Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 16
16 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR Þ jóðarbúskapurinn hefur verið býsna háspenntur um nokkurt skeið. Verðfall á hlutabréfum og þar af leið- andi lækkun á gengi krónunnar hefur snögglega breytt aðstæðum. Ýmislegt bendir til að fram undan séu lág- spenntari tímar. Þau umskipti sem orðið hafa að þessu leyti má fyrst og fremst rekja til ytri aðstæðna. Með öðrum orðum er það þróun á erlendum mörkuðum sem hefur svo bein og afgerandi áhrif á þjóðar búskapinn. Áður fyrr voru það sveiflur á hráefnismörkuðum með fisk sem virkuðu með þessum hætti. Nú eru það alþjóðlegir fjármála markaðir. Athyglisvert er að innlendi markaðurinn virðist ekki að marki hafa látið undan ströngum aðhaldsaðgerðum Seðlabankans. Áhrifin koma fyrst og fremst utan að. Þau ætla hins vegar um margt að verða krappari hér en víða annars staðar. Sveifluhálsar helstu sam- keppnislandanna eru einfaldlega ekki eins háir og brattir og hér. Engan veginn verður sagt að þessi breyting sé öll af hinu vonda. Að einhverju leyti er hún leiðrétting á of háu verði hlutabréfa. Verði breytingarnar ekki of krappar geta þær á endanum leitt til betra jafnvægis. Gengi krónunnar hefur verið óraunhæft og veikt hefðbundnar samkeppnisgreinar. Þegar fjármálafyrirtækin hætta að sópa til sín öllu hæfileika- fólki sem þau festa augu á finna vonandi fleiri kröftum sínum við- nám annars staðar. Það er þörf fyrir fólk með þekkingu og frum- kvæði víðar. Þó að ekki sé tilefni til alvarlegrar svartsýni má þó ljóst vera að flest bendir til að þessar hræringar muni hafa áhrif á allt hag- kerfið. Þrengri staða fjármálafyrirtækja þýðir minni umsvif. Af sjálfu leiðir að hagvöxtur minnkar. Það þrengir aftur svigrúm þeirra sem semja um launabreytingar og eins hinna sem nú eru að taka ákvarðanir um útgjöld ríkisins á næsta ári. Ríkissjóður stendur að vísu betur en nokkru sinni fyrr. Hann er því í sterkri stöðu til þess að mæta lægra spennustigi í þjóðar- búskapnum. Hætt er hins vegar við að tekjur ríkissjóðs af fjár- magnsskatti og virðisauka verði minni en áður. Ekki er á vísan að róa með umframtekjur þessa árs. Seðlabankinn stendur frammi fyrir vandasömu mati. Hækkandi skammtíma kostnaðarverðbólga vegna lækkunar á gengi krón- unnar blasir við. Á hinn bóginn er augljóst að breytingar á fjár- málamörkuðum eru síður en svo ávísun á eftirspurnarverðbólgu á næstu mánuðum. Hvernig bregst bankinn við? Mjúk lending eða hörð eru tískuhugtök í efnahagsumræðu síð- ustu ára. Það er vissulega mikilvægt að haga hagstjórninni á þann veg að leiðin niður hagsveifluhálsana sé aflíðandi. Hitt skiptir þó mestu máli að ferðum hagkerfisins upp á þessa hálsa fækki. Á ein- földu máli heitir þetta stöðugleikapólitík. Hana þarf að hugsa til lengri tíma. Þá vaknar spurningin: Má bæta eitthvað í skipulagi þjóðarbúskaparins í þeim tilgangi að fækka ferðunum upp og niður sveifluhálsana? Margt hefur gerst í þeim efnum á liðnum árum. Sá vandi sem helst er óleystur lýtur að íslensku krónunni. Við sleppum aldrei með öllu við áhrif af alþjóðlegum sveiflum. Okkar hagsveiflu hálsar mega hins vegar ekki vera bæði fleiri og hærri en samkeppnis- landanna. Fyrir þá sök þarf nú að setja strikið fyrir trúverðuga framtíðarstefnu í peningamálum. Sveifluhálsar í þjóðarbúskapnum: Framtíðar strik ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR Það var kafli úr endurminning-um Guðna Ágústssonar í Mogganum í gær þar sem meðal annars var vikið að átökunum kringum fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar sem Ólafur Ragnar Grímsson synjaði undirritunar. Þetta var skemmti- legt aflestrar. Guðni rekur þarna atburðarás sem þegar er þekkt að nokkru, nema hjá Guðna verður allt ljóslifandi og þrungið heitum og innvirðulegum tilfinningum. Maður er nánast eins og staddur í skáldsögu eftir Jón Trausta eða Torfhildi Hólm. En Guðni er ekki gærdagsins maður í íslenskum stjórnmálum eins og þeir eru sem reyndu