Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 4
4 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suðurnesjum kærði þrjá öku- menn fyrir meinta ölvun við akstur aðfaranótt sunnudags. Einn þeirra hafði misst stjórn á bifreið sinni á Grindavíkurvegi með þeim afleiðingum að bíllinn valt á veginum. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp við meiðsli. Annar ökumaður var einnig stöðvaður á Grindavíkurvegi, grunaður um ölvunarakstur. Sá þriðji hafði reynt að stinga lögregluna af á hlaupum í Reykjanesbæ en var handsamað- ur. Ökumennirnir gistu fanga- klefa. - sgj Lögreglan á Suðurnesjum: Ölvaðir ökumenn valda óskunda ALMANNAVARNIR Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir það hafa verið skoðað innan ráðuneytisins hvernig aðstaða á Keflavíkurflug- velli og í Keflavíkurhöfn gæti nýst Landhelgisgæslunni. Fokker- flugvél gæslunnar, TF-SYN, og þyrlan TF-GNA hafa þegar verið fluttar til Keflavíkur til bráðabirgða. „Það þrengir að flugdeild LHG á Reykja- víkurflugvelli vegna Háskól- ans í Reykjavík auk þess sem flugdeildin stækkar og krefst meira rýmis,“ segir Björn. Áður hefur Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgis gæslunnar, sagt það vera væn legan kost að flytja starfsemina á Suðurnesin. Björn segir að þegar niðurstaða ráðuneytisins liggi fyrir verði hún kynnt. - sgj Floti Landhelgisgæslunnar: Skoða flutning til Keflavíkur BJÖRN BJARNASON HEILBRIGÐISMÁL „Ef launakostnað- urinn hefði ekki hækkað svona mikið væri þjónustan sú sama en það þarf að lækka kostnaðinn við spítalann. Menn munu reyna að lækka kostnað með þeim hætti að þjónustan verði eins mikil og hægt er,“ segir formaður nefndar um málefni Landspítalans, Vilhjálmur Egilsson. Launa- og lyfjakostnaður hafi aukist svo mikið að bregðast þurfi við því. Hugsanlegar leiðir til þess hafi verið ræddar, en of snemmt sé að segja til um hvað úr verði. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem nú er til umræðu, vantar tæpan milljarð til reksturs Landspítala fyrir árið 2008, sé miðað við fjáraukalög fyrir líðandi ár. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að rekstrargjöld spítalans hækki um 882,3 milljónir króna frá fjárlögum 2007 og nemi 33 milljörðum alls. Fjáraukalög fyrir 2007, sem sýna hversu mikið reksturinn kostaði í raun á árinu, gera hins vegar ráð fyrir 1,8 milljarða aukn- ingu frá fjárlögum 2007. Eftir stendur tæpur milljarður. Guðlaugur Þór Þórðarson heil- brigðisráðherra vill ekki tjá sig um fjárlagafrumvarpið meðan það er enn í meðförum þingsins. Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans, segist sömuleiðis lítið vilja tjá sig fyrr en hann sjái viðbrögð stjórnvalda. Stjórnendur spítalans hafi skoðað hvernig þeir sjálfir geti brugðist við þessu, fari fram sem horfir, með hagræðingu, þjónustuskerðingu og þess háttar. klemens@frettabladid.is Lækka þarf kostnað við rekstur spítalans Lækka þarf kostnað við rekstur Landspítala, segir formaður nefndar um mál- efni hans. Samkvæmt frumvarpi að fjárlögum fyrir árið 2008 þyrfti að skera kostnað niður um tæpan milljarð. Spítalinn hefur íhugað þjónustuskerðingu. BRÁÐAMÓTTAKA LANDSPÍTALANS Samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem nú er til umræðu vantar tæpan milljarð til að reka spítalann á næsta ári, sé miðað við fjáraukalög fyrir þetta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN                   ! # $ %   %   &       '(    )&  * # $  +,- +,- .,- / .,- 0  +,- 10 .2,- .2,- 3,- 4,- / 4,- / 5,-6 10 3,-6 10 .7,- 42,- 4.,-6 10                !     "  # $    %&'    (           )    $&  *   ++)   ,   #     -.   /     )  . $&  01234%%4 5637 $!  8       9:; <  =   "    859.4: (  )    8+95:  *0>"?