Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 56
28 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Fær fjölskylda þín endurgreiðslu? Skráðu fjölskylduna á spron.is fyrir áramót og þú gætir tryggt henni endurgreiðslu þessa árs! FÓTBOLTI Íslendingaliðið West Ham gerði 1-1 jafntefli við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær á heimavelli sínum, Upton Park. West Ham tók forystu í leiknum á 20. mínútu þegar Carlton Cole náði að skora eftir slæm mistök Younes Kaboul, varnarmanns Tottenham. Kaboul missti boltann til Luis Boa Morte sem sendi inn fyrir vörnina á Norberto Solano, sem í stað þess að skjóta úr upp- lögðu færi gaf boltann út í teiginn á Carlton Cole sem skoraði í autt markið. Tottenham fékk þó sín færi og þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik átti sér stað umdeilt atvik þegar Tottenham vildi fá vítaspyrnu. Robert Green, markvörður West Ham, virtist fella Robbie Keane en Mike Riley dómari dæmdi ekki neitt. Leikmenn Tottenham mættu ákveðnir til seinni hálfleiks og Steed Malbranque fékk upplagt færi til að jafna leikinn strax á 50. mínútu, en hann skaut framhjá markinu úr góðu færi. Juande Ramos, stjóri Tottenham, var ekki að hika við hlutina heldur, því stuttu síðar tók hann varnarmann- inn Kaboul út af og setti sóknar- manninn Darren Bent inn á í hans stað. Skiptingin má segja að hafi borið árangur því Tottenham hélt áfram að sækja og náði loksins að jafna leikinn á 66. mínútu með skallamarki Michael Dawson eftir aukaspyrnu utan af vinstri kanti. Liðin skiptust svo á að sækja á lokakafla leiksins en illa gekk að nýta færin hjá leikmönnum lið- anna og allt stefndi í jafntefli. Í uppbótartíma dró hins vegar til tíðinda þegar varamaðurinn Jermain Defoe, leikmaður Totten- ham, féll í teig West Ham og Mike Riley dæmdi vítaspyrnu. Defoe, sem lék áður með West Ham, tók vítaspyrnuna sjálfur en Robert Green gerði sér lítið fyrir og varði vítið. En Green lék sama leikinn um daginn gegn Portsmouth við sömu aðstæður. - óþ West Ham og Tottenham skildu jöfn, 1-1, í miklum baráttuleik í ensku úrvalsdeildinni á Upton Park í gær: Green enn á ný bjargvættur West Ham HETJA OG SKÚRKUR Robert Green átti sök á marki Tottenham, en varði svo víta- spyrnu í lok leiks. NORDICPHOTOS/GETTY > Eggert Gunnþór í sviðsljósinu Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts í skosku deildinni, hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir góða spilamennsku. Í gær birtist viðtal við Eggert á opin- berri heimasíðu skoska liðsins og þar kvaðst Eggert vera ánægður með að hafa fengið tækifæri með A-landsliði Íslands. „Þetta var góð reynsla fyrir mig og mikill heiður og ég vona að ég fái fleiri tækifæri með landsliðinu á næstunni,“ sagði hinn bráðefnilegi Eggert Gunnþór, sem var á sínum stað í byrjunarliði Hearts í 1-1 jafnteflis leik gegn Gretna í gær. HK tapaði 36-24 gegn danska liðinu FCK frá Kaupmanna- höfn í Evrópukeppni félagsliða í handbolta í Kaup- mannahöfn í gærdag og er því úr leik í keppninni. „Ég er náttúrlega frekar svekktur með úrslitin, en tölurnar segja nú ekki allan sannleikann og við vorum lengi vel inni í leiknum,“ sagði Gunnar Magnússon, aðstoðarþjálfari HK, í viðtali við Fréttablaðið eftir leikinn í gær. „Það var í raun einn maður sem gerði algjörlega út af við okkur í leiknum og það var markvörður FCK, Steiner Ege, sem varði í kringum þrjátíu skot og þar af sex vítaskot og fjölmörg dauða- færi. FCK er náttúrlega frábært lið og við mættum því ágætlega í svona fjörutíu mínútur og svo gáfumst við bara upp og ég varð fyrir vonbrigðum með það,“ sagði Gunnar en kvaðst þó stoltur af liði HK. „Þetta hefur verið frábær reynsla fyrir ungt lið eins og okkur og klúbburinn má vera stoltur af leikmönn- um liðsins fyrir framgöngu sína í Evrópukeppninni. Þetta er nokkuð sem við byggjum á og við ætlum okkur að taka þátt í keppninni aftur við fyrsta tækifæri,“ sagði Gunnar og hrósaði jafnframt frábærum stuðningi sem HK fékk í leiknum. „Stuðningsmannahópur HK, Binnamenn, klikkar ekki og þeir sem og aðrir aðstandendur HK ytra fjölmenntu á leikinn og sungu í 60 mínútur og sköpuðu ótrúlega stemningu. Ég hef aldrei áður séð annan eins stuðning hjá útiliði í Evrópukeppn- inni og það var mikill sómi að þessu og skemmtileg upplifun fyrir mig og alla tengda HK-liðinu,“ sagði Gunnar ánægður. Augustas Strazdas var atkvæðamestur hjá HK með fimm mörk, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Gunnar Steinn Jónsson og Sergey Petraytis skor- uðu fjögur mörk hver og Egidijus Petkevicius varði 15 skot í markinu. Íslendingurinn í liði FCK, Arnór Atlason, skoraði eitt mark fyrir Kaupmannahafnar- liðið en það var eins og áður sagði markvörður liðsins sem stal senunni að þessu sinni. GUNNAR MAGNÚSSON, AÐSTOÐARÞJÁLFARI HK: ER STOLTUR