Fréttablaðið - 27.11.2007, Page 34

Fréttablaðið - 27.11.2007, Page 34
26 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR menning@frettabladid.is Fimm rithöfundar halda af stað í ferðalag um Austurland á morgun. Rithöfundarnir eru þau Vigdís Grímsdóttir, Pétur Blöndal, Kristín Svava Tómasdóttir, Þráinn Bertelsson og Jón Kalman Stefánsson. Höfundar þessir standa allir í bókaútgáfu nú fyrir jólin og hafa því margt nýstárlegt og spennandi fram að færa. Bók Vigdísar Grímsdóttur um Bíbí Ólafsdóttur er ævisaga sterkrar alþýðukonu sem bugast aldrei hvað sem á móti blæs. Bíbí hefur lifað tímana tvenna og miðlar Vigdís sögu hennar til lesenda á sinn dularfulla og seiðandi hátt. Í bókinni Sköpunarsögur ræðir Pétur Blöndal við tólf landskunna rithöfunda og skyggnist þar með inn í ferlið sem á sér stað frá óljósri hugmynd að fullsköpuðu ritverki. Þráinn Bertelsson sendi nýverið frá sér sakamálasöguna Englar dauðans en hún þykir í senn æsispennandi og áleitin í umfjöllun sinni um neðanjarðarheim fíknar og ofbeldis. Skáldið unga, Kristín Svava Tómasdóttir, hefur fengið mikla umfjöllun í kjölfar útgáfu ljóðabókarinnar Blótgælur, enda hefur bókin verið kölluð besta frumraunin á sviði ljóðagerðar í langan tíma. Saga Jóns Kalmans Stefánssonar, Himnaríki og helvíti, hefur hlotið einróma góða dóma. Bókin gerist vestur á fjörðum um aldamótin 1900 og segir frá örlagaríkum róðri. Fyrsti viðburðurinn á ferðalagi höfundanna fer fram annað kvöld kl. 20 á Skriðuklaustri. Þar lesa þau úr bókum sínum og spjalla við gesti. Frá Skriðuklaustri liggur leið þeirra norður á Vopnafjörð þar sem þau munu lesa í Kaupvangi kl. 20.30 á fimmtudagskvöld og á Eyrinni á Þórshöfn á föstudagskvöld kl. 20. Síðasti viðkomustaður rithöfundanna áður en þeir snúa aftur á suðvesturhornið er Seyðisfjörður en þar munu þeir lesa upp úr bókum sínum í Skaftfelli á laugardag kl. 20.30. Aðgangseyrir að upplestrarkvöldunum er 1.000 kr. - vþ Rithöfundar halda austur Síðustu háskólatónleikar ársins fara fram í Norræna húsinu kl. 12.30 á morgun. Guð- ný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikari flytja þar þætti úr sónötum eftir tónskáldið dáða Ludwig van Beethoven. Sónötur Beethovens fyrir píanó og fiðlu eru tíu talsins og allar tileinkaðar mektarmönnum frá samtíð tónskáldsins. Fyrstu þrjár sónöturnar, ópus 12, eru samdar á árunum 1797 til 1798 og eru tileinkaðar ítalska tónskáldinu Antonio Salieri. Sónötur númer 4 og 5 eru tileinkaðar greifanum Moritz von Fries og voru samdar litlu síðar eða á árunum 1800 til 1801. Sú síðarnefnda hefur hlotið heitið Vorsónatan. Sónötur númer 6, 7 og 8 eru allar ópus 30 og eru samdar aðeins ári síðar eða 1802. Þær eru tileinkað- ar Alexander fyrsta Rússakeisara. Tveimur árum síðar samdi Beethoven sónötu ópus 47. Hún er tileinkuð Rudolphe Kreutzer og er jafnan nefnd Kreutzersónatan, en hún og Vorsónatan eru lang- þekktastar af sónötunum tíu. Átta árum síðar leit síðasta sónatan, ópus 96, dagsins ljós. Hún er tileinkuð erkihertoganum Rudolph von Österreich. Á tónleikunum á morgun verða leiknir valdir þættir úr fimm af sónötunum. „Það myndi taka nokkra daga að flytja allar sónötur Beethovens og því lá það fyrir að við yrðum að velja tiltekna þætti úr þeim til þess að flytja á tónleikunum. Við reyndum þó að hafa það að leiðarljósi við valið að þættirnir séu sem fjölbreytt- astir og veiti þannig góða mynd af sónötunum þar sem þær eru fremur ólíkar innbyrðis,“ segir Guðný um efnisskrá tónleikanna. Tónleikaröðin Háskólatónleikar hefur farið fram í haust við góðan orðstír. Tónleikarnir á morgun verða þeir síðustu á árinu, en þráðurinn verður tekinn upp að nýju í febrúar næstkomandi. „Tónleikarnir eru stuttir og laggóðir og því þarf að sníða efnisskrá þeirra með það í huga. Þeir eru hugsaðir sem tækifæri fyrir fólk til þess að lyfta sér aðeins upp í hádegishléinu sínu og njóta menningar áður en það heldur aftur til vinnu,“ segir Guðný. