Fréttablaðið - 27.11.2007, Page 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Herra getur bæði átt við karla og konur,“ æptu þeir sem voru
ósammála Steinunni Valdísi um að
hugsanlega væri kominn tími til að
endurskoða starfsheitið ráðherra.
Sjálf hafði ég ekki hugmynd um að
það hefði tíðkast að nota orðið herra
yfir konur jafnt sem karla en
kinkaði þó kolli enda þótti mér ógn-
vænleg tilhugsun að titlinum yrði
breytt. Ástæðan er ekki að mér
finnist umræðan ekki eiga rétt á
sér heldur takmarkað traust mitt á
nýyrðasmiðum samtímans.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
voru eitt sinn kallaðir hjúkrunar-
konur svona á meðan aðeins konur
unnu við slík störf. Væntanlega
hefur þótt líklegra að karlmannleg
ending eins og fræðingur myndi
auka virðingu fyrir stéttinni og
margt til í því. Sá sem tæki upp á
því að kalla verkfræðing verkkarl
eða hagfræðing hagkarl myndi lík-
lega skapa sér óvinsældir.
FÓSTRUSKÓLI var eitt sinn
starfræktur á Íslandi. Síðar komst
fólk að þeirri niðurstöðu að Fóstru-
skólinn væri alveg ónothæft sökum
þess hve kvenlegt það væri. Þá hef
ég heyrt að fólki hafi þótt gersam-
lega útilokað að einhver gæti nokk-
ur tímann borið virðingu fyrir
manneskju sem gegndi jafn kven-
legu starfsheiti og fóstra. Því var
heitinu breytt í leikskólakennari,
sem er vissulega karlkyns orð og
því gengið að því sem vísu að bæði
kynin geti notað það og fyrir því sé
borin virðing. Aldrei virðist hafa
komið til tals að karlar gætu verið
fóstrur eða bara fóstri.
FLUGÞJÓNAR urðu svo til þegar
karlmenn fór að langa að starfa við
það sama og flugfreyjur. Það hefði
auðvitað verið bölvuð hneisa að láta
karla bera kvenkyns starfsheiti.
Sussum svei, mig sundlar bara við
það eitt að hugsa um það hrópandi
misrétti að ekki sé talað um þá
niðurlægingu sem karlar hefðu
orðið fyrir af því að vera kvengerð-
ir í starfi sínu. Ekki virðist hafa
komið til tals að nota orðið flug-
freyr yfir þjónustulundaðan karl-
pening á flugi.
FJÖLMÖRGUM starfsheitum
hefur verið breytt í gegnum tíðina
svo henti betur báðum kynjum. Það
vekur þó athygli mína að öll virðast
heitin hafa orðið karlkyns við
breytinguna. Karlkyns orð þykja
henta báðum kynjum og líkleg til
að auka virðingu. Verði einhverjum
á að láta sér detta í hug að snúa
hlutunum við verða margir ægilega
reiðir og þusa um að konur geti
alveg verið herrar. Því er ég sam-
mála en geta karlar aldrei verið
frúr? Er það kannski angi af ger-
ræði femínista að láta sér þvílíkt og
annað eins til hugar koma?
Gerræði kvenna
Í dag er þriðjudagurinn 27.
nóvember, 331. dagur ársins.
10.33 13.15 15.57
10.38 13.00 15.21
STÚDENTABLAÐIÐ
HÁSKÓLINNH
MENNINGM
PÓLITÍKP
fylgir
Fréttablaðinu
16. desember