Fréttablaðið - 27.11.2007, Qupperneq 40
32 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Stórskyttan og landsliðsmaðurinn Einar Hólmgeirsson er kominn á
fulla ferð með félagi sínu Flensburg á nýjan leik. Einar hefur verið
meira og minna meiddur síðasta árið og hann meiddist síðast í
Evrópuleik gegn Ciudad Real fyrir nokkrum vikum. Þá fékk Einar
langþráð tækifæri með Flensburg sem endaði á þann sorglega hátt
að hann var borinn af velli eftir að hafa staðið sig mjög vel gegn
Ólafi Stefánssyni og félögum.
Einar var í fínu formi með Flensburg á sunnudag þegar hans
gamla félag, Grosswallstadt, kom í heimsókn. Einar var sínum gömlu
félögum óþægur ljár í þúfu og skoraði fjögur mörk með þrumuskot-
um í 35-28 sigri Flensburg.
„Það var verulega gaman að mæta Grosswallstadt. Þetta var í
fyrsta skipti sem ég mæti liði sem ég hef áður spilað með og það
var sérstakt. Það var ekki verra að setja nokkur á gamla markvörðinn
minn en hann átti ekki möguleika,“ sagði Einar léttur en hann fór
nánast beint í loftið eftir að honum var skipt inn af bekknum. „Ég
er settur inn á til þess að skjóta og er með skotleyfi. Það var engin
ástæða til þess að bíða eftir einu né neinu.“
Einar fær væntanlega fleiri tækifæri til þess að láta ljós sitt skína í
næstu leikjum þar sem félagi hans í lands-
liðinu, Alexander Petersson, er meiddur á
ökkla og verður frá næstu þrjár vikurnar
vegna þessa en Alex hefur verið á undan
Einari í goggunarröðinni sem skytta hjá
Flensburg.
„Það er leiðinlegt að missa Alex en
sem betur fer verður hann ekki of
lengi frá. Ég verð aftur á móti að nýta
tækifærið vel fyrir sjálfan mig og sýna
hvað í mér býr,“ sagði Einar en hann
segist samt vera nokkuð frá sínu
besta formi.
„Ég er í ágætu líkamlegu formi en það
vantar enn talsvert upp á spilformið hjá mér
og það eðlilega. Þetta er samt allt á réttri
leið og stefnan hjá mér er að verða kominn
í toppform í janúar þannig að maður geti
hjálpað landsliðinu eitthvað á EM.
LANDSLIÐSMAÐURINN EINAR HÓLMGEIRSSON: KOMINN Á FULLA FERÐ EFTIR ENN EIN MEIÐSLIN
Stefni á að mæta í toppformi á EM
FÓTBOLTI Logi Ólafsson, þjálfari
KR, tjáði miðjumanninum Bjarn-
ólfi Lárussyni það á dögunum að
hann væri ekki inni í framtíðar-
áætlunum sínum og honum væri
þar af leiðandi frjálst að róa á
önnur mið. Bjarnólfur hefur því
leikið sinn síðasta leik fyrir KR en
hann hefur verið í herbúðum
félagsins síðustu þrjú ár.
„Þessi tíðindi komu mér nokkuð
á óvart en ég virði ákvörðun Loga
og er sáttur við að menn komi
hreint fram. Þannig að þetta er
alveg í góðu af minni hálfu og ég
legg mikið upp úr því að fara sátt-
ur frá félaginu,“ sagði Bjarnólfur
en hann á tvö ár eftir af samningi
sínum við félagið. Hann verður
ekki seldur til annars félags held-
ur er stefnan að ganga frá starfs-
lokasamningi en vinnan við hann
er ekki hafin.
„Ég tek svo stöðuna á mínum
málum þegar ég hef skilið endan-
lega við KR. Það hefur verið ágætt
að hvíla sig eftir mjög erfitt sumar.
Ég er í raun ekkert farinn að spá í
framhaldið og er alls ekki að flýta
mér neitt. Ég er enn á byrjunar-
reit og hef ekkert spáð í hvert ég
fari eða hvort ég haldi áfram. Það
er margt annað sem ég er að gera
og ég þarf að spá í mörgum hlut-
um áður en ég tek einhverja
ákvörðun um framhaldið,“ sagði
Bjarnólfur en hann neitar því ekki
að síðasta sumar hafi tekið sinn
toll.
