Fréttablaðið - 27.11.2007, Page 2
2 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
TRYGGINGAMÁL Verulegur aftur-
kippur er kominn í áform verka-
lýðshreyfingarinnar um nýjan
áfallatryggingasjóð og eru minni
líkur á því að samið verði um hann
í samningaviðræðunum sem nú
fara í hönd. Ýmislegt bendir til
þess að látið verði nægja að ganga
frá bókun um markmið til næstu
ára.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir að hörð
gagnrýni hafi komið fram frá líf-
eyrissjóðakerfinu, Öryrkjabanda-
laginu og félagsmálaráðherra auk
þess sem tryggingastærðfræðing-
ar hafi ekki veitt jákvæða umsögn.
Skiptar skoðanir hafi verið innan
verkalýðshreyfingarinnar þó að
stuðningur hafi farið vaxandi.
Ekki sé búið að taka endanlega
ákvörðun en sjóðurinn hafi þó
ekki verið afskrifaður ennþá.
Gylfi segir að óvissa og ágrein-
ingur hafi verið um framlag líf-
eyrissjóðanna í nýtt áfallatrygg-
ingakerfi. Upprunalega hafi það
verið tillaga lífeyrissjóðanna að
lækka iðgjöld um hálft prósent
og láta upphæðina renna í hinn
nýja áfallatryggingasjóð. Sam-
þykkt hafi verið að ganga ekki
lengra að sinni. „Engu að síður
hafa lífeyrissjóðirnir verið ósátt-
ir við þetta, sérstaklega þeir sem
hafa minnstu örorkubyrðina, Líf-
eyrissjóður verslunarmanna,
Sameinaði lífeyrissjóðurinn og
Lífeyrissjóðurinn Stafir,“ segir
Gylfi.
Miklar efasemdir hafi verið af
hálfu verslunarmanna um fjár-
mögnunina og hvort gengið sé of
langt í fyrsta skrefi. Þá hafi verið
hörð gagnrýni af hálfu Öryrkja-
bandalags Íslands. Gylfi segir að
félagsmálaráðherra hafi tekið
undir þann málflutning og sagst
ekki vilja stuðla að tvöföldu kerfi.
„Við botnum ekki í því hvað átt er
við,“ segir Gylfi.
„Ráðherra virðist ekki átta sig á
því að einstaklingurinn öðlast
engin réttindi í almannatrygg-
ingakerfinu fyrr en hann er búinn
að klára rétt sinn hjá atvinnurek-
anda og í sjúkrasjóði. Ef hann á
ekki slíkan rétt þá fær hann strax
rétt hjá almannatryggingum.
Þetta þýðir að fólk í stéttarfélög-
um nýtur minni réttinda hjá rík-
inu en fólk utan stéttarfélaga,“
segir Gylfi og bætir við: „Ef ráð-
herra er á móti áfallatrygginga-
kerfinu þá er hann kannski með
aðra breytingu í bígerð.“
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri
Lífeyrissjóðs verslunarmanna,
segir að málið sé á borði samn-
ingsaðila. Ekki náðist í Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herra í gær. ghs@frettabladid.is
- Áfallatryggingar taka til
trygginga vegna veikinda,
slysa og örorku.
- Núverandi fyrirkomulag
áfallatrygginga byggir á
tiltölulega löngum veikinda-
rétti hjá vinnuveitanda, síðan
tekur við bótatímabil hjá
sjúkrasjóði verkalýðsfélags
og að síðustu örorkukerfið
þar sem lífeyrissjóður og
almannatryggingar koma að
málum.
- Áfallatryggingasjóður á að
sjá um grunn framfærslu-
greiðslur, stýra þjónustu og
greiða kostnað við hana.
- Sá sem fyrir áfalli verður
mun á 5 ára tímabili njóta
framfærslugreiðslna og þjón-
ustu áfallatryggingasjóðs og
sjúkrasjóða en sé viðkomandi
varanlega utan vinnumark-
aðar að því tímabili loknu
taka almannatryggingar og
lífeyrissjóðir við eins og nú.
Jón Kristinn, er hægt að fá
hana á léttgreiðslum?
„Sem gamall svifflugmaður get ég
sagt: „Glider pilots do it quietly.“
Vafi lék á hver ætti að borga svifflugu
sem borgarstjóri afhenti talsmanni
Friðarstofnunar Reykjavíkur. Jón Kristinn
Snæhólm var aðstoðarmaður þáverandi
borgarstjóra.
