteinsdóttir, www.tmm.is