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og standa yfir í hálftíma. Aðgangseyrir er 1.000 kr., eldri borgarar og öryrkjar fá helmingsafslátt og nemendur Háskóla Íslands þurfa ekki að greiða fyrir aðgang. vigdis@frettabladid.is Fjölbreyttur Beethoven VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR Hún ferðast um Austur- land og kynnir bók sína um Bíbí Ólafsdóttur. GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR Leikur á Háskólatónleikum í Norræna húsinu á morgun. Tvö verk hverfa af sviðum Þjóðleikhússins á næstu dögum: Hamskiptin og Leg renna brátt sitt skeið eftir gott gengi: Leg var frumsýnt á liðnum vetri en Hamskiptin komu upp í haust eftir stuttan sýningar - tíma í London og halda nú aftur til Lundúna þar sem sýningar hefjast að nýju. Ýmsir hafa furðað sig á að leiksýningar sem samkvæmt auglýsingum eru leiknar fyrir fullu húsi hverfi af sýningar - skránni. Fáir miðar eru til á síðustu sýningar verkanna beggja: Leg er leikið 28. og 29. nóvember, en Hamskiptin verða sýnd 30. nóvember og 3. desember. Samningar við Lyric Hammersmith- leikhúsið gerðu ráð fyrir að sýningum við Hverfisgötuna yrði hætt 1. desember og leikmyndin sett í gám og siglt með hana til Bretlands. Hefjast sýningar ytra upp úr áramótum. Elva Ósk verður í hópnum sem leikur fyrir breska áhorfendur en þau Björn Thors og Unnur Ösp taka við hlutverkum Gísla og Nínu. Tinna Gunnlaugsdóttir leikhús - stjóri segir sýningar á Legi orðnar fjörutíu auk fjögurra forsýninga: „Góð aðsókn var á flestar sýning - arnar í vor og þegar hlé var gert á sýningum var hætt fyrir fullu húsi. Í haust fór miðasalan hægt af stað en tók svo verulega vel við sér. Sérstaklega hafa skóla hópar verið duglegir að nýta sér sérkjör í miðaverði og stórir hópar frá flestum framhalds skólum á Stór- Reykjavíkur svæðinu hafa nú séð sýninguna. Stemningin á sýningum þegar unglingar úr sama skóla koma í stórum hóp í leikhúsið hefur oft verið alveg mögnuð og allt ætlað að springa af fögnuði í lok sýningar. Vissulega væri gaman að geta haldið sýningum áfram eftir áramót, það gerist ekki oft að sýningar hitta svona gjörsamlega í mark hjá þeim aldurshópi sem oft og einatt hefur verið erfitt að draga í leikhúsið, en aðstæður eða aðstöðuleysi á stóra sviðinu vega þungt samfara því mati að framboð af lausum sætum á þær fjörutíu sýningar sem sýndar hafa verið á því sex mánaða tímabili sem sýningar hafa staðið hafi verið viðunandi og ættu þeir sem á annað borð höfðu áhuga á að sjá sýn - inguna að hafa haft til þess tækifæri.“ Segir Tinna aðstöðu leysi til geymslu á leikbúnaði ráða miklu um að sýn ing um er hætt. „Geymsluplássið er því miður af ákaflega skornum skammti og setur pláss leysi starfinu því ákaflega þröngar skorður. Þjóðleikhúsið er barn síns tíma í þessu tilliti eins og margoft hefur komið fram í umræðunni.