Fréttablaðið - 27.11.2007, Side 12

Fréttablaðið - 27.11.2007, Side 12
12 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR FASTEIGNIR Íbúðalánasjóður á sex- tíu og þrjár íbúðir á landinu. Tæp- lega helmingur þeirra er á Aust- urlandi og mjög margar eru á Norðurlandi. Hallur Magnússon, sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði, segir að íbúð- irnar hafi komist í eigu sjóðsins þar sem rekstraraðilar eða ein- staklingar hafi orðið gjaldþrota. Fáar íbúðir séu frá 2002-2003, ein á Raufarhöfn og önnur í Vestur- byggð, en annars hafi þær komist í eigu sjóðsins í ár og í fyrra. „Það sýnir að þessar íbúðir koma inn og fara út aftur.“ Íbúðalánasjóður á þrjátíu íbúðir á Austurlandi, fyrst og fremst í Neskaupstað og Höfn í Hornafirði. Þá á hann tuttugu íbúðir á Norður- landi. Aðeins fáar íbúðir eru í eigu sjóðsins í öðrum landshlutum. Hallur segir að íbúðum í eigu sjóðsins hafi fækkað upp á síð- kastið, í september hafi íbúðirnar verið 65 og nú séu þær 63. Í Neskaupstað hafi leigufélag orðið gjaldþrota. Það hafi átt þrettán leiguíbúðir og leigjendur séu í þeim öllum. Hjá sjóðnum liggi umsóknir um lán til íbúða- kaupa í Neskaupstað þannig að þörfin sé til staðar. Á Hornafirði á sjóðurinn níu íbúðir vegna leigufélags sem varð gjaldþrota, í Dalvík eru níu íbúðir, á Raufarhöfn eru fjórar íbúðir, í Ólafsfirði eru tvær íbúðir í eigu sjóðsins og tvær á Akureyri. Þá á sjóðurinn þrjár íbúðir í Sandgerði og tvær í Reykjanesbæ og svo eru aðrar íbúðir á víð og dreif um landið. - ghs MENNTUN Háskóli Íslands og Matvælarannsóknir Íslands (Matís) munu vinna saman að því að efla rannsóknir og menntun í matvælafræðum, matvælaverk- fræði, líftækni og matvælaöryggi samkvæmt samningi sem undirritaður var á föstudag og vottaður af Einari K. Guðfinns- syni sjávarútvegsráðherra. Markmið samningsins er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs, bæta lýðheilsu og tryggja matvæla- öryggi og sjálfbæra nýtingu. umhverfisins. - eb Efling matvælarannsókna: Háskóli Íslands og Matís semja ÁNÆGÐIR ELDRI BORGARAR Félag eldri borgara fær afnot af félags- og þjónustu- miðstöð á Nesvöllum í Reykjanesbæ. REYKJANESBÆR Félag eldri borgara hefur gert þjónustusamning við Reykjanesbæ um afnot af nýrri félags- og þjónustumiðstöð á Nesvöllum. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið í mars á næsta ári, en Félag eldri borgara hefur komið að skipulagningu þess síðan árið 2005. Byggður verður upp 2.500 fermetra kjarni með þjónustumið- stöð, útivistarsvæði og húsnæði. Tómstundaaðstaða eldri borgara verður þá komin á einn stað. Kemur hún til með að leysa af hólmi húsnæði á ýmsum stöðum í bæjarfélaginu. - eb Félag eldri borgara: Allt á einn stað UPPBOÐSÍBÚÐIR í eigu Íbúðalánasjóðs Höfuðborgarsvæðið 1 Suðurnes 5 Vesturland 2 Vestfirðir 2 Norðurland 20 Austurland 30 Suðurland 3 Samtals 63 HEIMILD: ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Íbúðalánasjóður eignast íbúðir vegna gjaldþrota einstaklinga og fyrirtækja: Íbúðalánasjóður á 63 íbúðir um allt land HALLUR MAGN- ÚSSON „Þessar íbúðir koma inn og fara út aftur.“ DRENGUR Í AFGANISTAN Þessi drengur í bænum Pakitta í Afganistan heldur á teppi, skóm og öðrum varn- ingi sem hann fékk hjá bandarískum hermönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKÓLAMÁL Erfiðlega hefur gengið að manna grunnskóla í Hafnarfirði í vetur. Fimm kennara vantar í Áslandsskóla frá og með áramót- um. Tveir kennarar hafa sagt upp störfum vegna óánægju með laun en þrír fara í barnsburðarleyfi eftir áramót. Í Hvaleyrarskóla hafa tveir kennarar sagt upp en líklega er búið að ráða í fólk í þeirra stað. Einn kennara vantar í Hraunvalla- skóla en nýbúið er að ráða forfalla- kennara. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir að óvenjuerfitt hafi verið að manna skólana í vetur. Miklar uppsagnir hafi verið í haust og búast megi við að þannig verði það allt skólaár- ið. Leifur S. Garðarsson, skólastjóri Áslandsskóla, segir að hingað til hafi verið eft- irsótt að starfa í Áslandsskóla og umsóknum rignt inn en nú vanti kennara í skól- ann. Hann telur að kennarar séu búnir að fá nóg af lélegum kjör- um og gagnrýn- ir upplýsinga- skort. „Kennarasam- bandið ætlar að kynna kröfu- gerð sína í janúar en það er of seint,“ segir Leifur og kveðst hafa á tilfinningunni að samninganefnd sveitarfélaga sé óvilhöll grunn- skólanum, það sé „þvílíkur fórnar- kostnaður í hverjum aur enda hafa kennarar aldrei fengið krónu í kauphækkun upp á síðkastið, það er alltaf verið að kaupa af þeim vinnu. Fólk er orðið þreytt á því að launin eru aldrei leiðrétt. Kennar- ar eru búnir að dragast svo mikið aftur úr að það er betur metið að moka skurð eða svara í síma,“ segir hann. Helgi Arnarson, skólastjóri Hval- eyrarskóla, kannast við umræður um launamál og meintan flótta kennara úr stéttinni. Á atvinnuaug- lýsingum megi sjá að ástandið sé víða slæmt. Haraldur Haraldsson, skólastjóri Lækjarskóla, segist finna óróleika meðal kennara og krossar fingur, sér sé ekki rótt. „Ég finn fyrir þreytutóni í mínu fólki gagnvart kjörum sínum og skil það vel. Lækj- arskóli er vel settur en það má ekki mikið út af bera. Ég held að ástand- ið geti orðið grafalvarlegt og vona bara að það verði ekki liðhlaup úr skólum landsins,“ segir hann. Kjarasamningar kennara og skólastjóra eru lausir 31. maí og hefjast kjaraviðræður um miðjan febrúar. Ólafur segir kennara leggja áherslu á launahækkun enda hafi þeir mátt þola kaupmáttar- rýrnun upp á tæp sex prósent upp á síðkastið. ghs@frettabladid.is Uppsagnir hjá kenn- urum vegna launa Óróleiki er í kennurum í Hafnarfirði út af lélegum launum. Í Áslandsskóla er mönnun óvenju erfið. Þar hafa tveir kennarar sagt upp vegna kjaramála. Skólastjórinn segir kennara þreytta á að fá aldrei leiðréttingu launa. TVEIR SAGT UPP Ástandið er óvenjuslæmt í Áslandsskóla en þar hafa tveir kennarar sagt upp vegna lélegra launa og þrír eru á leið í barneignarleyfi. Starfsumsóknum kennara hefur venjulega rignt þar inn og því er ástandið óvenjulegt. ÓLAFUR LOFTSSON LEIFUR S. GARÐARSSON BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórnvöld hafa allt frá árinu 1977 reynt að vísa John Demjanjuk, fyrrverandi bifreiðasmið í Cleveland, úr landi vegna gruns um að hann hafi verið fangavörður í útrýmingarbúðum nasista. Nú á fimmtudaginn hefjast vitnaleiðslur enn á ný fyrir dómstóli þar sem Demjanjuk, sem orðinn er 87 ára, reynir að fá nýjasta brottvísunarúrskurðinum hnekkt. Demjanjuk, sem er upphaflega frá Úkraínu og var skírður Ívan, var framseldur til Ísraels árið 1986 og hlaut þar dauðadóm. Hann sneri þó aftur til Cleveland árið 1993 eftir sjö ára fangavist þegar hæstiréttur Ísraels hafði komist að þeirri niðurstöðu að hann væri ekki Ívan Marsjenko, hinn illræmdi fangavörður í Treblinka sem jafnan var nefndur Ívan grimmi. Fyrir því væru ekki nægar sannanir, þótt á fjórða tug fyrrverandi fangavarða og fanga hefðu sagt það. Demjanjuk hefur alla tíð haldið því fram að hann hafi sjálfur verið fangi nasista í Treblinka, en verið neyddur til að starfa þar sem fangavörður. Hann hafi þó ekki farið illa með nokkurn mann. Bandaríkjastjórn vill vísa honum úr landi, til Úkraínu, Póllands eða Þýskalands, á þeim forsendum að hann hafi komið á fölskum forsendum til landsins. Hann hafi nefnilega ekki greint frá því þegar hann kom að hann hafi verið fangavörður hjá nasistum. - gb Þrjátíu ára málaferli gegn fyrrverandi fangaverði í útrýmingarbúðum nasista: Berst enn gegn brottvísun SÝKNAÐUR Í ÍSRAEL Hæstiréttur Ísraels taldi John Demjanjuk ekki vera Ívan grimma. NORDICPHOTOS/AFP FINNLAND Yfirmaður norska hersins, Sverre Diesen hershöfð- ingi, telur að Atlantshafsbanda- lagið (NATO) eigi að gefa samstarfslöndum á borð við Finnland upplýsingar sem nú eru einungis gefnar löndum innan NATO. Þetta kemur fram í Helsingin Sanomat. „Ef löndin senda sveitir í sömu verkefni og bera sömu ábyrgð og NATO-löndin þá eiga þau skilyrðislaust að fá sömu upplýsingar,“ segir Diesen. - ghs Yfirmaður norska hersins: Finnar fái upp- lýsingar NATO Ég held að ástandið geti orðið grafalvarlegt og vona bara að það verði ekki lið- hlaup úr skólum landsins. HARALDUR HARALDSSON SKÓLASTJÓRI LÆKJARSKÓLA Góður hundur á gott skilið Hunda nammi (harðfisktöflur) Hunda bitafiskur Íslensk framleiðsla úr úrvals hráefni. Fæst í Bónus Ólöglegar fóstureyðingar Sex voru handteknir þegar lögreglan á Spáni gerði áhlaup á staði þar sem talið er að gerðar séu ólöglegar fóst- ureyðingar. Á Spáni eru fóstureyðing- ar aðeins leyfilegar ef um er að ræða nauðgun, vansköpun fósturs eða ef heilsa konunnar er í hættu. SPÁNN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.