# #                       Menn munu reyna að lækka kostnað með þeim hætti að þjónustan verði eins mikil og hægt er. VILHJÁLMUR EGILSSON FORMAÐUR NEFNDAR UM MÁLEFNI LANDSPÍTALANS BRETLAND, AP Tony Blair segir að þau tíu ár sem hann var forsætis- ráðherra Bretlands hafi trúin skipt sig gífurlega miklu máli. Hins vegar hafi hann hikað við að tala mikið um trúmál af ótta við að kjósendur teldu sig eitthvað ruglaðan. „Í sannleika sagt þá heldur fólk að maður sé ruglaður,“ sagði Blair, sem nú er friðarer- indreki í Mið- Austurlöndum, í viðtali við BBC. Hann segir breska kjósend- ur halda að trúaðir stjórnmála- menn „fari afsíðis og spjalli við manninn í efra og komi svo til baka og segi: Jæja, ég er búinn að fá svarið og það er svona.“ Hann segir að trúin hafi hins vegar gefið sér styrk til að standast álagið sem fylgdi því að taka erfiðar ákvarðanir. - gb Tony Blair tjáir sig: Hikaði við að tala opinber- lega um trú TONY BLAIR BRUSSEL, AP Talið er að 4,5 milljón- ir Evrópubúa hafi neytt kókaíns á árinu, sem er milljón fleiri en í fyrra þegar hlutfallið var 3,5 millj- ónir. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Lyfjastofnunar ESB (EMCDDA) um fíkniefnavandann í Evrópu sem var kynnt á fimmtu- dag. Stofnunin byggir tölur sínar á upplýsingum frá árinu 2005 en það ár var met sett í upptöku yfir- valda á kókaíni í Evrópu. Alls var hald lagt á 107 tonn af kókaíni, sem var 45 prósentum meira en árið áður. Mestu af efninu var smyglað til Evrópu gegnum Spán og Portúgal. Kannabisefni eru áfram mest notuðu eiturlyf í Evrópu og er áætlað að um sjö prósent Evrópu- búa hafi neytt þeirra á þessu ári. Talið er að um þrjár milljónir manna noti kannabisefni daglega eða næstum daglega. Stofnunin telur sig þó sjá merki um að vinsældir þeirra séu að minnka meðal yngra fólks. Talið er að 19,3 til 20 prósenta fólks á aldrinum fimmtán til 34 ára hafi neytt kannabisefna á Spáni og í Tékklandi á þessu ári. Hlutfallið er áætlað á milli 16,3 og 16,7 í Frakklandi, Ítalíu og Bretlandi. Í Bretlandi, Frakklandi og Tékk- landi hefur hlutfallið lækkað um þrjú til fjögur prósent frá því í fyrra. - sdg Kannabisefni algengustu eiturlyf í Evrópu og þrjár milljónir neyta þeirra daglega: Kókaínneysla eykst í Evrópu TILRAUN TIL SMYGLS Þrjú tonn af kóka- íni fundust í káetu skips sem spænska lögreglan gerði upptækt. NORDICPHOTOS/AFP SAMGÖNGUR Um 30 flugfarþegar þurftu að bíða í Kaupmannahöfn í nótt og munu fljúga til Íslands í dag. Flugvél Icelandair hafði bilað hérlendis og önnur minni verið send út í staðinn. „Við óskuðum eftir sjálfboða- liðum til að vera eftir í Kaup- mannahöfn,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. „Menn tóku náttúrlega misjafnlega í þetta, við buðum okkur bara fram,“ segir Andrés Hafliði Arnarson, einn farþeg- anna sem sátu eftir. „Við fáum gistingu, mat og dagpeninga. Við ætlum bara að njóta dagsins.“ - sgj Bilun í vél hjá Icelandair: Um þrjátíu urðu eftir á Kastrup KRÓATÍA, AP Fyrstu tölur að loknum þingkosningum í Króatíu í gær sýndu sáralítinn mun á fylgi stjórnarflokksins og stærsta stjórnarandstöðuflokksins. Báða flokkana vantaði þó mikið upp á að tryggja sér meirihluta. Sósíaldemókratar höfðu fengið 30,3 prósent atkvæða, nokkru minna en Íhaldsflokkurinn sem hafði 32,6 prósent. Íhaldsstjórnin stóð því heldur betur að vígi, en Ljubo Jurcic, leiðtogi stjórnar- andstöðunnar, bar sig þó vel: „Sósíaldemókrataflokkurinn hefur náð besta árangri sínum frá upphafi,“ sagði hann. - gb Þingkosningar í Króatíu: Fylkingarnar standa jafnar GENGIÐ 23.11.2007 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 122,4064 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 62,58 62,88 128,83 129,45 92,60 93,12 12,418 12,490 11,511 11,579 9,926 9,984 0,5786 0,5820 99,76 100,36 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.