Fréttablaðið - 27.11.2007, Qupperneq 4
4 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
PAKISTAN, AP Nawaz Sharif og
Benazir Bhutto, sem bæði eru
fyrrverandi forsætisráðherrar í
Pakistan, skráðu í gær framboð
sitt til þingkosninga í janúar.
Bæði höfðu þau
hótað því að taka
ekki þátt í
kosningunum, og
Sharif ítrekaði í
gær að þótt hann
hefði skráð sig í
framboð gætu
stjórnarandstæð-
ingar enn tekið
höndum saman og
hunsað kosning-
arnar, segði Pervez Musharraf
forseti ekki af sér.
Sharaf ítrekaði jafnframt að
jafnvel þótt hann sigraði í
kosningunum myndi hann ekki
verða forsætisráðherra yrði
Musharraf áfram forseti.
Talsmaður Musharrafs sagði í
gær að forsetinn myndi líklega á
fimmtudag segja af sér sem æðsti
yfirmaður hersins. - gb
Bhutto og Sharif í Pakistan
Hafa skráð sig
í þingframboð
BENAZIR BHUTTO
GENGIÐ 26.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
122,0745
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
62,2 62,5
128,71 129,33
92,4 92,92
12,393 12,465
11,536 11,604
9,957 10,015
0,573 0,576
99,32 99,92
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SAMGÖNGUR British Airways
hættir áætlunarflugi milli
Keflavíkur og London þegar
vetraráætlun félagsins á flugleið-
inni lýkur 28. mars á næsta ári.
Í tilkynningu frá British
Airways er það haft eftir Peter
Rasmussen, viðskiptastjóra
flugfélagsins fyrir Skandinavíu og
Ísland, að áætlunarflugið milli
landanna sem staðið hefur frá því í
lok mars 2006 hafi ekki verið nógu
ábatasamt.
Þeim sem eiga bókað flug með
British Airways til og frá Keflavík
eftir 28. mars 2008 verður boðin
breyting á bókun eða full endur-
greiðsla. - gar
British Airways:
Íslandsflugið er
ekki ábatasamt
LÖGREGLUMÁL Sendibifreið fauk af
hringveginum og valt tvær veltur
undir Hafnarfjalli um klukkan
fjögur í fyrrinótt. Bílstjórinn
komst sjálfur út úr bifreiðinni og
kom annar vegfarandi honum til
hjálpar. Hann var sendur á
Sjúkrahúsið á Akranesi en var
útskrifaður síðar um daginn.
Mikið hvassviðri var á svæðinu
og náðu vindhviður yfir 50 metra
á sekúndu að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi. Eftir velturnar tvær
endaði bíllinn á hliðinni en þegar
lögregla kom að honum öðru sinni
hafði vindurinn feykt honum á
hjólin aftur. Fjölmargir bílstjórar
á leið til Reykjavíkur tóku því
þann kostinn að bíða í Borgarnesi
uns veður lægði og mátti því sjá
fjölda flutningabíla við Borgar-
fjarðarbrú og á bílaplaninu við
Hyrnuna á meðan bílstjórar
leituðu lags. - jse
Fárviðri á Vesturlandi:
Sendibíll valt
við Hafnarfjall
ILLA ÚTLEIKIN Í ROKINU Bifreiðin var
á hliðinni þegar bílstjórinn slapp út en
skömmu síðar hafði vindhviða skellt
henni aftur á hjólin.
LANDBÚNAÐUR Sigurður Haukur Jónsson, bóndi í
Skollagróf í Hrunamannahreppi, bíður nú átekta
eftir að riða greindist á bænum. Sigurður á um
300 kindur séu lömbin talin með og til stendur að
farga þeim.
„Þetta er vissulega áfall en maður tekur þessu
eins og öðru sem á manni dynur. Þetta er erfitt
og við erum búin að vera með þennan bústofn
lengi. Ég hef átt kindur hér frá því ég man eftir
mér. Það stendur til að skera niður fé en það er
svo sem ekki búið að tilkynna okkur mikið annað
en að þetta hafi greinst,“ segir Sigurður. Enn
hefur ekki fundist staður til að farga kindunum
og því ekki vitað hvenær það verður gert. Þá er
ekki vitað hvenær svæðið verðu sótthreinsað.
Eftir að svæðið verður sótthreinsað er bannað
að halda þar fé næstu tvö árin og setur það
óneitanlega strik í reikninginn í búskap Sigurðar
og fjölskyldu. Sigurður hefur búið í Skollagróf
frá fæðingu og tók við búi af foreldrum sínum.
„Við eigum eftir að átta okkur á hlutunum og
hvað við þurfum að gera í sambandi við hreinsun
og sótthreinsun, til dæmis hvort við þurfum að
rífa fjárhúsin og svo framvegis. Við erum svo
sem ekki farin að hugsa þetta til framtíðar enn
þá en ætlum þó að halda áfram búskap. Við erum
með kýr og hross sem eru okkar aðalbúgrein,“
segir Sigurður.