“ Við upphaf ráðningar sinnar tók Tinna þá ákvörðun að stytta sýn ingarskeið og þétta sýningar haldið, meðal annars til að minnka umskip unarkostnað sem er samfara því að hafa margar sviðsetningar á stóra sviðinu í senn. Hefur hún reyndar látið vinna áætlanir um að byggja við húsið beinlínis til að bæta úr aðstöðu baksviðs í Þjóðleikhúsinu sem hefur verið í endurbyggingu í hartnær tvo áratugi. Þéttara sýning ar haldi fylgir sá böggull „að áhorfendur mega helst ekki draga það um of að tryggja sér miða ef þeir ætla ekki að missa af áhuga verðum sýningum í Þjóðleikhúsinu. Nú er undirbúningur fyrir jóla sýninguna, Ívanov, kominn á fullan skrið. Verður hún sýnd þétt frá jólum og fram á þorra, að minnsta kosti, samhliða sýningum á Skilaboðaskjóðunni, en mikil að sókn er einnig á þá sýningu. Svo er von á Sólarferð á stóra sviðið um miðjan febrúar, Engi sprettum í mars og Ástin er diskó, lífið er pönk í apríl.“ Tinna segir fulla ástæðu til að hvetja leikhúsgesti til að draga það ekki um of að sjá sýningar á stóra sviði Þjóðleikhússins. „Þeir gætum misst af frá - bærri upplifun. Leikhús er lifandi listform og eftir að sýningum á tilteknu leik riti lýkur er sýningin horf in af sjónarsviðinu fyrir fullt og allt og lifir aðeins áfram í huga þeirra sem nutu.“ pbb@frettabladid.is Sýningar hverfa af sviðinu LEIKLIST Sýningum á Legi er að ljúka en nýtt verk eftir Hugleik í leikstjórn Stefáns Jónssonar verður sýnt eftir áramót. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ LEIKLSIT Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri Á Korpúlfsstöðum er rekin sjón - listamiðstöð á vegum Sam bands íslenskra myndlistar manna, Sam - taka hönnuða og Reykjavíkur - borgar. Í sjónlistamiðstöðinni eru nú vinnustofur hátt í fjörutíu starfandi myndlistarmanna og hönnuða. Í byggingunni er einnig rekið útibú frá Myndlistarskóla num í Reykjavík þar sem börn og unglingar hafa sótt námskeið. Félagsstarf aldraðra í Grafarvogi fer fram á Korp úlfsstöðum að ógleymdum golfurun um sem þeyt - ast um velli hlýrri mánuði ársins. Því má með sanni segja að þetta gamla kúabú hafi öðlast nýtt og menningarlegt hlut verk á undan - förn um árum. Senn dregur til tíðinda á Korpúlfsstöðum þar sem borgar- stjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, opnar næstkomandi laugardag í stóra sýningarsal bygg - ing ar innar samsýningu ríflega helm ings þeirra listamanna sem á Korpúlfsstöðum starfa. Titill sýningarinnar er Meter þar sem verkin, sem unnin eru í margvíslega miðla, eiga það öll sameiginlegt að vera unnin út frá mælieiningunni metra. Því mælast verkin öll einn metri á alla kanta, hvort sem þau eru í tvívídd eða þrívídd. Sýningin stendur aðeins yfir um næstkomandi helgi og verður opin frá 13 til 17 laugardag og sunnudag. Vinnustofur þeirra listamanna og hönnuða sem starfa á Korp - úlfsstöðum verða einnig opnar almenningi á laugardag og kennir þar ýmissa grasa. Á Korpúlfsstöðum er unnið að listsköpun út frá ólíkum forsendum og má því sjá málverk, teikningar, grafík, grafíska hönnun, leirlist, textíl, hreyfimyndagerð, landslagsarkitektúr, leik mynda - hönnun, glerlist og högg myndir á vinnustofunum. Það er því til mikils að vinna fyrir áhugafólk um listir enda hér á ferð tækifæri til þess að fylgjast með vinnuferli listafólks. Sjónlistirnar fá þó ekki einar að njóta sín því ritlistin lætur líka til sín taka. Rithöfundar munu lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum og hægt verður að kaupa sér kaffiveitingar í portinu í suðurhluta hússins. - vþ List mæld í metrum KORPÚLFSSTAÐIR Hýsa blómlegt listastarf. Sýning Pétur Pétursson sýnir um þessar mundir átta nýleg málverk í húsgagnaversluninni GÁ-húsgögn, Ármúla 19. Allar myndirnar á sýningunni eru landslagsmálverk og flestar eiga sér fyrirmynd í landslagi Snæfellsness. 22. nóvember - uppselt 23. nóvember - uppselt 30. nóvember - uppselt 1. desember - uppselt 7. desember - uppselt 8. desember - uppselt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.