Fréttablaðið - 27.11.2007, Page 46
38 27. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. sæti 6. hvort 8. hvers vegna 9. hlé
11. öfug röð 12. rusl 14. hökutoppur
16. tónlistarmaður 17. frjó 18. umrót
20. frá 21. mergð.
LÓÐRÉTT
1. tel 3. skammstöfun 4. svelgja 5.
persónufornafn 7. forhlaup 10. hald
13. gras 15. hamingja 16. nögl 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sess, 6. ef, 8. hví, 9. lot,
11. on, 12. drasl, 14. skegg, 16. kk, 17.
fræ, 18. los, 20. af, 21. ótal.
LÓÐRÉTT: 1. held, 3. eh, 4. svolgra,
5. sín, 7. forskot, 10. tak, 13. sef, 15.
gæfa, 16. kló, 19. sa.
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Á næstu grösum er yndislegur
staður sem ég hef borðað á í 20
ár. Nýlega fékk ég meiriháttar
mat á nýja staðnum, Fiskmark-
aðnum. En Iða er í uppáhaldi,
þar borða ég sushi með mann-
inum mínum tvisvar í viku.“
Svava Johansen, eigandi NTC
„Þetta er bara brandari og ég tek
honum vel,“ segir Hannes Hólm-
steinn Gissurarson en nýlega kom
út annað bindi ævisögu hans sem
Óttar Martin Norðfjörð skrifar.
Annað bindið heitir Hólmsteinn:
Holaðu mig dropi, holaðu.
Hannes sagðist ekki hafa
keypt bókina en óskaði Óttari
velgengni á þessu sviði og
kvaðst ekki ætla að erfa þetta
við höfundinn. „Ég er nú enda
fylgjandi málfrelsinu og það
verður að virka í báðar
áttir,“ segir Hannes. „Og ef hann
getur notað nafnið mitt á frama-
braut sinni þá er það honum vel-
komið,“ bætir Hannes við, en
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum sat hann ásamt umbrots-
manni og var að velja myndir í
afmælisbók Davíðs Oddsson-
ar sem á að koma út á
sextugsafmæli seðla-
bankastjórans 17. jan-
úar næstkomandi. „Ég
er að hjálpa þeim í SUS
með bókina, þetta eru
ljósmyndir sem hafa
margar hverjar aldrei sést
áður,“ útskýrir Hannes.
Gísli Marteinn Baldursson
festi kaup á fyrstu bók Óttars
um Hannes, Hannes: Nóttin er
blá, mamma, og færði Hann-
esi að gjöf en í samtali við Frétta-
blaðið vildi borgarfulltrúinn ekki
gefa upp hvort hann hygðist
endurtaka leikinn, það yrði
bara að koma á óvart. Blöð-
ungur Óttars kæmi alveg
eins til greina og aðrar
bækur. „Hannes á allar
góðar gjafir skildar,“ segir
Gísli. - fgg
Hannes ánægður með brandara Óttars
ANNAÐ BINDI
KOMIÐ ÚT Óttar
Martin hefur gefið
út annað bindi
ævisögu Hannesar
Hólmsteins Giss-
urarsonar sem ber
heitið Holaðu mig
dropi, holaðu.
Ef fram fer sem horfir slær Næt-
urvaktin áhorfsmet Idol-stjörnu-
leitar og verður vinsælasta sjón-
varpsþáttaröð Stöðvar 2 frá
upphafi. Samkvæmt áhorfsmæl-
ingum sem Stöð 2 lét gera fyrir sig
mælist Næturvaktin nú með 36
prósenta áhorf og er ekki útilokað
að sú tala fari hækkandi eftir því
sem nær dregur endalokum
ævintýra þeirra Daníels,
Ólafs Ragnars og Georgs á
bensínstöðinni við Lauga-
veg. „Þetta eru auðvitað
mjög flottar áhorfstölur,“
segir Pálmi Guðmunds-
son, sjónvarpstjóri Stöðvar 2, en
þegar hefur verið tilkynnt um
framhald sjónvarpsþáttanna sem
fengu tvenn Eddu-verðlaun á dög-
unum.
