Fréttablaðið - 27.11.2007, Side 16

Fréttablaðið - 27.11.2007, Side 16
16 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR Svona erum við fréttir og fróðleikur > Hreindýraveiði 1995 - 2005. HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS 26 0 35 7 32 9 55 3 FRÉTTASKÝRING SVAVAR HÁVARÐSSON svavar@frettabladid.is 79 9 1995 1997 2000 2002 2005 Íslenskir lögreglunem- ar eiga nú í fyrsta skipti samstarf um afbrotavarnir við lögreglu- nema á hin um Norð- urlöndun- um. Hverju skilar svona samstarf? Þetta skilar sér í þekkingu nemenda á aðferðum lögreglu í nágranna- löndunum. Þar má oft finna atriði sem gætu nýst vel hér á landi svo menn séu ekki að finna upp hjólið aftur. Að auki myndast vonandi gott samband milli þess- ara nema, sem getur auðveldað upplýsingaflæði. Eru afbrotavarnir í svipuðum farvegi á Norðurlöndunum? Nám í lögregluskólunum á Norðurlöndunum er ólíkt, það er til dæmis þriggja ára nám í Noregi. Segja má að kennslan á sviði afbrotavarna standi fremst í Noregi og Svíþjóð. Er þetta upphafið að frekara samstarfi lögreglunema? Verkefnið hefur gengið mjög vel og við erum ánægð með það. Það sem var erfiðast var að sam- ræma, til dæmis voru nemarnir í Noregi á öðru ári en Íslending- arnir og Finnarnir á fyrsta ári. Það eru miklir möguleikar fólgnir í frekara samstarfi, en við höfum ekki ákveðið hvort við höldum þessu áfram. Þetta sýnir þó að það er hægt að eiga svona samstarf. SPURT & SVARAÐ SAMVINNA LÖGREGLUNEMA Finna ekki upp hjólið PÉTUR BERG MATTHÍASSON Stjórnmála- og lögsýslufræðingur hjá embætti ríkislög- reglustjóra. Offita er ört vaxandi heil- brigðisvandamál og Ísland er þar engin undantekn- ing. Meirihluti fullorðinna Íslendinga er yfir kjör- þyngd og hlutfall þeirra sem eru í offituflokki er komið yfir þau mörk sem Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin (WHO) skilgrein- ir sem of fitufarald. Þróunin er einna verst hjá yngri aldurshópum. Þetta kem- ur fram í nýrri bók Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur, doktors í heilsuhagfræði, Holdafar – hagfræðileg greining. Birtingarmynd holdafarsþróunar- innar er margþætt fyrir einstakl- inga, atvinnumarkaðinn og fleiri svið samfélagsins. Aukinn kostn- aður heilbrigðiskerfisins er eitt þeirra vandamála sem taka þarf tillit til en án afdrifaríkra inngripa munu breytingar á holdafari leiða til mikillar útgjaldaaukningar innan heilbrigðis- og trygginga- kerfisins. Sívaxandi kostnaður Offitusjúklingar þjást af fjölmörg- um fylgisjúkdómum. Há tíðni fylgikvilla leiðir til aukinnar notk- unar á heilbrigðisþjónustu, meiri lyfjanotkunar og skerts starfs- þreks þeirra sem glíma við vand- ann. Er þetta sérstakt áhyggjuefni sérfræðinga í lífvísindum og heil- brigðisyfirvalda um allan heim, og þá sérstaklega á Vesturlöndum. Offita getur haft í för með sér verulegan heilsubrest og af sjúk- dómum sem henni fylgja má nefna kvilla í stoðkerfi, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma, gall steina og gigt, og ýmis krabbamein eru líklegri til að hrjá þá sem eru of feitir. Talið er að offita einstaklings auki notkun hans á heilbrigðis- þjónustu innan sem utan sjúkra- húsa um 36 prósent og lyfjanotkun um 77 prósent. Heildarkostnaður við offitu og fylgikvilla hennar er yfirleitt talinn nema um 6 prósent- um af útgjöldum ríkja til heil- brigðismála en þó hefur þetta mat jafnvel farið upp í 9 prósent í sumum löndum. Við hverja aukn- ingu meðallíkamsþyngdarstuðuls Íslendinga um eitt stig mun árleg- ur ytri heilbrigðiskostnaður á Íslandi hækka um tæpa tvo millj- arða. Rúmlega helmingur Íslendinga er yfir kjörþyngd og rúmlega 15 prósent eiga við offitu að stríða samkvæmt skilgreiningum WHO. Þó skal það tekið fram að einstakl- ingar eru líklegir til að draga úr líkamsþyngd í könnunum og þegar tekið er tillit til þessa er áætlað að allt að 23 prósent Íslendinga glími við offitu. Samkvæmt mælikvörð- um WHO er því ljóst að um offitu- farald er að ræða á Íslandi. Mest aukning hjá börnum Tinna Laufey telur að þyngdar- aukningin hafi verið mjög hröð síðasta einn og hálfan áratug og hröðust sé hún hjá börnum. Börn fá síður sjúkdóma tengda offitu en fullorðnir en þróunin veldur veru- legum áhyggjum þar sem offita á unga aldri eykur líkur á því að ein- staklingar glími við offitu á full- orðinsárum. Erlendar rannsóknir sýna að of þung börn eru 50-60 prósentum líklegri til þess að vera líka of þung þegar fullorðinsaldri er náð. „Börn sem eru of feit standa ekki jafnfætis öðrum börn- um. Í