SVEITARSTJÓRNIR Tólf metra langt
jólatré er nú á leið frá Drammen
í Noregi til Stykkishólms. Þetta
er í 42. skipti sem Drammen
sendir vinabæ sínum á Íslandi
grenitré fyrir jólin.
Á heimasíðu Drammen kemur
fram að tréð hafi verið fellt með
viðhöfn 19. nóvember. Þá voru
líka höggvin nokkur tré fyrir
bæinn sjálfan og eitt fyrir borg-
ina Kiel í þýskalandi sem einnig
er í vinabæjasambandi við
Drammen.
„Þetta kalla ég jólatrjáadipl-
ómatíu,“ segir Tore Opdal Hans-
en á heimasíðu Drammen. „Það
er notalegur siður að senda jóla-
tré til Íslands og Þýskalands. Og
það er líka gott að vita til þess að
trén úr Drammensfoldu mun
brátt gleðja stóra og smáa á torgi
Stykkishólms og Kiel.“
Von er á Drammen-trénu til
Stykkishólms í byrjun desember.
- gar
Stóra jólatréð frá Drammen á leiðinni til vinabæjarins Stykkishólms:
Notalegur siður segja Norðmenn
JÓLATRÉÐ FRÁ DRAMMEN
Stykkishólmur mun brátt
skarta glæsilegu jólatré frá
vinabænum Drammen.
MYND/DRAMMEN
ÓMISSANDI OG
AÐGENGILEG!
Aðgengileg uppflettibók með
skýringum á því hvernig þú
getur túlkað vísbendingar
um fortíð þína, nútíð og
framtíð í því sem fyrir ber
í vöku og draumi.
Eftir S
ímon
Jón Jó
hanns
son
höfun
d Stór
u
draum
aráðn
inga-
bókar
innar!
SLYS Bílvelta varð á Reykjanes-
braut við Kaplakrika í Hafnar-
firði um níuleytið í gærmorgun.
Slysið varð með þeim hætti að
ökumaður vörubíls sem hugðist
skipta um akrein ók ökutæki sínu
utan í fólksbíl sem ók við hliðina.
Við það snerist fólksbíllinn og valt.
Tækjabíll frá slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins var sent á
vettvang þar sem tilkynning
barst um að ökumaður væri
fastur í bíl sínum eftir veltuna, en
hann var einn í bílnum. Svo
reyndist ekki vera en ökumaður
var fluttur á slysadeild Landspít-
alans með minni háttar meiðsli.
- æþe
Bílvelta á Reykjanesbraut:
Snerist og valt
eftir árekstur
TÆKNI Tölvufyrirtæki á Hornafirði
hyggst bjóða upp á þráðlausar
nettengingar á Mýrum og hluta
Nesja og Suðursveitar innan tíðar.
Stefnt er því að þjónustan verði
tilbúin um miðjan desember.
Um nýjustu kynslóð þráðlausra
dreifineta er að ræða, svokallaða
WiMax tækni. Þetta er sú tækni
sem Fjarskiptasjóður telur
æskilega, en gerir þó ekki kröfur
um sökum kostnaðar.
Gert er ráð fyrir að mánaðar-
áskrift að almennri tengingu verði
um átta þúsund krónur fyrir
tveggja megabita tengingu. - æþe
Þráðlaust alnet í sveitir:
Samband kom-
ið á í desember
HOLLAND, AP Hollenskir gagn-
fræðaskólanemendur lentu í
átökum við óeirðalögreglu í
Amsterdam í gær þegar þeir
mótmæltu fyrirskipun stjórnvalda
um að lengri tíma skyldi varið í
kennslustofum.
Lögregla beitti vatnsþrýstislöng-
um gegn hópi nemenda sem grýttu
steinum, eplum og flöskum í
lögregluna. Fimmtán voru
handteknir og tveir lögreglumenn
slösuðust lítillega. - sdg
Átök lögreglu og nemenda:
Lengri skóla-
setu mótmælt
MÓTMÆLENDUR Lögregla greip til þess
að sprauta á mótmælendur úr vatns-
þrýstislöngum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Sameiginleg yfir-
lýsing sem fulltrúar Ísraels og
Palestínu hafa unnið árangurs-
laust að mánuðum saman virtist
vera í sjónmáli í gær, degi fyrir
alþjóðlega ráðstefnu um frið í
Mið-Austurlöndum sem fram fer í
Annapolis og Washington í Banda-
ríkjunum. Væntingar um árangur
á ráðstefnunni eru þó minni en
lagt var upp með í byrjun.
