Fréttablaðið - 26.11.2007, Side 2
2 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Tæplega áttræður
karlmaður er í öndunarvél eftir að
hafa misst stjórn á bifreið sinni
skammt austan við Vík í Mýrdal á
ellefta tímanum í gærmorgun,
farið út af þjóðveginum og ekið
ofan í lón. Maðurinn var á leið til
Reykjavíkur.
Björgunarsveitin í Vík kom á
vettvang, en þá var bíllinn ofan í
vatninu og náði það upp á miðjar
rúður. Björgunarsveitarmenn
þurftu að brjóta rúðu til að ná
manninum út og óku svo með hann
í sjúkrabifreið til móts við þyrlu
Landhelgisgæslunnar, sem mætti
þeim á Hvolsvelli og flaug með
hann á Landspítalann. Manninum
er haldið sofandi í öndunarvél. - sgj
Fluttur með þyrlu á sjúkrahús:
Keyrði ofan í lón
skammt frá Vík
LÖGREGLUFRÉTTIR Minnstu munaði
að illa færi þegar fjörutíu feta
gámur fauk á mannlausa rútu um
sjöleytið á laugardagsmorgun.
Atvikið átti sér stað á athafna-
svæði álvers Alcoa á Reyðarfirði.
Fjöldi starfsmanna Bechtel
hafði komið til vinnu með
rútunni, en örskammri stund eftir
að sá seinasti hafði stigið úr henni
fauk gámurinn í hlið rútunnar. Að
sögn lögreglu var yfirmáta slæmt
veður og olli rokið slysinu.
Enginn starfsmannanna
slasaðist en rútan er stórskemmd,
að sögn lögreglu. - sgj
Óhapp á athafnasvæði Alcoa:
Gámur fauk á
mannlausa rútu
Opið fram eftir á prófatíma
Þjóðarbókhlaðan verður opin lengur
á yfirvofandi prófatíma Háskóla
Íslands. Menntamálanefnd Stúdenta-
ráðs afhenti rektor Háskóla Íslands
þúsund undirskriftir þar sem hvatt
var til lengri opnunar. Háskólinn og
Bókhlaðan brugðust vel við.
MENNTAMÁL
Einar, eru þetta síbrotamenn?
„Já, en þeir brotna alveg niður þegar
við náum þeim.“
Óknyttaunglingar brutu fimmtíu rúður í
strætóskýlum á einni viku í Hlíðahverfi.
Rúða var brotin í einu skýli tveimur
tímum eftir að hún var sett í. Einar
Hermannsson er framkvæmdastjóri AFA
JCDecaux, sem rekur flest skýlanna.
PAKISTAN, AP Nawaz Sharif, fyrr-
verandi forsætisráðherra Paki-
stans, sneri aftur til landsins í
gær. Hann hefur verið í útlegð
síðan Pervez Musharraf herfor-
ingi steypti honum af stóli árið
1999.
Sharif tók þegar í stað til
óspilltra málanna að gagnrýna
andstæðing sinn, sagði neyðar-
ástandið sem Musharraf lýsti yfir
í byrjun nóvember „ekki góðan
jarðveg fyrir frjálsar og sann-
gjarnar kosningar. Ég tel að endur-
reisa þurfi stjórnarskrána og hafa
hér réttarríki.“
Sharif reyndi fyrir stuttu að
koma til Pakistans en var þá vísað
strax til baka á landamærunum.
Hann segir endurkomu sína nú
ekki byggða á neinum samningi
við Musharraf, eins og talið er að
annar fyrrverandi forsætisráð-
herra, Benazir Bhutto, hafi gert til
þess að geta snúið aftur.
Í dag rennur út framboðs frestur
til þingkosninga, sem haldnar
verða 8. janúar. Bæði Sharif og
Bhutto hafa hótað því að hunsa
kosningarnar, sem væri visst áfall
fyrir Musharraf þar sem hann
hefur sagst hafa lagt mikla
áherslu á að endurreisa lýðræði í
landinu.
Hitt gæti einnig komið sér afar
illa fyrir Musharraf ef þau Sharif
og Bhutto tækju höndum saman
gegn honum.
