Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Þorgerður Aðalgeirsdóttir framhaldsskóla-
kennari á sér uppáhaldsstól í uppáhaldshorni.
„Stóllinn kemur frá móður minni en hún keypti hann
þegar hún hóf búskap um tvítugt. Hún keypti tvo
stóla og voru þeir notaðir mikið og eru komnir til ára
sinna. Ég fékk annan stólinn og á von á hinum síðar,“
segir Þorgerður sem hefur átt langt samneyti við
stólana eða allt frá því hún man eftir sér. Það er því
ekki að furða að stóllinn sé í miklu uppáhaldi.
„Ég var með mikið af gömlum munum í kringum
mig en svo flutti ég úr Norðurmýrinni í Grafarvog-
inn og þá keypti ég svolítið af nýrri húsgögnum. Þar
sem við fluttum í nýrra hús þá fannst mér ekki passa
að vera bara með gamalt dót. Samt fylgir þessi stóll
mér alltaf og ég er líka með gamla borðstofustóla
þótt borðstofuborðið sé nýtt,“ segir Þorgerður sem
þykir erfitt að henda öllu gömlu út þar sem það eru
oft uppáhaldshlutirnir. Auk þess þykir henni gaman
að blanda saman gömlu og nýju. „Fyrir framan stól-
inn er handsaumaður skemill með krosssaumi sem
mér áskotnaðist í sumar þegar ég var í Sorpu að
henda rusli. Þar hitti ég mann sem var með fallegt
sófasett og skemil sem hann var á leið með í Góða
hirðinn. Þetta voru húsgögn úr íbúð gamallar konu
sem var að flytja og minnka við sig. Ég dauðsé eftir
að hafa ekki tekið sófasettið líka,“ segir Þorgerður
kímin. Fyrir framan stólinn er töluvert pláss og segir
Þorgerður að þar setji börnin hennar tvö oft upp tré-
lest og þá er skemillinn notaður sem göng og lestin
látin fara í kringum stólinn þannig að uppáhalds-
hornið er líka leikvöllur.
Þorgerður syngur í Vox Academica undir stjórn
Hákons Leifssonar en þar er í nógu að snúast. „Við
höldum aðventutónleika í Langholtskirkju 30.
nóvember og þar munum við syngja tvö frönsk verk
frá tuttugustu öld,“ segir Þorgerður. Verkin eru eftir
Poulenc og Honegger og með kórnum verður 50
manna hljómsveit, barnakór og einsöngvarar. Þarna
er því kjörið að hefja aðventuna. hrefna@frettabladid.is
Gamall og góður félagi
HÖFN OG GRÆJUR
Fermingargræjurnar
eru úti og alls konar
nýjungar komnar inn í
staðinn.
GRÆJUR 4
LÍFLEG LJÓS
Breski hönnuðurinn Stuart
Haygarth býr til ljósakrónur
úr óhefðbundnu hráefni.
HEIMILI 2
IPL varanleg, sársaukalítil
háreyðing
Greifynjan snyrtistofa s. 587 9310
Nematilboð -20% Mánud. Heilnudd
Sjáðu úrvalið inná www.verslun.is
VERSLUNARTÆKNI
VeggrammarSpeglar
Simi:5351300 verslun@verslun.is110 ReykjavíkSI A Dragháls 4
Hjólahnallar Handkörfur Kælar & frystarVagnar Kynningaborð
Sigma linsur
fyrir flestar
gerðir
myndavéla
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Þorgerður lætur fara vel um sig
í uppáhaldsstólnum og hugsar
sér gott til glóðarinnar að syngja
jólaperlur á aðventutónleikum Vox
Academica á föstudaginn.