AF HK-LIÐINU ÞRÁTT FYRIR STÓRT TAP GEGN FCK Í GÆR Binnamenn sköpuðu alveg ótrúlega stemningu FÓTBOLTI Dregið var í gær í riðla fyrir undankeppni Heimsmeist- aramótsins í fótbolta sem fram fer í Suður-Afríku árið 2010 og lentu Íslendingar í níunda riðli ásamt Hollandi, Skotlandi, Noregi og Makedóníu. Þetta er eini fimm liða riðillinn í undankeppninni. Ólafur Jóhannesson, landsliðs- þjálfari Íslands, var viðstaddur dráttinn í gær, sem fram fór í Durban í Suður-Afríku, ásamt þeim Geir Þorsteinssyni formanni og Þóri Hákonarsyni, fram- kvæmdastjóra Knattspyrnusam- bands Íslands, og voru þeir að mestu leyti sáttir með riðil Íslands. „Fyrstu viðbrögð mín eru að ég er mjög sáttur með niðurstöðuna og þetta eru flottar þjóðir sem við eigum eftir að spila á móti,“ sagði Geir í samtali við Fréttablaðið í gær. „Þetta eru vissulega allt mjög sterkar þjóðir en ég held samt að við eigum ágæta möguleika á móti þeim öllum og þá vitaskuld sér- staklega á heimavelli. Þetta er því sannarlega glæsilegt verkefni fyrir íslenska landsliðið, það er engin spurning,“ sagði Geir og Ólafur tók í sama streng. „Hollendingar eru náttúrlega frábær knattspyrnuþjóð og það verður gaman að mæta þeim, Skotar spiluðu vel í undankeppni Evrópukeppninnar og voru óheppnir að komast ekki áfram, en Ísland hefur tekið stig á móti þeim í undankeppnum áður og það er kostur. Norðmenn eru okkur auðvitað að góðu kunnir og þeir eru alltaf erfiðir. Ég verð nú bara að játa að ég þekki ekki mikið til Makedóníu, en við höfum oftast lent í miklum erfiðleikum með austantjaldsþjóðirnar þannig að þeir verða væntanlega mjög hættulegir,“ sagði Ólafur en kvaðst þó ósáttur með að hafa lent í eina fimm liða riðlinum í undan- keppninni. „Það hefði auðvitað verið betra að vera í sex liða riðli og fá fleiri leiki til að spila og því ljóst að við verðum að sætta okkur við að spila æfingarleiki þegar það verður okkar hlutskipti að sitja hjá í riðl- inum. Að sama skapi hefði auðvit- að verið betra að fá lið úr neðsta styrkleikaflokknum með í riðilinn af augljósum ástæðum, en við getum svo sem ekkert verið að kvarta. Á móti kemur að flest löndin í riðlinum okkar eru tiltölu- lega nálægt okkur sem ætti að bjóða upp á þægileg ferðalög og það er vissulega kostur,“ sagði Ólafur að lokum. omar@frettabladid.is Glæsilegt verkefni fyrir landsliðið Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari og Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, voru viðstaddir drátt fyrir undan- keppni Heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku árið 2010 í gær. Þeir félagar voru að mestu leyti ánægðir með riðilinn sem Ísland dróst í, 9. riðil, en hefðu þó vitanlega frekar kosið að vera í sex landa riðli. SÁTTIR Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari og Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, eru spenntir fyrir komandi verkefnum hjá íslenska landsliðinu sem spilar í níunda riðli í undankeppni HM. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UNDANKEPPNI HM 2010 Riðill 9: Holland Skotland Noregur Makedónía Ísland FÓTBOLTI Pétur Pétursson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, var viðstaddur beina útsendingu Sjónvarpsins frá drættinum í Durban í Suður-Afríku í gær og var virkilega sáttur með niður- stöðuna þegar Fréttablaðið tók tali af honum í gær. „Þetta er náttúrlega hörkuriðill, en það eru ýmsir möguleikar í stöðunni,“ sagði Pétur og ítrekaði að það hentaði Íslandi til að mynda vel að spila á móti bæði Skotum og Norðmönnum. „Þetta eru skemmtileg og sterk lið, en Skotar hafa til að mynda verið að spila 4-4-2 leikkerfið og það hentar okkur einhvern veginn ágætlega að mæta þeim. Það sama má segja um Norðmenn, að það hentar okkur vel að spila á móti þeim, sérstaklega saman- borið við frændur okkar Dani og Svía. Við fengum Makedóníu en ég held að menn séu almennt sáttir með að sleppa við lið eins og Króatíu, Rússland og fleiri þjóðir í Austur-Evrópu sem hafa reynst okkur erfiðar í gegnum árin,“ sagði Pétur, sem var sérstaklega sáttur með að Ísland lenti með Hollandi í riðli. „Ég var búinn að segja Óla að við myndum fá Hollendinga og það var draumaliðið mitt verð ég að játa, þó svo að flestir Íslend- ingar hafi líklega viljað fá Englendinga. Skemmtilegast hefði auðvitað verið að fá bæði liðin. Ég var náttúrlega atvinnu- maður með Feyenoord í hollensku deildinni og hef því fylgst vel með hollenskum fótbolta og það verður frábært að koma aftur á gamla heimavöllinn í Rotterdam þar sem Hollendingar spila heimaleiki sína,“ sagði Pétur. - óþ Pétur Pétursson: Frábært að fá Hollendinga SÁTTUR Pétur Pétursson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, var sérstaklega sáttur með að Ísland lenti í riðli með Hollendingum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.