Nokkur þúsund stuðnings-
manna Sharif tóku á móti honum á
flugvellinum í Lahore í gær. - gb
SHARIF OG BRÓÐIR HANS Nawaz Sharif
gagnrýnir Musharraf forseta harðlega.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Nawaz Sharif, sem Pervez Musharraf steypti af stóli, snýr aftur til Pakistans:
Sharif kominn úr útlegðinni
BANDARÍKIN, AP Slökkviliðsmenn í
Kaliforníu glímdu við skógarelda
um helgina í gljúfrum og fjöllum
ofan við borgina Malibu. Eldarnir,
sem brutust út á laugardag, lögðu
nærri fimmtíu heimili í rúst en
svo virtist sem slökkviliðið hefði
náð tökum á þeim í gær.
Meira en tíu þúsund manns
þurftu að flýja að heiman, margir
í annað skiptið á fáeinum vikum.
Talið er að eldurinn hafi brotist
út á malarvegi og upptökin megi
rekja til mannaferða, en þó var í
gær ekki komið í ljós hvort
vísvitandi hefði verið kveikt í.
- gb
Skógareldar í Kaliforníu:
Fimmtíu heim-
ili brunnin
REYKJAVÍK Enginn veit hver á að
borga fyrir svifflugu sem fyrr-
verandi borgarstjóri, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, afhenti Rupert
Schuster, nýskipuðum talsmanni
Friðarstofnunar Reykjavíkur, í
október í fyrra. Svifflugan er í
geymslu Svifflugsfélags Íslands
í Nauthólsvík, en oft hefur verið
brotist þar inn og í eitt skipti bor-
inn eldur að skýlinu.
Í október í fyrra kynnti Vil-
hjálmur hugmyndir um Friðar-
stofnun Reykjavíkur, í tilefni af
tuttugu ára afmæli leiðtoga-
fundar Ronalds Reagan og
Mikhails Gorbatsjov í Höfða.
Hann bauð Rudolf Schuster, fyrr-
verandi forseta Slóvakíu, að fara
fyrir stofnuninni og vinna að
undirbúningi hennar.
Í tilefni af komu Schusters til
landsins afhenti Vilhjálmur
honum gamla svifflugu af gerð-
inni Ka-8. Schuster er mikill
áhugamaður um flug og rekur
mikið flugminjasafn í Slóvakíu.
Schuster fékk öll skjöl um svif-
fluguna í hendur og ekki er hægt
að fljúga henni án þeirra.
Jón Kristinn Snæhólm,
aðstoðar maður Vilhjálms, hafði
milligöngu um sviffluguna. Hann
segir borgarstjóra ekki hafa
gefið sviffluguna heldur ein-
göngu afhent hana. „Þetta var
algjörlega að mínu frumkvæði
og ótengt borgarstjóranum,“
segir Jón Kristinn. „Þetta fór
aldrei fyrir borgarráð og það
stóð aldrei til.“
Jón Kristinn segir sviffluguna
vera verðlausa og að aldrei hafi
verið rætt um neina borgun.
Hann telur hana í mesta lagi
kosta hundrað þúsund krónur.
Jón Kristinn segist hafa fengið
tvö fyrirtæki til að borga flutn-
inginn til Slóvakíu og að ekkert
hindri að hún geti farið þangað.
Kristján Sveinbjörnsson, for-
maður Svifflugsfélags Íslands,
segir félagið hafa metið svifflug-
una á 300 til 400 þúsund krónur.
Vélin sé formlega í eigu tveggja
félagsmanna.
Í ársskýrslu Svifflugsfélags-
ins stendur að svifflugan sé
„gefin af borginni“ og að uppgjör
vegna hennar muni fara fram í
tengslum við samning um nýtt
húsnæði Svifflugsfélagsins, sem
borgin hafi lofað að útvega því.
steindor@frettabladid.is
Friðarsvifflugan enn
ógreidd í Nauthólsvík
Sviffluga sem Rudolf Schuster, talsmaður Friðarstofnunar Reykjavíkur, fékk að
gjöf við komu til landsins í fyrra er enn í geymslu Svifflugsfélagsins ári síðar.
Borgarstjóri afhenti sviffluguna en enginn veit hver á að borga fyrir hana.
AFHENDING SVIFFLUGUNNAR Borgarstjóri afhenti Rudolf Schuster, lengst til vinstri,
sviffluguna, að viðstöddum forkólfum Svifflugsfélagsins.
