Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 22
[ ]Glymskrattar eru kannski ekki nýjustu græjurnar en þeir eru alltaf flottir og skemmtilega hannaðir. Hægt er að fá nýtískulegri græjur með glymskrattaútlit, en sumir vilja þó bara fá þessa gömlu góðu.
Mikið er til af ólíkum hljóm-
flutningstækjum en útlit þeirra
og notkunarmöguleikar hafa
tekið miklum breytingum á
undanförnum árum.
Mikil þróun hefur orðið í fram-
leiðslu hljómflutningstækja og
eru gömlu fermingargræjurnar
langt frá því að vera heitar. Segul-
bönd eru auðvitað löngu úrelt og
geisladiskar eiga á brattann að
sækja. iPod-kynslóðin hefur tekið
völdin og sé ætlunin að fá sér
hljómflutningstæki er iPod og
alls kyns fylgihlutir líklega besta
fjárfestingin. Það er þó breyti-
legt eftir smekk og
tækniþekkingu
hvað fólk
velur og enn
er til mikið úrval af hefðbundn-
um hljómflutningstækum með
geislaspilara, útvarpi og tveimur
hátölurum. Tivolitæki og alls
kyns svokallaðar iPod-hafnir eru
þó með því vinsælasta í dag.
„Fólk kaupir orðið mikið af tón-
list á netinu sem það hleður inn á
iPodana í gegnum tölvuna. Það er
líka lítið mál að hlaða inn á þá
tónlist af geisladiskum og mun
þægilegra að hafa allt á einum
stað,“ segir Ásgeir Jónsson,
verslunarstjóri Apple-búðar-
innar. Hann segir mikið um að
fólk vilji losna við fyrirferðar-
mikil hljómtæki og fá nettar
græjur sem auðvelt er að grípa
með í garðinn eða sumarbústað-
inn. „Hægt er að kaupa svokall-
aðar „dockur“ undir iPodana sem
þeim er stungið í og þá eru
komnar fyrirtaks græjur,“ segir
Ásgeir. Hafnirnar eru til í mis-
munandi stærðum og gerðum,
með mismiklum hljómgæðum og
jafnvel með útvarpi og öðrum
möguleikum.
Þorsteinn Daníelsson hjá
Tivolibúðinni í Ármúla segir að
Tivoli-tækin, sem til eru í fjöl-
mörgum útgáfum, séu geysivin-
sæl og að þau hafi selst í um
40.000 eintökum hér á landi. „Það
sem einkennir þessi tæki fyrst og
fremst er einfaldleiki og gæði,“
segir Þorsteinn. Tækin er hægt
að setja saman á ýmsa vegu og
prýða þau margar stofur í land-
inu. vera@frettabladid.is
Gömlu græjunum
skipt út fyrir iPodinn
Bose SoundDock Portable er kraftmikil
höfn með innbyggðu hleðslubatteríi.
Verð 44.990 krónur. Apple-iPodarnir
kosta frá 9.990 krónum.
Tivoli-geislaspilari, útvarp og fjarstýring.
Verð frá 85.500 krónum.
iYiYi og sambærilegar iPod-hafnir eru
tvímælalaust teknar við af gömlu fermingar-
græjunum. Útvarp, klukka og vekjaraklukka
eru innbyggð og kostar tækið 42.800 (iPod-
inn ekki innifalinn í verði).
Gamlir og nýir tímar mætast: Hönnunin er
gamaldags en gæðin standast ströngustu
nútímakröfur. Stereógræjur sem saman-
standa af útvarpseiningu, geislaspilara og
hátalara mynda fallega samstæðu í stofuna.
Hægt er að tengja MP3-spilara, iPod og
bassa við. Verð: 79.600 krónur.
Opið: Virka daga kl. 9-18 • Laugardaga 11-16
199.900
160 GB
UPPTÖKU
DISKUR
42PT85
42” Plasma sjónvarp
Upplausn 1024x768
Skerpa 15.000:1
Birtustig 1500
Svartími 0,001 ms
2 Stafrænir sjónvarpsmóttakarar
100Hz
Spennandi sjónvarp