Og það á að hamra járnið á
meðan það er heitt. Síðasti þáttur
Næturvaktarinnar verður frum-
sýndur sunnudaginn 9. desember
og strax daginn eftir kemur öll
serían út á tvöföldum dvd-
disk. Þar verður að finna
aukaefni, svo sem heimild-
armyndina um gerð Næt-
urvaktarinnar. „Þetta er í
fyrsta skipti sem við leggj-
umst út í útgáfuna svona
strax því yfirleitt hafa
áhorfendur þurft að bíða í
heilt ár eftir íslenskum
sjónvarpsþáttum,“
segir Pálmi. Sena
gefur diskinn út og
er búist við miklum
áhuga, átta þúsund eintök voru
pöntuð í fyrsta upplagi og er gert
ráð fyrir að salan fari allt upp í tólf
þúsund. - fgg
Næturvaktin við það að slá áhorfsmetið
GULLKÁLFUR Næturvaktin reyndist happafengur fyrir Stöð 2 því allt stefnir í að hún
verði vinsælasti sjónvarpsþáttur stöðvarinnar frá upphafi.
STRAX ÚT Á DVD Leikstjórinn
Ragnar Bragason hlýtur að vera
kampakátur með velgengni
Næturvaktarinnar en tvöfald-
ur mynddiskur með öllum
þáttunum verður gefinn
út 10. desember.
„Nei, því miður, við komumst
ekki,“ segir Guðni Gunnarsson
ropeyoga-kennari sem varð að
afþakka boð í brúðkaup sjálfs
Ofurmennisins um síðustu helgi.
Einn frægasti skjólstæðingur
Guðna, Brandon Routh, þekktast-
ur fyrir leik sinn sem Súperman,
gekk að eiga unnustu sína, leik-
konuna og framleiðandann Courtn-
ey Ford. Að sjálsögðu fékk Guðni
boðskort frá Ofurmenninu en
hann undirbjó Routh andlega og
líkamlega fyrir frægðina sem talið
var fullvíst að myndi banka upp á
eftir frumsýningu Superman fyrir
tveimur árum.
Guðni átti því miður ekki heim-
angengt sökum anna en að sögn
hans fór brúðkaupið fram á
búgarði eins af framleiðendum
Súperman-myndarinnar, Jon Pet-
ers og þótti víst ákaflega fallegt.
Samkvæmt vefmiðlum þar vestra
lét ríkisstjórinn í Kaliforníu, Arn-
old Schwarzenegger, loka lofthelg-
inni yfir búgarðinum til að koma í
veg fyrir ágang paparazza.
Guðni fékk póst frá stórstjörn-
unni á laugardagsmorgun áður en
brúðkaupið fór fram þar sem leik-
arinn spurði hvort það væri alveg
útilokað að þau kæmust. „Við höfð-
um þá ekki alveg gefið það frá
okkur en síðan áttuðum við okkur
bara á því að þetta væru of mikil
ferðalög,“ útskýrir Guðni en tölu-
verðar framkvæmdir hafa átt sér
stað við Ropeyoga-setrið í Listhús-
inu við Engjateig. „Hann sýndi
þessu auðvitað mikinn skilning,“
bætir Guðni við.
Guðni segist ekki hafa sent
Brandon og Courtney brúðkaups-
gjöf því hann stefnir á að fara
vestur um haf í byrjun næsta árs.
Og þá ætlar hann að hafa eitthvað
smáræði í farteskinu til að gefa
brúðhjónunum. „Kannski bara
hangikjöt, malt og appelsín og
skyrdollu,“ segir Guðni og hlær og
bætir því síðan við að íslenskt
listaverk komi einnig til greina.
