Fréttablaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 27.11.2007, Blaðsíða 24
[ ]Bókastandur getur komið sér vel í ýmsum aðstæðum. Gott er að hafa bókastand fyrir uppskriftabókina þegar verið er að elda eða baka og einnig getur verið gott fyrir námsmenn að nota bókastand til að koma í veg fyrir bakverk. Átök íslams, kristni og gyðing - dóms út frá stjórnmálalegum og trúarlegum forsendum, ásamt möguleika á friði, er aðalumfjöllunarefni málþings sem efnt er til vegna útgáfu bókarinnar Hnífur Abrahams. „Hugmyndin að bókinni kviknaði þegar ég vann að mastersritgerð minni í heimspeki við Háskóla Íslands. Ritgerðin fjallaði um átök ólíkra menningahópa og hvort sé hægt að segja eitthvað um þessi átök eða hvort maður verði bara að loka augunum og vona það besta,“ segir Óttar M. Norðfjörð, sem sendi nýlega frá sér sína fyrstu spennu- sögu, Hníf Abrahams. Bókin er sagnfræðileg spennu- saga sem fjallar að miklum hluta um þróun eingyðistrúar í heimin- um, íslam, kristni og gyðingdóm, átök á milli þessara hópa og hvort friður sé í augsýn. „Í kjölfar útgáf- unnar kom upp sú hugmynd hjá útgefendunum, Sögur ehf., að halda málþing, með yfirskriftinni: „Er möguleiki á friði? Við fengum til liðs við okkur Þórhall Heimisson, prest, sem mun fjalla um trúarlegar forsendur og meðal annars hvernig þessi eingyðistrúarbrögð, íslam, kristni og gyðingdómur, mætast í Abraham, Andrés Inga Jónsson, átakafræðing, sem mun fjalla um stjórnmálalegt ástand meðal þess- ara hópa á tuttugustu öldinni og Sig- ríði Þorgeirsdóttur, heimspeking og dósent við Háskóla Íslands, sem mun fjalla um gagnrýni Vestur- landabúa á hinn arabíska heim og öfugt og hvort friður sé í augsýn ef við slökum á kröfum. Auk þess er Sigríður mikill femínisti og mun skoða ástandið út frá þeim forsend- um,“ segir Óttar og gefur Andrési Inga orðið: „Ég mun fjalla um hvern- ig þessi átök hafa þróast á tuttugustu öldinni og meðal annars hvernig stjórnmálamönnum hættir til að einfalda hlutina. Til dæmis má nefna umpólanir á afstöðu til hóps eins og talibana sem voru bandamenn Bandaríkjanna í kalda stríðinu en nú þeirra verstu óvinir. Markmiðið er að varpa fram spurningum um hvaða lausnir geta leitt til friðar.“ Bók Óttars hefur verið líkt við skrif Dans Brown og hefur fengið glæsilega dóma. Auk þess sem kvik- myndarétturinn var nýlega seldur. Að sögn Óttars er næsta bók líka sagnfræðileg spennusaga, sem í þetta sinn gerist á Íslandi.„Ég skemmti mér konunglega við svona sögugrúsk og ef vel gengur fer ég að gera drög að þriðju bók,“ útskýrir Óttar, en sögupersónur úr Hnífi Abrahams koma einnig fyrir í næstu bók . Málþingið Er möguleiki á friði? verður haldið á Kaffi Kúltúra í Alþjóðahúsinu á Hverfisgötu 4. desember kl. 20.00. rh@frettabladid.is Þingað um átök og frið Hátíð á Hala PÉTUR GUNNARSSON KYNNIR BÓKINA Í FÁTÆKTARLANDINU, ÞROSKASAGA ÞÓRBERGS. Bókamessa verður í Þórbergssetri á Hala í Suðursveit sunnudaginn 2. desember. Hún hefst klukkan 14 á því að Pétur Gunnarsson rithöfundur kynnir bókina Í fá- tæktarlandinu, þroskasaga Þórbergs. Eftir tónlistaratriði les Hjörleifur Guttorms- son, fyrrverandi ráðherra, upp úr nýrri bók sem nefnist Skaftafell í Öræfum - Ís- lands þúsund ár eftir dr. Jack D. Ives fjallavistfræðing. Kaffihlaðborð verður klukk- an 15.20 og að því loknu les Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur ljóð kvenna. Aðgangur er ókeypis og opið verður inn á sýningar í Þórbergssetri. - gun FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V Ö LU N D U R Andrés Ingi Jónsson átakafræðingur og Óttar M. Norðfjörð rithöfundur eru meðal þátttakenda á málþingi vegna útgáfu bókar Óttars Hnífur Abrahams.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.