Fréttablaðið - 26.11.2007, Qupperneq 47
MÁNUDAGUR 26. nóvember 2007
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Á fyrstu tíu mánuðum þessa árs
komu 413 þúsund erlendir ferða-
menn til Íslands í gegnum Kefla-
víkurflugvöll. Þetta er mun meiri
fjöldi en nokkru sinni fyrr. Aukn-
ingin nemur tæpum fimmtán pró-
sentum frá sama tíma í fyrra.
Í október síðastliðnum fjölg-
aði erlendum ferðamönnum um
tæp sjö prósent miðað við október
árið áður og munar þar mest um
fjölgun á meðal Norðurlandabúa
og Frakka.
Frá áramótum hefur verið mikil
fjölgun frá öllum helstu lönd-
um þar sem Ísland markaðssetur
ferðaþjónustu nema frá Banda-
ríkjunum og Japan.
Ársæll Harðarson, forstöðu-
maður markaðssviðs Ferðamála-
stofu, segir á vef Ferðamálastofu
að ánægjulegast sé að sjá vormán-
uði og haustmánuði halda áfram
að vaxa enda sé það frumskilyrði
fyrir aukinni arðsemi í ferðaþjón-
ustu.
Ársæll segir markvisst hafa
verið unnið að aukinni markaðs-
setningu á öllum mörkuðum í sam-
vinnu við atvinnugreinina en hins
vegar segir hann vinna gegn sam-
keppnishæfi Íslands að verðlag
virðist hækka meira hér en í sam-
keppnislöndunum.
Fjölgun
ferðamanna
ALDREI FLEIRI Fjöldi erlendra ferða-
manna sem fara í gegnum Keflavíkur-
flugvöll hefur aukist um 15,6 prósent á
fyrstu tíu mánuðum ársins miðað við
sama tíma í fyrra.
Reykskynjarar
á þúsund kall
(rafhlaða innifalin)!
Hvers virði er fjölskyldan?
990
krónur*
Reykskynjarar eru ódýrir. Auðvelt er að setja þá upp og halda þeim
við. Þeir eru mikilvægasta öryggistæki heimilisins. Skerandi vælið í
þeim hefur bjargað fjölmörgum mannslífum. Samt eru talsverð brögð
að því að reykskynjara vanti á íslensk heimili.
Eftir hverju ert þú að bíða?
Þú færð reykskynjara, slökkvitæki, eldvarnateppi og annan eldvarna-
búnað í byggingavöruverslunum, sérverslunum, hjá trygginga-
félögunum og víðar.
Er þér þá nokkuð að vanbúnaði?
Ítarlegar upplýsingar um eldvarnir heimilanna birtust í Eldvarnablaðinu
sem kom út með Morgunblaðinu 23. nóvember. Blaðið er að finna á
www.lsos.is. TM er samstarfsaðili LSS í Eldvarnaátakinu 2007.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐINwww.lsos.is
www.tm.is
*dæmi um verð í byggingavöruverslun 31.10.07 – á ekki við reykskynjarann á myndinni.