„Það tók mjög mikið á. Ekki
bara síðasta sumar heldur síðustu
tvö ár þar sem gengið hefur verið
misjafnt og mikið æft líka. Það er
kominn tími á smá hvíld núna og
ég ætla ekkert að taka neina
ákvörðun um mína framtíð fyrr en
eftir áramót. Ég stend á ákveðn-
um tímamótum og þarf að skoða
vel í hvað ég vilji eyða tíma mínum
í framtíðinni.“
Bjarnólfur kom á sínum tíma til
KR frá ÍBV en það var Magnús
Gylfason sem fékk Bjarnólf til
félagsins eftir að hafa þjálfað
hann í Eyjum. Þrátt fyrir oft og
tíðum erfiða tíma sér Bjarnólfur
ekki eftir því að hafa komið til
KR.
„Alls ekki. Þetta er búinn að
vera skemmtilegur tími þó svo að
þetta hafi oft verið erfitt. Ég hefði
viljað sjá betri árangur KR á
þessum tíma. Hér hef ég aftur á
móti kynnst mikið af góðu fólki
og séð margt gott í kringum félag-
ið. Ég hef notið þess að vera í KR
og vil skilja í góðu við félagið,“
sagði Bjarnólfur en er hann sátt-
ur við eigin frammistöðu hjá
félaginu?
„Já og nei. Ég hefði viljað gera
betur að mörgu leyti en mér fannst
ég standa mig ágætlega á köflum.
Það hefur ekki verið auðvelt að
spila fyrir KR og ég get ekki neit-
að að þetta hefur ekki gengið eins
vel og ég vonaðist til þó svo að ég
sé ekki ósáttur við mitt framlag,“
sagði Bjarnólfur Lárusson.
henry@frettabladid.is
Vil skilja sáttur við KR
Miðjumaðurinn Bjarnólfur Lárusson stendur á tímamótum á sínum ferli. Hans
krafta er ekki lengur óskað hjá KR og hann er sjálfur að íhuga framtíðina.
Hann segist ekki vera viss um hvert hann fari eða hvort hann haldi áfram.
FRAMTÍÐIN ÓRÁÐIN Bjarnólfur Lárusson er ekki búinn að ákveða hvert hann fari eða
hvort hann hreinlega haldi áfram í fótbolta. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Vignir Svavarsson hefur náð sam-
komulagi við þýska félagið Lemgo
um að hann spili með félaginu
næstu tvö árin. Vignir á aðeins
eftir að gangast undir læknisskoð-
un hjá Lemgo og mun hann gera
það í desember. Það verða því
aftur tveir félagar hjá Lemgo
næsta vetur en fyrir hjá félaginu
er Logi Geirsson og Ásgeir Örn
Hallgrímsson var í röðum félags-
ins áður en hann ákvað að ganga í
raðir danska liðsins GOG.
„Þetta er mjög spennandi allt
saman. Félagið er búið að ráða
Markus Baur sem þjálfara og
ætlar sér að vera í toppbaráttunni
á helstu vígstöðvum á komandi
árum. Það verður spennandi að
taka þátt í þessari uppbyggingu
hjá félaginu,“ sagði Vignir við
Fréttablaðið í gær.
Lemgo hafði fyrst samband
fyrir um mánuði en fleiri þýsk
félög sýndu Vigni áhuga og þar á
meðal var Magdeburg. Vignir seg-
ist vera sáttur við samninginn sem
hann fær hjá félaginu.
„Þetta er betri samningur en hjá
Skjern. Ég hefði líka getað farið
annað og fengið meiri pening en
það skipti ekki mestu fyrir mig.
Ég skoðaði félagið, umgjörðina og
framtíðaráform frekar en tölurn-
ar. Að fara í rétta félagið skipti
mig meira máli en launatölurnar,“
sagði Vignir. „Fyrst ég ætlaði að
fara frá Skjern þá setti ég stefn-
una á að fara í toppfélag í Þýska-
landi. Annars hefði ég verið áfram
hjá Skjern enda gott að vera í Dan-
mörku.“
Vignir segir að þessi félaga-
skipti séu rökrétt skref fram á við
eftir nokkur góð ár í Danmörku.
