Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 12
12 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR RV U N IQ U E 11 07 03 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Nr. 11 R ekstra Góðar hugmyndir Hagkvæmarvistvænar mannvænarheildarlausnir 1982–2007 Rekstrarvörur25ára Rekstrarvörulistinn ... er kominn út MÆLING HEIMSINS EFTIR DANIEL KEHLMANN STÓRFENGLEGT MEISTARAVERK SKEMMTILESTUR AF BESTU GERÐ Mæling heimsins er sambland af vísinda- sögu og lygasögu. Bókin er skrifuð af stór- hug og er skemmtilestur af bestu gerð, full af litlum athugunum sem kitla hug- ann svo mann langar mest til að hrópa af fögnuði. Mæling heimsins var næst mest selda skáldsaga heims árið 2006. 1.SÆTI Á METS ÖLULIS TA EYMUN DSSON N1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA HJÓ BAR Auglýsingasími – Mest lesið LÖGREGLUMÁL Afbrotavarnaverkefni sem lögreglu- nemar á Norðurlöndum vinna nú sameiginlega er hið fyrsta sinnar tegundar. Aldrei fyrr hafa yfir 100 nemendur frá öllum Norðurlandaþjóðunum unnið saman að álíka verkefni. Þetta kemur fram í viðtali Fréttablaðsins við þá Ólaf Egilsson, lögreglufulltrúa við Lögregluskól- ann, og Pétur Berg Matthíasson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðing hjá embætti ríkislögreglu- stjóra. Þeir eiga sæti í starfshópi sem vinnur að samstarfsverkefninu af Íslands hálfu. Önnur lönd sem taka þátt í því eru Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland. „Markmið og tilgangur verkefnisins er að nemendur öðlist betri skilning á því hvernig afbrotavörnum er háttað hjá öðrum Norðurlanda- þjóðum,“ greinir Pétur frá. Verkefnið stendur yfir í 10 vikur. Breytilegt er hversu margir nemendur taka þátt í því frá hverri þjóð en frá Lögregluskóla ríkisins eru þeir á fjórða tug. Samtals eru um 130 nemendur frá Norðurlöndunum í þessu verkefni. Fyrri hluti þess byggist á því að lögreglunemar frá hverju landi fyrir sig gera grein fyrir stöðu afbrotavarna í heimalandi sínu. Það gera þeir með vinnslu ritgerða sem þeir vinna í hópum. Kenn- arar lögregluskólanna í hverju landi völdu síðan tvær ritgerðir sem voru gerðar aðgengilegar öllum nemendum í lok október á sænsku netkerfi sem notað er við kennslu í lögregluháskólanum í Stokkhólmi. Nemendur frá öllum löndum hafa aðgang að þessu kerfi. Eftir skil á ritgerðum voru lögreglunemar frá öllum Norðurlandaþjóðunum settir í hópa með nemum samstarfslandanna. Þeir hafa átt í sam skiptum og verið að ræða spurningar sem kennarar leggja fyrir hópana og tengjast afbrota- vörnum á Norðurlöndunum. „Umræðan fer einnig fram á netkerfi sænska lögregluháskólans og geta nemendur þar skrifast á við aðra í umræðuhópi,“ útskýrir Ólafur. „Nemendurnir þurfa því að lesa ritgerðir annarra til að geta verið virkir í um ræðum við kollega sína.“ Hver hópur hefur einn kennara sem fylgist með umræðunni og getur hann komið með ábendingar eða tillögur ef svo ber undir. Heildareinkunn fyrir verkefnið byggist annars vegar á ritgerð um afbrotavarnir í heimalandinu og hins vegar á virkri þátttöku í umræðu um afbrotavarnir við nemendur á Norðurlöndum. jss@frettabladid.is Norrænir lögreglu- nemar vinna saman Samstarfsverkefni lögreglunema á Norðurlöndum um afbrotavarnir er hið fyrsta sinnar tegundar. Um 130 nemar taka þátt í því. Af þeim eru á fjórða tug nemar í Lögregluskóla ríkisins. Norrænt samstarf nær til fleiri þátta. MENNING Mínútuverð sem Ríkis- útvarpið greiðir fyrir efni sjálf- stæðra kvikmyndagerðarmanna hefur lækkað um sjötíu prósent, sé miðað við framreiknaða vísitölu frá árinu 1994. Þrjú félög, Félag kvikmynda- gerðarmanna, Samtök kvikmynda- leikstjóra og Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, undirbúa nú heildstætt samkomulag við RÚV, meðal annars um kaup á efni, dag- skrárstefnu RÚV og samstarf um framleiðslu. Hjámtýr Heiðdal, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna, segir hugmyndir að samkomulagi enn vera á tillöguformi. „Kvikmyndagerðarmenn héldu fund með RÚV þar sem vinnan var hafin við gerð samkomulags. Nú verður farið ofan í saumana á samnings atriðum,“ segir Hjálmtýr og bætir því við að þetta sé í fyrsta skipti sem ríkisstjórnin og kvik- myndabransinn geri heildstætt samkomulag sín á milli. „Það hafa áður verið gerðir samn- ingar um verktakavinnu og verð á heimildarmyndum, en engir samn- ingar hafa verið í gildi síðan árið 1992.“ Í þjónustusamningi milli mennta- málaráðuneytisins og RÚV er kveðið á um að RÚV eigi að kaupa verkefni af sjálfstæðum kvikmynda- framleiðendum fyrir 150 milljónir á næsta ári. Sú upphæð mun hækka árið 2011 og verður hún 250 milljón- ir. „Það er í krafti þessa samnings sem við óskum eftir samkomulagi og við viljum þannig hjálpa RÚV við að uppfylla þjónustusamning- inn.“ - eb Kvikmyndagerðarmenn vilja að RÚV hækki innkaupsverð kvikmynda: 70 prósenta lækkun á þrettán árum FULLTRÚAR ÍSLANDS Samstarfsverkefnið er aðeins einn þáttur norrænnar samvinnu lögregluskólanna. Nefna má einnig nem- endaskipti. Fulltrúar Íslands eru Ólafur Egilsson, lögreglufulltrúi við Lögregluskólann, og Pétur Berg Matthíasson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur hjá embætti ríkislögreglustjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR HJÁLMTÝR HEIÐDAL Segir enga samninga hafa verið í gildi frá árinu 1992.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.