Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 58
30 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR FÓTBOLTI Rafa Benitez, stjóri Liverpool, vandar eigendum Liverpool ekki kveðjurnar. „Eigendurnir skilja ekki að það er of seint að fara að hugsa um leikmannamál í lok desember og ég sagði aldrei að við þyrftum að eyða peningum, því það eru líka til samningslausir menn.“ Enska slúðurblaðið News of the World fullyrti í gær að Benitez yrði rekinn fljótlega og José Mourinho myndi taka við liðinu, en blaðið hefur hingað til ekki þótt mjög áreiðanlegt í frétta- flutningi sínum um enska boltann. - óþ Rafa Benitez, stjóri Liverpool: Svarar fyrir sigKÖRFUBOLTI Leikið var í NBA- deildinni í fyrrinótt og helst ber að nefna að Boston Celtics vann sinn ellefta leik af tólf gegn Charlotte Bobcats, 96-95, og New York Knicks náði langþráðum sigri, 85-78, gegn Chicago Bulls. New York Knicks var búið að tapa átta leikjum í röð og því var sigurinn gegn Chicago Bulls kærkominn, ekki síst fyrir þjálfara Knicks, Isiah Thomas, sem talinn er standa tæpt í starfi. „Í New York ertu annaðhvort dauður eða lifandi, eftir því hvort þú vinnur eða tapar leik, og eftir þennan leik erum við á lífi og njótum hylli,“ sagði Thomas í leikslok. - óþ NBA-deildin í körfubolta: Knicks sigraði LOKSINS SIGUR Isiah Thomas, þjálfari New York Knicks, tórir enn í starfi eftir langþráðan sigur í fyrrinótt. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Tyrkneska liðið Tur Il Özel Idare var enn minni mótstaða fyrir Fram í gærdag þegar seinni leikur liðanna fór fram í EHF- áskorendakeppninni í handbolta. Lokatölur í gær voru 36-20 og sam- anlagt komst Fram auðveldlega áfram, 65-45. Özel Idare komst gjörsamlega ekkert áfram gegn sterkri vörn Fram sem gerði Magnúsi Erlends- syni lífið auðvelt í markinu en hann varði nánast allt sem á ramm- ann kom í fyrri hálfleik. Tyrkirnir höfðu aðeins skorað þrjú mörk á fyrstu tuttugu mínútunum og skoruðu einungis sex í fyrri hálf- leik sem Framarar leiddu, 15-6. Yfirburðir Fram héldu áfram í seinni hálfleik þó að Özel gengi aðeins betur að skora. Getumun- urinn var þó algjör og áttu Fram- arar auðvelt með að skora og keyrðu yfir gestina með fjölmörg- um hraðaupphlaupum. Tyrkneska liðið brást engum sem hafði búist við að það myndi láta mótlætið fara í taugarnar á sér. Einn leikmanna þess fékk rautt spjald fyrir gróft brot og þjálfarinn gerði lítið annað en að tuða í dómurum, eftirlitsmönnum og meira að segja varamannabekk Fram. Þegar Framarar höfðu lokið sér af með glæsilegu sirkusmarki í lokin varð sextán marka sigur niðurstaðan, 36-20. Ferenc Antal Buday, þjálfari Fram, var sáttari við leik sinna manna í gær heldur en fyrradag. „Við héldum fund eftir fyrri leikinn þar sem mér fannst við ekki spila nægilega vel þar. Það var mikilvægt fyrir okkur að halda einbeitingu sem við gerðum og ég var sérstaklega ánægður með fyrri hálfleikinn hjá okkur í þessum leik,“ sagði Ferenc, sem er ekki farinn að spá mikið í næstu mótherja. „Ég veit að það er eitt gott rúm- enskt lið komið áfram og eitt austur rískt. Það er samt langt í næstu umferð þannig að ég tek á því þegar þar að kemur,“ sagði Ferenc að lokum. - tom Tyrkirnir engin fyrirstaða Fram vann Tur Il Özel Idare 36-20 í seinni leik liðanna í EHF-áskorendakeppni Evrópu í Safamýrinni í gær og komst því örugglega áfram í sextán liða úrslit. HARÐFYLGI Filip Kliszvzyk, leikmaður Fram, nær hér að brjóta sér leið í gegnum vörn Tyrkjanna í leiknum í gær, en Filip átti fínan leik og skoraði fjögur mörk úr fimm skottilraunum í öruggum sigri Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR FÓTBOLTI Fulham og Blackburn skildu jöfn, 2-2, í ensku úrvals- deildinni. Staðan í hálfleik var 0-0 en í seinni hálfleik komu mörkin. Danny Murphy kom heima- mönnum í Fulham yfir úr víti í byrjun seinni hálfleiks, en Brett Emerton jafnaði fyrir gestina stuttu síðar. Diomansy Kamara kom Fulham yfir á nýjan leik, en Blackburn jafnaði á nýjan leik með marki Stephen Warnock þegar tíu mínútur lifðu leiks og þar við sat. - óþ Enska úrvalsdeildin: Markaveisla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.