Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 22
Skoda Fabia er orðinn sport- legri, kraftmeiri og hlaðinn aukabúnaði. Skoda Fabia hefur verið framleidd- ur af tékkneska bílaframleiðandan- um Skoda Auto frá árinu 2000. Fyrirrennari Fabia var Skoda Fel- icia. Nokkur vatnaskil urðu í fram- leiðslu Skoda á þessum tíma enda hafði Volkswagen fyrir nokkru eignast Skoda-verksmiðjurnar og Skoda Fabia smíðaður með undir- vagn sem einnig má finna í VW Polo. Vinsældirnar hafa verið tölu- verðar frá upphafi og er ástæðan einföld. Flestir vélarhlutar eru framleiddir af eða í samstarfi við Volkswagen en hins vegar er verð- ið á Fabia talsvert hagstæðara en á öðrum bílum í sama stærðarflokki frá Volkswagen. Þá er Fabia einnig með miklum aukabúnaði. Ný kynslóð Fabia var kynnt í vor á bílasýningunni í Genf. Bíllinn er töluvert breyttur að útliti og er aðeins stærri en fyrirrennarinn. Bíllinn er sportlegur, sérstaklega að innan þar sem mælar, gírstöng og hurðir hafa fengið andlitslyft- ingu. Reynsluekið var Skoda Fabia 1.4 TDI sem skilar 69 hestöflum. Þótt talan sé lág má ekki láta það blekkja. Dísilvélin vinnur alveg ótrúlega vel úr því afli sem gefið er og bíllinn vægast sagt kraftmikill miðað við stærð og togið er einnig mjög gott, 155 Nm. Þó er einn galli á gjöf Njarðar. Dísilvélin er bæði hávær auk þess sem gangurinn verður töluvert grófur í hinni þriggja sílindra vél. Þetta gæti truflað marga sem vilja hafa ró og frið við aksturinn. Ef fólk getur litið fram hjá því má þó sannarlega mæla með dísilgerð Fabia sem er bæði kraftmikil og umhverfis- vænni. Marga kosti má einnig nefna við Fabia, meðal annars allan þann aukabúnað sem bíllinn hefur. Akst- urstölvan sem stjórna má úr stýr- inu er frábær auk þess sem stýrið sjálft er fjölstillanlegt. Hiti er í sætum og iPod-tengi milli sæta. Hólf eru víða, til dæmis undir sætum og tvö lokanleg hólf í mæla- borði. Hægt er að slökkva á loft- púða í fremra farþegasætinu svo hæglega er hægt að vera þar með barnabílstól. Þótt annað mætti halda er ótrú- lega rúmt um farþega í aftursæti sem gerir akstur á lengri leiðum þægilegri fyrir alla fjölskylduna. Annað sem er harla gott á ferðalög- um og sjaldgæft í svona litlum bíl er skriðstillir sem er til mikilla þæginda. Óvæntur kraftur í Fabiu Ökunám í fjarnámi !!!! Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin í tölvunni heima þegar þér hentar. Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið. Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl. Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is P R E N T S N IÐ HEILDARLAUSNIR Í DRIFSKÖFTUM Landsins mesta úrval af hjöruliðum og drifskaftsvörum Jafnvægisstillingar Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni! P IP A R • S ÍA • 7 19 8 3 Jeppadekk fyrir veturinn ALORKA • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080 Eigum einnig úrval af öðrum stærðum af heilsársdekkjum fyrir flestar gerðir jeppa og jepplinga á hagstæðu verði. Heilsárs- og vetrardekk fyrir jeppa og jepplinga Við míkróskerum og neglum dekkin fyrir þig Dæmi um gott verð: 31x12.50R15 Maxxis, kr. 12.900 33x12.50R15 Maxxis, kr. 15.900 275/70R16 GT-Radial, kr. 14.900 265/70R17 GT-Radial, kr. 16.900 Meira úr val – bet ra verð! Líttu vel út! Snjóskafa fylgir hverjum dekkjagangi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.