ljósi þess þarf að stuðla að heilbrigðum lífsstíl hjá börnum, burtséð frá samfélags- og efna- hagslegri stöðu fjölskyldna þeirra, því að öðrum kosti búa þau við innbyggðan ójöfnuð allt sitt líf,“ segir Tinna Laufey. Hún telur að hér á landi séu mikil sóknarfæri vegna mikillar þátttöku íslenskra barna í skólakerfinu. Skólar og dagheimili séu mikilvægir mótun- arstaðir sem geti ráðið úrslitum um hegðun barna þegar kemur að hreyfingu og mataræði. Leiðir til umbóta Ein meginniðurstaða Tinnu Lauf- eyjar í bókinni er að mikilvægt sé að skapa umhverfi sem auðveldar fólki að hreyfa sig, auk þess að virkja heilbrigða lifnaðarhætti almennt. Þetta sé afar mikilvægur þáttur til að sporna við offitu og auknum krónískum sjúkdómum sem henni fylgja. Tinna bendir á að margt bendi til að aðgengi að almenningsgörð- um, samgöngukerfi, leikvöllum, skólum og leikskólum hafi áhrif á viðhorf fólks til hreyfingar og hollustu. Samgöngumál sem bein- ast að einstaklingnum sjálfum og tækifærum hans til að hreyfa sig eru því mikilvægt áhersluatriði. Þetta skuli stjórnvöld taka til athugunar vegna þess að það að ganga eða hjóla stuttar vegalengd- ir sameinar hreyfingu og daglegt líf og stuðlar að heilbrigði fólks á öllum aldri. Tinna Laufey leggur einnig afar mikið upp úr því að beina forvarnaraðgerðum að börn- um. Tryggja þurfi að þau fái sem bestar upplýsingar og geti það haft úrslitaáhrif á þróun mála til framtíðar. Ástæðan er meðal ann- ars sú að þyngdartap getur verið mjög erfitt á fullorðinsárum og aðgerðir sem beinast að fullorðn- um eru því oft mjög kostnaðar- samar miðað við þann árangur sem næst. TINNA LAUFEY ÁSGEIRSDÓTTIR, DOKTOR Í HAGFRÆÐI Hefur undanfarin ár rannsakað heilsu og vinnumarkað í íslensku og alþjóð- legu samhengi. Tinna Laufey starfar sem sérfræðingur við Hagfræðistofnun og veitir meistaranámi í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands forstöðu. Hún hélt kynningarfyrirlestur á vegum Lýðheilsustöðvar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Offita vaxandi vandi á Íslandi SJÖ TILLÖGUR TIL ÚRBÓTA 1. Gagnasöfnun um heilsu, heil- brigði og lífsstíl verði efld til muna og hún samræmd yfir lengri tímabil. 2. Í kjölfar stórefldrar gagnasöfnunar verði leitað leiða til að styðja við bakið á rannsakendum, til dæmis með aðgengi að umræddum gögnum. 3. Stuðlað verði að því að öll börn og unglingar hafi auðvelt aðgengi að hollu mataræði á skólatíma. 4. Settar verði takmarkanir á mark- aðsdreifingu hitaeiningaríkrar fæðu sem beint er að börnum. 5. Tryggt verði að öll börn og unglingar hafi auðvelt aðgengi að aðstöðu til hreyfingar. 6. Ákveðnar matvörur, svo sem drykkir sem innihalda viðbættan sykur, verði skattlagðar í samræmi við almenna skattheimtu í landinu. 7. Umhverfis- og skipulagsmál verði miðuð að því að gera fólki kleift að stunda útiveru við ferðir á milli staða sem og í leik. * Helstu tillögur sem settar eru fram í bókinni Holdafar – hagfræðileg greining. Íbúðalánasjóður hefur hækkað vexti lána sinna í kjölfar hækkana á fasteignalánum bankanna. Sérfræðingar telja fyrirsjáanlegt að eftirspurn eftir lánum til íbúðakaupa dragist tímabundið saman. Hvað þarf til að fá lán? Forsenda fyrir láni frá Íbúðalánasjóði er að fara í mat á greiðslugetu. Hægt er að sjá eigið mat með því að færa inn upplýsingar um tekjur, eignir og útgjöld í reiknivél á heimasíðu sjóðsins. Staðfest- ing á greiðslumati og lánshæfi er send um leið og upplýsingar hafa verið vistaðar og beðið um staðfestingu. Hversu há eru lánin? Lánsupphæð er 18 milljónir að hámarki. Veðsetn- ingarhlutfall er mest 80 prósent af kaupverði en má ekki vera meira en svarar til brunabótamats eignarinnar og lóðamatsins. Vextir eru nú 5,30 prósent með þeim skilmálum að greiða þarf sérstakar þóknanir fyrir uppgreiðslu lánsins og aukaafborganir gegn uppgreiðsluþóknun. Vextirnir eru hins vegar 5,55 prósent ef uppgreiðsla og aukaafborganir eru endur- gjaldslausar. Lánin er að auki verðtryggð. Lánstíminn er 20, 30 eða 40 ár. Hvað þarf að greiða í upphafi? Borga þarf 1 prósent í lántökugjald og 1,5 prósent í stimpilgjald. Af 15 milljóna króna láni er þessi upphæð samtals 375 þúsund krónur. Hægt er að velja um 4 eða 12 gjalddaga á ári. Útsend- ur greiðsluseðill kostar 195 krónur í hvert sinn en rafrænn greiðsluseðill kostar 160 krónur. Heimild: Íbúðalánasjóður FBL-GREINING: ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Átján milljónir eru hámarkslán

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.