Þegar riða kemur upp á bæjum er ríkið
skyldugt til að greiða bætur en þetta hefur þó
alltaf áhrif á búskapinn.
„Þeir sem hefur verið skorið niður hjá hér í
kring hafa ekki allir verið ánægðir með þá
samninga sem þeir hafa fengið en ég hef ekki
enn kynnt mér þá hlið á málinu,“ segir Sigurður.
- hs
Sigurður Haukur Jónsson bóndi í Skollagróf í Hrunamannahreppi bíður átekta eftir að riða greindist:
300 fjár verður fargað vegna riðusmits
RIÐUSMIT Um 300 kindum og lömbum á bænum Skolla-
gróf í Hrunamannahreppi verður fargað vegna riðusmits.
REYKJAVÍK Upphaf þess að eitt
fyrirtæki var fengið til að inn-
heimta vangoldin fasteignagjöld í
Reykjavík, án útboðs og formlegr-
ar verðkönnunar, má rekja til
fundar sem fulltrúi fyrirtækisins
átti með aðstoðarmanni borgar-
stjóra.
„Momentum óskaði eftir fundi
við mig, sem ekki gekk eftir. Þá
funduðu þeir með Jóni [aðstoðar-
manni borgarstjóra] og hann
kynnti þetta fyrir mér. Síðan bað
ég um að sviðsstjóri fjármála-
sviðs skoðaði þetta mál, enda
hafði verið umræða hjá sviðinu
um að hagræða og spara. Hann
fór yfir þetta og gaf jákvæða
umsögn. Annars hefðum við aldrei
gert þetta,“ segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, fyrrverandi borg-
arstjóri. Samningsdrögin hafi
síðan verið kynnt og samþykkt í
borgarráði.
Fram hefur komið í Fréttablað-
inu að nýtt fyrirkomulag inn-
heimtu vangoldinna fasteigna-
gjalda geti þýtt að einkafyrirtæki
leggi allt að 43 prósent ofan á hin
opinberu gjöld og kalli það inn-
heimtukostnað og ítrekunargjald.
Er þá virðisaukaskattur meðtal-
inn, en dráttarvextir ekki.
Einnig hefur komið fram að
þáverandi fjármálastjóri borgar-
innar taldi ekkert athugavert við
að samið væri beint við eitt fyrir-
tæki. Tíðkast hafi að útdeila verk-
efnum á þann hátt hjá borginni.
Vilhjálmur tekur í sama streng.
Í mörg ár hafi borgin nýtt einka-
fyrirtæki til að innheimta opinber
gjöld og þau verkefni hafi ekki
heldur verið boðin út. Honum hafi
því þótt í lagi að leyfa Momentum
að gera þetta án útboðs, enda um
tveggja ára tilraunaverkefni að
ræða. Borgarráð hafi síðan rætt
um að bjóða þetta út eftir tvö ár.
Fyrrverandi borgarstjóri telur
ekki að neinar reglur hafi verið
brotnar, en kjörorð borgarinnar
um góða nýtingu fjármuna felur í
sér að leitað skuli hagkvæmustu
leiða í hvert sinn. Samkvæmt
stefnu Reykjavíkur um verklag og
gegnsæja stjórnsýslu skal svo
gæta jafnræðis- og samkeppnis-
sjónarmiða. „Embættismennirnir
litu yfir þetta og gerðu ekki
athugasemdir við þessa aðferð,“
segir Vilhjálmur.
Jón Kristinn Snæhólm, þáver-
andi aðstoðarmaður borgarstjóra,
segir sömuleiðis að fjármálasvið
hafi séð um sjálfa samningagerð-
ina. Því hafi verið „alveg klárt að
við töldum okkur ekki vera að
brjóta neinar reglur“. Hann veit
ekki til þess að oftar hafi verið
samið beint við eitt fyrirtæki í
sinni starfstíð. klemens@frettabladid.is
Momentum fundaði
með aðstoðarmanni
Momentum fundaði á sínum tíma við aðstoðarmann borgarstjóra og bauðst til
að innheimta vangoldin fasteignagjöld. Þá var minnisblað sent embættismönn-
um til umsagnar. „Töldum okkur ekki brjóta neinar reglur,“ segir Jón Kristinn.
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Hér hefur tíðkast að semja beint við ýmis einkafyrirtæki
í áranna rás, þrátt fyrir háleit markmið um útboð, jafnræðisreglu og samkeppnis-
sjónarmið. MYND/ÚR SAFNI
Hafin er í Suður-Ameríku lokatil-
raun til að hafa uppi á fyrrverandi
meðlimum þýska nasistaflokksins
sem eru sekir um stríðsglæpi í seinni
heimsstyrjöldinni. Herferðir verða
reknar í fjölmiðlum og féverðlaunum
heitið fyrir upplýsingar sem leiða til
sakfellingar. Talið er að fjöldi nasista
hafi flúið til Chile, Úrúgvæ, Argentínu
og Brasilíu eftir stríðið.
SUÐUR-AMERÍKA
Leitað að nasistum
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
JÓN KRISTINN
SNÆHÓLM