Fréttablaðið - 17.10.2007, Side 30
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Ottó H. Karlsson
Eskivöllum 9b, Hafnarfirði,
lést af slysförum fimmtudaginn 11. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Klara Jóhanna Ottósdóttir
Ólafur Þór Ottósson Helga Björg Sigurðardóttir
Aðalheiður Björk Ottósdóttir
Ása Hrund Ottósdóttir
Katrín Alexandra, Ottó Gauti og Birgitta Rún.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sveinbjörn Eiríksson
Kirkjuvegi 10, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 13. október
síðastliðinn. Útförin auglýst síðar.
Berglind Ósk Sigurðardóttir
Björn Axelsson
tengdabörn og barnabörn.
Svanborg G. Kristvinsdóttir
lést 2. október. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Jón Erlingsson
Helga G. Erlingsdóttir
Kristvin Erlingsson
og fjölskyldur.
Vor kære mor, svigermor og farmor
Gerda Anna Friis Frederiksen
født Olsen
* 25. december 1918 11. oktober 2007
Poul, John, Ilsa, Sara og Sune
Bisættelsen finder sted fra Bagsværd Kirke, København
onsdag den 17. oktober kl. 11.00
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
Borgþór Gústavsson
Hringbraut 121, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi sunnu-
daginn 7. október. Hann verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju kl. 15.00 fimmtudaginn 18. október.
Ólafía M. Gústavsdóttir Sigurður Eyjólfsson
Páll G. Gústavsson Iðunn Árnadóttir
Kristinn J. B. Gústavsson Ragna H. Jóhannesdóttir
Hallgrímur P. Gústavsson
Gústav R. Gústavsson Rannveig Pálsdóttir
Ágúst E. Gústavsson Sigríður Á. Guðmundsdóttir
og frændsyskini.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
Kristján Smári Arngrímsson
lést á gjörgæsludeild Landspítalans 3. október sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Anna Gréta Arngrímsdóttir Snorri L. Kristinsson
Kristín Linfeldt Diecker Jim Diecker
Guðrún Arngrímsdóttir Þórður Kárason
Baldvin Arngrímsson
Margrét Arngrímsdóttir Gunnþór Hákonarson
Jóhannes Arngrímsson Anna Radwanska
Stefán Árni Arngrímsson Jóhanna Steingrímsdóttir
Arngrímur Arngrímsson Arnfríður Th. Pétursdóttir
„Gott dagblað ætti að vera þjóð
í samræðum við sjálfa sig.“
Söngleikurinn Hárið frumsýndur
„Við erum búnir að vera til dálítið lengi
sem bræður. Sjálfur sönghópurinn
varð hins vegar bara til óvart þegar
við sungum við útför föður okkar fyrir
tuttugu árum,“ segir Pétur Péturson,
einn bræðra úr skagfirska sönghópn-
um Álftagerðisbræður.
Söngurinn hefur alltaf fylgt þeim
bræðrum og að sögn Péturs er söng-
elskt fólk bæði í föður- og móðurætt
þeirra bræðra.
„Við vorum hvattir til að gera meira
af þessu saman og þá fórum við að
læra nokkur lög og síðan gefa út diska.
Síðan hefur þetta bara gengið svona
ljómandi vel,“ segir Pétur sem segir
skagfirsku sönghefðina vera grunninn
að tónelsku þeirra bræðra.
Pétur segir hins vegar ekki standa
til að leggja óperuheiminn að fótum
þeirra bræðra.
„Það hefur ekki hvarflað að okkur
að fara til útlanda. Óskar er að vísu
sá okkar sem hefur stundað sönginn
meira en við hinir. Annars eru Sig-
fús og Gísli bændur frammi í Álfta-
gerði, ég er smiður hér á Króknum
og hér kunnum við best við okkur,“
segir Pétur og bætir við: „Það er ekk-
ert verra að syngja fyrir Skagfirðinga
frammi í Árgarði heldur en óperuunn-
endur úti í heimi, þó ég sé ekki að gera
lítið úr því. Það eru allir áheyrendur
jafn mikilvægir svo framarlega þeir
skemmti sér,“ segir Pétur.
Þeir bræður hafa verið öflugir með-
limir í Karlakórnum Heimi í áratugi
samhliða starfi sönghópsins og Pétur
segir þá bræður syngja nánast hvað
sem er.
„Við syngjum ekkert endilega þessi
hefðbundnu kvartett- og karlakóralög
bara það sem okkur finnst skemmti-
legt,“ segir Pétur sem segir þá bræð-
ur syngja við margvísleg tilefni. „Við
syngjum á hinum ýmsu skemmtun-
um, en í seinni tíð mest við jarðarfar-
ir og aðrar athafnir,“ segir Pétur sem
er ásamt bræðrum sínum í fullu starfi
samhliða söngnum.
„Við förum að komast á þann aldur
að við förum að hætta að sjá að það
sé nokkuð að,“ segir Pétur hlæjandi en
býst þó við að þeir bræður munu halda
áfram að syngja.
Að sögn Péturs hefur hópurinn gefið
út þrjá geisladiska og sá fjórði á leið-
inni. „Með fjórða geisladiskinum fylg-
ir mynddiskur. Þetta verður efni þar
sem stiklað er á stóru frá því við byrj-
uðum. Mest á léttu nótunum, enda
höfum við aldrei tekið okkur sérstak-
lega alvarlega,“ segir Pétur brosandi.
Afmælistónleikar þeirra bræðra
fara fram í félagsheimilinu Árgarði í
Skagafirði í kvöld.
„Auk tónleikanna verða jafnframt
hagyrðingar sem ætla að gefa svo-
lítil sýnishorn. Síðan hefur verið
með okkur frá upphafi Stefán Gísla-
son söngstjóri sem mun leika undir,“
segir Pétur en segir jafnframt Gunnar
Þórðarson tónlistarmann koma fram í
kvöld.
„Gunnar hefur hjálpað okkur með
að koma tónlistinni á disk og spil-
að með okkur,“ segir Pétur sem segir
nýja diskinn væntanlegan um miðjan
nóvember og einnig standi til tónleika-
ferð. „Okkur langar mikið að fara í tón-
leikaferð, enda alveg svakalega gaman
að fara og syngja fyrir fólk víðs vegar
um land. Ætli við förum ekki hálfa leið
um landið og snúum síðan við,“ segir
Pétur.
Tónleikarnir í Árgarði hefjast klukk-
an 21.00