Ropeyoga-kennarinn segir að
hann hafi ekkert nema gott um
Courtney að segja, hún sé hörku-
dugleg og með bein í nefinu. Þá
sagði hann jafnframt að Brandon
stefndi að því að koma aftur hing-
að til lands næsta vor en hann
dvaldist hér drykklanga stund á
síðasta ári og fór þá í ferðalag í
kringum landið ásamt Guðna og
fjölskyldu. „Við sjáum bara til
hvernig það fer,“ segir Guðni.
Stefnt er að því að hefja fram-
leiðslu á framhaldsmynd um ævin-
týri Súperman á næsta ári og mun
Brandon klæðast rauðu skikkj-
unni aftur. freyrgigja@frettabladid.is
GUÐNI GUNNARSSON: HELDUR GÓÐU SAMBANDI VIÐ SÚPERMAN
Jóga-Guðni komst ekki
í brúðkaup Ofurmennisins
SAT FASTUR HEIMA Guðni Gunnarsson segir að brúðkaup Ofurmennisins og unnustu
þess hafi verið fallegt og honum hafi þótt leiðinlegt að komast ekki í það en það
hafi einfaldlega verið brjálað að gera heima. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SAMAN Í FJÖGUR ÁR Brandon Routh og
Courtney Ford hafa verið saman í fjögur
ár og gengu í það heilaga á búgarði Jons
Peters á laugardaginn. NORDICPHOTOS/GETTY
LAS EKKI ÞÁ SÍÐUSTU Hannes
Hólmsteinn las ekki fyrsta
bindi ævisögunnar og bjóst
ekki við því að kaupa það
nýjasta.
GEFUR EKKERT UPP Gísli Mart-
einn vildi ekki upplýsa hvort
hann hygðist gefa Hannesi
annað bindi sögunnar.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Patreksfirði.
2. Nicolas Sarkozy.
3. Sara Dögg Ásgeirsdóttir.
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi í
Árborg, þykir ganga lengra en
margur í samstöðu með óléttri
eiginkonu sinni. Eyþór og Dagmar
Una Ólafsdóttir eiga sem kunnugt
er von á barni og lætur
Eyþór sig ekki muna
um að sækja
hvern tímann á
fætur öðrum í
meðgöngujóga
með frúnni.
Eyþór stendur
sína plikt.
Aron Pálmi Ágústsson er aftur
orðinn laus og liðugur. Fréttablaðið
greindi frá því fyrir skemmstu að
hann væri kominn með kærustu
upp á arminn. Sú var
bráðhugguleg íslensk
námsmær en samband-
ið virðist ekki hafa enst,
ef marka má hjúskap-
arstöðuna sem
Aron gefur upp á
Facebook-síðu
sinni.
Götuspilarinn Jójó ætlar að vera í
hlutverki jólasveinsins í miðborg
Reykjavíkur á fullveldisdaginn 1.
desember. Það er, ef veður leyfir.
Hann ætlar að gefa vegfarendum
eintak af geisladiski sem Vífilfell
styrkti hann til að fram-
leiða. Á disknum hefur
Jójó fengið nokkra
þekkta poppara með
sér í lið og
syngur til að
minna lands-
menn á þá
sem minna
mega sín.
Sjónvarpsmaðurinn Logi Berg-
mann Eiðsson hefur fallist á að
snúa aftur með spjallþátt sinn, Logi
í beinni, á Stöð 2 næsta haust.
Logi í beinni fer þó í frí um áramót
þegar Meistarinn tekur við enda
þykir honum fullmikið af því að
góða að stjórna tveimur
skemmtiþáttum í einu.
Þótt Logi elski að vera
á skjánum og flestir
elski Loga á skjánum
er nú allt gott í
hófi. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
15%
vaxtaauki!
A
RG
U
S
/
07
-0
82
7
Nýttu þér þetta
TILBOÐ
og stofnaðu rei
kning á spron.is