að draga hann með sér í fallinu. Og honum er náttúrlega í mun að draga það fram hvernig hann stóð gegn gerræðistilburðum Davíðs Oddssonar í þessu máli, og kom fyrir hann vitinu svo að Davíð neyddist til að gefast upp við tilraun sína til að koma á ný á því ástandi þegar Morgunblaðið var einrátt á íslenskum blaða- markaði og Stöð tvö var í eigu þóknanlegra aðilja. Sérkennilegur lýðræðisskilningur Samkvæmt frásögn Guðna var ásteytingarsteinninn þessi: eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafði neitað að skrifa undir fjölmiðlalögin vildi Davíð leggja fram ný lög fyrir þingið með einhverjum breytingum sem hann taldi að Ólafur Ragnar myndi fallast á, enda væri hann orðinn vígmóður eftir átökin. Halldór Ásgrímsson virtist ekki hafa aðra stefnu í málinu en að halda völdum og ákvað að kanna hvernig Ólafur myndi bregðast við nýju lagafrumvarpi. Guðni Ágústsson virðist hafa verið eini maðurinn í ríkisstjórninni sem var fær um að eiga orðastað við forsetann og var sendur til að „þreifa á honum“. Fékk lamba- kjöt á diskinn sinn og kom til baka með þau skilaboð að forsetinn myndi að sjálfsögðu ekki skrifa undir ný lög. Þar með horfðust framsóknar- menn í augu við að málið var ónýtt en Davíð brást ókvæða við og kallaði þá veimiltítur. Sem sýnir hversu brugðið hinum orðsnjalla Davíð var því „veimil - títa“ er nú ekki orð sem kemur fyrst í huga manns andspænis svo vörpulegum manni sem Guðni er. Jafningi eða gráðug hjú Allt er þetta gott og blessað. En það sem óneitanlega vekur nokkra undrun þegar þessi frásögn er lesin er að ekki virðist hafa hvarflað að neinum af þessum ráðamönnum þjóðarinnar að fara einfaldlega að lögum og láta fara fram þjóðaratkvæða- greiðslu um málið. Og ekki virðast þeir heldur hafa áttað sig á því að forseti Íslands gat ekki með nokkru móti farið að undirrita lítillega endurbætt lög sama efnis án þess að fyrra málið hefði fengið að hafa sinn lögform- lega gang. Allt þetta sýnir „afskaplega sérkennilegan“ lýðræðisskilning. Það er ekki að efa að Framsóknar- flokkurinn hefði bjargað miklu af sjálfsmynd sinni og reisn í huga almennings hefði hann krafist þess að farið yrði að lögum og þjóðin fengi að kjósa um frum- varpið – og slitið stjórnarsam- starfinu ella. Það var ógæfa framsóknar- manna að takast ekki að fjarlægja sig þessum frámunalegu aðförum gagnvart forsetanum sem starfaði í einu og öllu samkvæmt stjórnarskránni sem allt í einu var talað um sem marklaust plagg. Það var ógæfa framsóknar- manna að koma því ekki nógsam- lega á framfæri við þjóðina að þetta brölt væri ekki undan þeirra rótum runnið. Fyrir vikið birtust þeir þjóðinni sem undir- lægjur. Gráðug hjú með lykil að búrinu. Stundum virðist manni sem það sé enn ekki runnið upp fyrir sumum fyrrverandi ráð- uh – freyjum flokksins hversu skaðlegt þetta ósjálfstæði var fyrir ímynd flokksins: þegar Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum iðnaðarráðfreyja, gagnrýnir ríkisstjórnarflokkana – og einkum Samfylkinguna – fyrir að tala ekki einu máli (máli sjálf- stæðismanna) í málaflokkum eins og umhverfismálum virðist hún ekki átta sig á því að Samfylking- unni er það einmitt höfuðnauðsyn að koma fram sem jafningi Sjálfstæðisflokksins en ekki tautandi hjú. Draumurinn hjá Halldóri Ásgrímssyni og sveinum hans var eflaust sá að gera úr þessum gamla stjórnmálaarmi Sambands- ins voldugan hægri flokk á borð við Venstre í Danmörku sem var deyjandi dreifbýlisflokkur þegar Uffe Elleman Jensen hófst handa við að breyta honum í harðsnúna frjálshyggjusveit sem höfðaði til stöndugra og sérdrægra borgar- búa. Í staðinn varð Framsókn flokkur ríkra og sérdrægra dreifbýlisbúa – kvótagreifanna. En umfram allt varð flokkurinn í augum almennings samsafn manna sem sköruðu eld að sinni köku í einkavæðingunni. Guðni Ágústsson hefur ekki slíka ímynd – um ráðvendni hans efast enginn. Og fyrir vikið er hann ekki gærdagsins maður í íslenskum stjórnmálum heldur nútímalegur framsóknarmaður sem ekki er