BARIST VIÐ ELDINN Þyrlum var beitt til
að varpa vatni á eldinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JAFNRÉTTISMÁL Sextán daga átaki
gegn kynbundnu ofbeldi var ýtt
úr vör í gær. Vakin verður með
ýmsum viðburðum athygli á
orsökum og afleiðingum kyn-
bundins ofbeldis og mansals.
Í tilkynningu frá Mannréttinda-
skrifstofu Íslands kemur fram að
kynbundið ofbeldi sé alvarlegt
vandamál hérlendis. Um þrjú
þúsund konur hafa leitað aðstoðar
í Kvennaathvarfi frá stofnun þess
og til Stígamóta hafa komið um
4.500 konur. Þá verður beint
sjónum að mansali og bent á að
árlega séu mörg hundruð þúsund
konur þvingaðar í kynlífs-
þrælkun. - sgj
Átak um kynbundið ofbeldi:
Alvarlegt vanda-
mál hérlendis
Bíður ekki boðanna
Kevin Rudd, leiðtogi ástralska Verka-
mannaflokksins, bíður ekki boðanna
og hóf strax í gær undirbúning að því
að undirrita Kyoto-bókunina til að
draga úr hlýnun jarðar, daginn eftir
að hann vann kosningasigur á stjórn
íhaldsmanna.
ÁSTRALÍA
FÉLAGSMÁL Stefnt er að því að líf-
eyrissjóðirnir níu, sem boðað hafa
skerðingu til öryrkja í byrjun
desember, svari í dag eða næstu
daga bréfi Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra um að
falla frá skerðingaráformum gegn
allt að 100 milljóna króna greiðslu.
Skerðingin nemur um 400 milljón-
um króna á ári, að sögn Sigurðar
Bessasonar, stjórnarmanns í
Gildi.
Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna
eru fámálir um viðbrögð sjóðanna.
„Þetta snýst um að framfylgja
samþykktum sjóðanna. Við eigum
að fylgja þeim leikreglum sem
okkur eru búnar og hugsa um hag
allra sjóðfélaga, ekki bara
öryrkja,“ segir Sigurbjörn Sigur-
björnsson, formaður Greiðslu-
stofu lífeyrissjóða.
Sigurður segir að erindið verði
sennilega afgreitt í „sameiginlegu
umhverfi lífeyrissjóðanna“ en
bréfið sé nýkomið og hafi ekki
verið tekið til efnislegrar umræðu.
„Það er nokkuð ljóst að ef einhver
einn sjóður ákveður að svona
erindi sé ásættanlegt þá verði það
að vera eins fyrir allan hópinn,“
segir hann.
„Ég held að erindi ráðherra sé
hugsað til þess að skapa tíma.
Nefnd á vegum forsætisráðherra
er að skoða breytt matskerfi í því
hvernig örorka er skilgreind. Nú á
að snúa þessu við og meta getu
einstaklings til vinnu í staðinn
fyrir örorku þannig að unnið er að
því að átta sig á umfanginu.
Öryrkjum hefur fjölgað gríðar-
lega á mjög stuttum tíma. Við því
þarf að bregðast,“ segir hann.
Skerðing lífeyrissjóðanna nær
til tæplega 1.800 einstaklinga, þar
af eru um 230 sem ekki hafa skilað
inn skattskyldum gögnum. Skerð-
ingin átti upprunalega að koma til
framkvæmda 1. desember í fyrra
en var frestað. Í framreikningi
launa var miðað við neysluverðs-
vísitölu en nú launavísitölu. Það
þýðir að öryrkjar geta haft mun
hærri laun nú áður en til skerð-
inga kemur. - ghs
Skerðingin á greiðslum lífeyrissjóða til öryrkja nemur 400 milljónum króna:
Reyna að svara ráðherra í dag
SIGURÐUR
BESSASON Segir
skerðinguna
nema um 400
milljónum
króna á ári.
Þetta var algjörlega að
mínu frumkvæði og
ótengt borgarstjóranum.
JÓN KRISTINN SNÆHÓLM
FYRRVERANDI AÐSTOÐARMAÐUR
BORGARSTJÓRA
SPURNING DAGSINS