Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 4

Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 4
 Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið úrskurðað- ur í gæsluvarðhald vegna stóra smyglmálsins sem kom upp á Fáskrúðsfirði 21. september síðastliðinn. Þetta er sjötti maður- inn sem situr nú í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna skútumálsins svokallaða. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti að sjötti maðurinn sæti nú í gæslu- varðhaldi. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig frekar um málið við Frétta- blaðið að öðru leyti en því að rann- sókn þess miðaði vel, en með hana fer fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var sjötti maðurinn hand- tekinn í fyrradag. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarð- hald til þriðjudagsins 23. október. Alls voru um 60 kíló af fíkniefn- um gerð upptæk í aðgerðum lög- reglunnar þegar hún kom upp um þessa umfangsmiklu smygltil- raun, um 15 kíló af e-töflum og um 45 kíló af amfetamíni. Þar að auki fundust tvö kíló af amfetam- íni í Færeyjum. Gæsluvarðhald yfir fimmmenn- ingunum sem setið hafa inni hér vegna málsins að undanförnu rennur út á morgun. Sjötti skútumaðurinn í gæslu Eignarhald á auðlindum landsins var til umræðu á fundi Samtaka iðnaðarins um íslenskan raforkumarkað í gær og lagði Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar og einn frummæl- enda, áherslu á mikilvægi þess að orkuauðlindirnar gætu gengið kaupum og sölum og þyrftu ekki endilega að vera í eigu hins opin- bera. Ekkert banni útlendingum að kaupa og eiga auðlindir eða fyr- irtæki í orkugeiranum. „Talað er um það eins og ein- hverja nauðsyn í dag að auðlind- irnar þurfi að vera í þjóðareign en þetta hugtak hefur enga lagalega merkingu. Ég vara við því að menn takmarki séreignarréttinn eða framsal hans,“ sagði Friðrik og kvaðst ekki skilja hvers vegna orkulindirnar ættu að vera í ríkis- eigu eða þjóðareign. Hvers vegna eigendur, hvort sem það eru ein- staklingar, ríki eða sveitarfélög, mættu ekki selja eða leigja eign sína. „Af hverju á að banna með lögum að eigendur framselji þess- ar eignir?“ sagði hann og varaði við því að einhvers konar þjóðnýt- ingaráform yrðu reynd. „Það sem skiptir máli er fullveldisrétturinn, rétturinn til að setja reglur og lög,“ sagði hann og benti á að nokk- urs konar „útilegumannaótta“ gætti í umræðunni, svipað og í umræðunni um EES á sínum tíma, um að „erlendir fjárfestar komi og gleypi okkur með húð og hári“. Katrín Júlíusdóttir, formaður iðnaðarnefndar, lét í ljós þá skoð- un sína að eignarrétturinn ætti að vera hjá hinu opinbera og almenn- ingi og tryggja bæri að svo yrði áfram. „Ég sé ekki hvaða hag almenningur hefur af því að eign- arrétturinn gangi kaupum og sölum,“ segir hún. Bryndís Skúladóttir, verkfræð- ingur hjá Samtökum iðnaðarins, rifjaði upp að aðeins einn aðili stundaði orkuheildsölu. Ekki væri nægileg samkeppni á markaðnum, viðbótarorka væri dýr og gjald- skrá Landsvirkjunar réði mark- aðsverðinu. Vonir stæðu til að þetta breyttist með tilkomu nor- ræna uppboðsmarkaðsins Nord- pool. „Þetta er markaður sem virkar svipað og hlutabréfamarkaður. Framleiðendur geta lagt inn umframorku og fá kauptilboð. Þarna getur skapast staður til að eiga viðskipti með orku og mark- aðsverð getur myndast,“ sagði Bryndís. Líklegt er að markaður- inn hefjist hér á landi síðari hluta næsta árs. Auðlindirnar gangi kaupum og sölum Auðlindir þjóðarinnar þurfa ekki að vera í eigu ríkis eða sveitarfélaga, að mati forstjóra Landsvirkjunar. Formaður iðnaðarnefndar telur að sá eignarréttur sem þegar sé hjá hinu opinbera eigi að vera það áfram. Það sé hagur almennings. Þriðji stærsti flokk- ur í Bretlandi, flokkur frjáls- lyndra demókrata, mun í desem- ber skipa þriðja leiðtoga sinn á tveimur árum að því er tilkynnt var í gær. Menzies Campell, sem er 66 ára, tilkynnti afsögn sína á mánu- dag. Hann hefur verið sagður of gamall til að keppa við leiðtoga íhaldsmanna, David Cameron, sem er 41 árs. Cameron tók við af Charles Kennedy sem sagði af sér 2006 vegna drykkjuvanda. Líklegir eftirmenn eru Chris Huhne, fyrrverandi Evrópuþing- maður, og Nick Clegg, talsmaður flokksins. Nýr leiðtogi Í tilefni af alþjóðlega matvæladeginum, sem var í gær, hvatti sérfræðingur hjá Samein- uðu þjóðunum til þess að fram- leiðsla lífræns eldsneytis yrði bönnuð í fimm ár, þar sem hún yki á hungur í heiminum með samkeppni um ræktarland. Jean Ziegler, sem er sérfræð- ingur SÞ í rétti fólks til matar, svaraði áskorun George W. Bush Bandaríkjaforseta um að framleiðsla lífræns eldsneytis skyldi aukin með því að segja að landbúnaðarafurðir væri nær að nota til að draga úr hungri í heiminum. Etanólframleiðsla í Bandaríkj- unum fer fyrst og fremst fram með maísrækt. Vill banna elds- neytisræktun Breski heimskauta- farinn Pen Hadow skýrði í gær frá því að hann hygðist gera nákvæmustu mælingarnar á þykkt norðurheimskautsíssins til þessa í 1.900 kílómetra göngu á norðurpólinn. Hadow áætlar að það muni taka sig og aðstoðarmenn sína tvo 100 til 120 daga að komast á pól- inn eftir að þeir leggja upp frá Point Barrow í Kanada í febrúar næstkomandi. Þeir munu draga með sér sleða með fullkomnum mælitækjum til að skrá þykkt ísþekjunnar sem hefur stöðugt verið að hopa á síðustu árum. Mæla ísþykkt í göngu á pólinn flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.