vert að vanmeta – maðurinn sem kom vitinu fyrir Davíð. Guðni og gærdagsins menn greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Björn Þór Sigbjörnsson, Kristján Hjálmarsson og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 UMRÆÐA Launaleynd Í Fréttablaðinu í gær lýsir Illugi Gunnars-son, alþingismaður Sjálfstæðisflokks, yfir fullum stuðningi við ákvæðið um afnám skyldu til launaleyndar í jafnréttis- frumvarpi Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Það er gleðiefni. Illugi virðist hins vegar hafa misskilið ákvæðið sem hann styður, og telur að eftir sem áður geti atvinnurekandi samið við starfs- mann sinn um að leyna launakjörum. Þetta stenst ekki, enda væri þá til lítils unnið. Ákvæðið er í 19. grein frumvarpsins og hljóðar svo: „Starfsmönnum skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef þeir kjósa svo.“ Þetta er samhljóða ákvæði í stefnuyfirlýsingu stjórnar- flokkanna. Í ákvæðinu felst tvennt. Annarsvegar að enginn getur meinað starfsmanni að skýra hverjum sem er frá launakjörum sínum. Hinsvegar að enginn getur þvingað starfsmann til að skýra frá launa- kjörum sínum. Í athugasemdum við frumvarpið er þetta enn skýrara. Hér sé á ferð „það nýmæli að starfsmönnum skuli ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef þeir kjósa svo“. Ávallt heimilt. Illugi virðist skilja þetta svo að starfs- maður megi semja af sér þennan rétt í ráðningarsamningi eða með sérstökum öðrum samningi við atvinnurekandann. Það sé „hluti af samningsfrelsi manna“. Orðalag 30. greinar frumvarpsins – samhljóða samsvarandi grein í núgildandi lögum – tekur af öll tvímæli um þetta. Hún heitir „Bann við afsali réttar“ og á sér ævaforna rót í frelsis-, mannréttinda- og kjarabaráttu: „Óheimilt er að afsala sér þeim réttindum sem kveðið er á um í lögum þessum.“ Óheimilt. Ákvæðið í 19. grein um afnám samnings- bundinnar skyldu til launaleyndar er eitt af nokkrum mikilvægustu nýmælum jafnréttisfrum- varpsins. Annaðhvort styður Illugi Gunnarsson þetta ákvæði í fullri og réttri merkingu eða Illugi Gunnarsson styður ekki þetta ákvæði, sem komið er úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokksins og Samfylkingarinnar frá 23. maí síðastliðnum. Hér er engin hjáleið. Illuga skýst um launaleynd MÖRÐUR ÁRNASON GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Í DAG | Syndir feðranna Guðni Ágústsson, formaður Fram- sóknarflokksins, var einn af fáum körlum sem tóku þátt í umræðunni um þingsályktunartillögu til að efla þátttöku kvenna í sveitarstjórnar- málum á þingi um daginn. Guðni komst á gott flug í stuðningi sínum við jafnréttið og varð ágætlega yfirlýsingaglaður, kvað til að mynda: „Syndir feðranna koma oft niður á börnunum. Faðir minn átti tólf syni, ég engan,“ sagði Guðni og benti á að hann byggi við mikið kvennaríki einn með konu sinni og dætrum. Svín, hreindýr, gæs Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hefur vakið athygli fyrir auglýsingar á jólahlaðborði fjölskyldunnar síðustu daga. Matseðillinn er girnilegur; gljáður hamborgarhryggur, hrein- dýrapaté, gæsalifrarpaté, grafinn lax, síld, kjúklingaleggir og margt annað. Gárungarnir lyfta brúnum í undrum og spyfja hvort þarna sé um heimatilbúna framleiðslu að ræða því hvað á að halda; svín, hreindýr, gæs...? Allir vilja færa flugvöllinn Margrét Sverris- dóttir, forseti borgar- stjórnar, segir í viðtali við Vefritið.is að til greina komi að flytja flugvöllinn til innan borgarmarkanna. „Flugvöllur- inn verður að vera í Reykjavík. Sú afstaða mín ræðst umfram allt af landsbyggðarsjónarmiðum. Nú er verið að kanna hvort aðstæður séu með þeim hætti að hann geti verið á Hólmsheiði.“ Eitt- hvað hefur þá þurft að gefa eftir í samstarfinu við B, S og V-listana. Í kosningastefnu F-lista Margrétar stóð einfald- lega „Flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni“. steindor@fretta- bladid.is ghs@frettabladid.is Framsóknarflokkurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.