„Við komumst að samkomulagi
um skjalið í dag eða á morgun,“
sagði Yasser Abed Rabbo, hátt-
settur aðstoðarmaður Mahmoud
Abbas, forseta Palestínu, í samtali
við AP fréttastofuna í gær. Sagði
hann Bandaríkjamenn leggja hart
að báðum aðilum að ná lendingu
svo að hægt yrði að leggja yfirlýs-
inguna fram á ráðstefnunni.
Viðræður um yfirlýsinguna hafa
strandað á ósk Palestínumanna
um að í henni felist lokamarkmið
um landamæri, yfirráð yfir Jerús-
alem og örlög palestínskra flótta-
manna
Ísraelsmenn hafa viljað óljós-
ara orðalag um skuldbindingu við
friðsamlega sambúð tveggja ríkja
hlið við hlið. Þeir hafa þó lofað því
að semja um umdeildu málin í
formlegum viðræðum sem eiga að
fylgja í kjölfar ráðstefnunnar.
Mikið er lagt upp úr stuðningi
utanaðkomandi aðila við fyrirhug-
aðar viðræður og þykir stuðning-
ur Arababandalagsins við ráð-
stefnuna mjög mikilvægur, þó
hann hafi komið treglega til. - sdg
Útlit fyrir sátt um sameiginlega yfirlýsingu Ísraels og Palestínu á elleftu stundu:
Friðarráðstefna hefst í dag
FUNDUR LEIÐTOGA Mahmoud Abbas,
forseti Palestínu, og George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, hittust á fundi í
gær.
NORDICPHOTOS/AFP
Minnkandi líkur á
áfallatryggingasjóði
Afturkippur er kominn í áform verkalýðshreyfingarinnar um nýjan áfalla-
tryggingasjóð. Framkvæmdastjóri ASÍ segir ekki skrítið að efasemdir komi upp
þegar hugmyndirnar fái gagnrýni lífeyrissjóðakerfisins, öryrkja og ráðherra.
NÝTT FYRIRKOMULAG ÁFALLATRYGGINGA
ÓSÆTTI „Engu að síður hafa lífeyrissjóðirnir verið
ósáttir,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ.
Liðlega 32 prósentum ýsuaflans og
um tæplega 27 prósentum þorskafl-
ans var landað óslægðum á síðasta
fiskveiðiári. Af ýsu var mestu landað
óslægðu í Sandgerði, Ólafsvík, Skaga-
strönd og Bolungarvík. Af þorski var
mestu landað óslægðu í Sandgerði,
Ólafsvík, Hornafirði og Bolungarvík.
SJÁVARÚTVEGUR
Þriðjungi ýsu landað óslægðri
FJÖLMIÐLAR Siðanefnd Blaðamanna-
félags Íslands hefur úrskurðað að
blaðamenn megi tjá sínar persónu-
legu skoðanir á bloggsíðum.
Með þessu vísar félagið frá
kæru Rannveigar Rist, forstjóra
Alcans, á hendur blaðamanninum
Þórði Snæ Júlíussyni, vegna skrifa
á bloggsíðu, sem margir einstakl-
ingar munu sjá um.
Nafn Þórðar var ekki tengt
skrifunum, sem sögðu Rannveigu
meðal annars „daðra við að vera
þroskaheft“.
Siðanefndin segir að blaðamenn
beri vissulega ábyrgð á skoðunum
sínum, en þær tengist ekki
endilega blaðamennskunni. - kóþ
Kæru Rannveigar vísað frá:
Blaðamenn
mega tjá sig
Starengi græði á félagskerfi
Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi
óttast að verktakafyrirtækið Star-
engi sé að reyna að stinga afslætti
af opinberum gjöldum í eigin vasa.
Það hafi fengið afsláttinn til að reisa
námsmannaíbúðir en ætli nú að selja
þær á fullu verði til ríkisins.
REYKJAVÍK
Út er komið ritið Silfur hafsins – Gull
Íslands – Síldarsaga Íslendinga. Sagan
er þrjú bindi í veglegri öskju, 1.104
blaðsíður í stóru broti með um 800
myndum og teikningum. Í verkinu er
rakin saga síldveiða og -vinnslu frá
fyrstu tíð.
BÓKMENNTIR
Síldarsaga komin út
SPURNING DAGSINS