„Auðvitað er þýska deildin tals-
vert sterkari en sú danska og
þarna gefst mér tækifæri til þess
að bæta mig enn frekar sem hand-
boltamaður. Það verður líka gaman
að hitta Loga hérna enda einstak-
lega skemmtilegur strákur þar á
ferðinni.“ - hbg
Landsliðsmaðurinn Vignir Svavarsson er búinn að semja við þýska úrvalsdeildarliðið Lemgo til tveggja ára:
Rétta félagið mikilvægara en launatölurnar
Á LEIÐ TIL LEMGO
Vignir Svavarsson mun spila
með Loga Geirssyni á næstu
leiktíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SUND Frammistaða Erlu Daggar
Haraldsdóttur að undanförnu
hefur ekki aðeins leitt af sér
fjölda Íslandsmeta heldur er
stelpan einnig framarlega á
nýjum afrekalista yfir evrópskt
sundfólk.
Erla Dögg setti fjögur Íslands-
met á nýafstöðnu Íslandsmóti í 25
metra laug og þau skila henni öll
inn á Evrópulistann. Erla Dögg er
í 16. sæti í 100 metra fjórsundi, í
28. sæti í bæði 50 og 100 metra
bringusundi og þá er hún í 35.
sæti í 200 metra fjórsundi.
Erla Dögg hefur slegið alls níu
Íslandsmet frá því um miðjan
október og það hefur verið
frábært að fylgjast með þessari
frábæru sundkonu úr Njarðvík að
undanförnu. - óój
Afrekalisti Evrópu í sundi:
Erla Dögg
er framarlega
GULL OG ÍSLANDSMET Erla Dögg Har-
aldsdóttir synti frábærlega á Íslandsmót-
inu á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Hann var örugglega
sögulegur leikur Hauka og KR í 1.
deild kvenna í körfubolta um
helgina en þá léku fjórar systur
saman í Haukaliðinu.
Þetta eru þær Hanna (22 ára),
Bára Fanney (19), Árný Þóra (15)
og Margrét Rósa (13) Hálfdanar-
dætur en foreldrar þeirra,
Hálfdan Markússon og Sóley
Indriðadóttir, léku bæði með
Haukaliðinu á sínum tíma.
Haukaliðið vann leikinn 83-55,
Hanna var með 16 stig, 10 fráköst
og 4 stolna bolta og Bára skoraði
11 stig og gaf 4 stoðsendingar en
þær tvær yngstu voru að stíga sín
fyrstu skref í meistaraflokki.
Margrét Rósa var með 1 stig og 2
fráköst á 8 mínútum og Árný tók
4 fráköst og stal 2 boltum á 13
mínútum. - óój
1. deild kvenna í körfu:
Fjórar systur
í sama liði
ELST Hanna Hálfdanardóttir lék við hlið
þriggja systra sinna gegn KR um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Ruud Gullit stjórnar liði
LA Galaxy í fyrsta sinn í kvöld
þegar liðið mætir Sydney FC í
æfingaleik í Sydney en búist er
við að 80 þúsund manns mæti á
leikinn.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
get séð hvar mínir leikmenn geta
bætt sig. Þetta er líka gott
tækifæri fyrir okkur að kynnast
betur,“ sagði Gullit. Hann sagði
enn fremur að aðalstjarna liðsins,
David Beckham, stefndi á að spila
allar 90 mínúturnar en Beckham
lék aðeins fimm leiki með Galaxy
á síðasta tímabili vegna meiðsla.
- óój
Ruud Gullit um Beckham:
Ætlar að spila
í 90 mínútur
FJÖR Í SYDNEY David Beckham er í
Ástralíu með liði sínu LA Galaxy.
NORDICPHOTOS/GETTY
> KR TV beint frá Tyrklandi?
Íslandsmeistarar KR í körfubolta leika síðari leik sinn við
tyrkneska liðið Banvit BC í Evrópukeppninni ytra í dag.
KR tapaði fyrri leiknum með 17 stiga mun þannig að það
verður á brattann að sækja fyrir Vesturbæinga. Leikurinn
hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma og reynt verður að
sýna leikinn beint á KR TV sem nálgast má á heimasíðu
KR-inga, kr.is. Aðalmaður KR-sjón-
varpsins, Ingi Þór Steinþórsson,
er staddur ytra og mun lýsa af
sinni alkunnu snilld gangi
tæknimálin upp í Tyrklandi.
FÓTBOLTI Færeyska knattspyrnu-
sambandið greinir frá því á
heimasíðu sinni að landslið
Færeyinga muni leika æfingaleik
gegn Íslandi í lok mars á næsta
ári. Leikurinn mun fara fram í
Kórnum í Kópavogi.
Þetta verður fyrsti landsleikur
karlalandsliðsins sem fram fer
innan dyra. - hbg
Knattspyrnulandsliðið:
Mætir Færeyj-
um í æfingaleik