Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
30. nóvember 2007 — 326. tölublað — 7. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA JÓLIN KOMA VINNUVÉLAR O.FL.
Garðar Óli Gylfason er ungur og upprennandi
kokkur. Hann bar nýlega sigur úr býtum í fo
keppni norrænu
aði steiktan lax m ðL
Velgengni ýtir undir áhuga
Garðar að störfum á veitinga-staðnum Silfri. Hér heldur hann á kengúrukjöti með kryddjurtasalati og súkkulaði- og kampavínskrapi.
IPL varanleg, sársaukalítil háreyðing
Greifynjan snyrtistofa s. 587 9310Nematilboð -20% Föstud. Vax, Förðun
FRÉTAB
LAÐ
IÐ
/PJETU
R
SKREYTT Í JÓLALITUMHefðbundnar, tímalausar skreytingar í klassískum jóla-litum eru alltaf vinsælastar.JÓL 3
HVERSDAGSMATURNý uppskriftabók Stefaníu Valdísar Stefánsdóttur er ætluð ungu fólki og öðrum sem skilja mikilvægi þess að borða hollan mat.
MATUR 2
30. NÓVEMBER 2007 ■ Jón Ásgeir á lúxusráðstefnu í Moskvu ■ Bjarni töframaður og kokkanámið ■ Ellý Árm
Björn Sveinbjörnsson og Svava JohansenALLTAF Í VEÐMÁLUM
Ástfangin og vinnusöm
Björn Sveinbjörnsson yfirgaf
fyrir sætuferilinn
til að fara að
vinna með
kærustunni
sinni, Svövu
Johansen.
FYLGIR FRÉTTA-
BLAÐINU Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
GARÐAR ÓLI GYLFASON
Galdraði fram dýrindis
þríréttaða veislumáltíð
matur . jól
Í MIÐJU BLAÐSINS
Tískuverðlaun
Bretlands
Stella McCartney er
fatahönnuður
ársins.
FÓLK 56
Rokkdoktorar
sameinast
Dr. Gunni fékk
Dr. Spock til að
spila lag í Laugar-
dagslögunum.
FÓLK 70
MAGNÚS SCHEVING
Ríkasti maður
í heimi
Heimildarþáttur Discovery frumsýndur
FÓLK 70
laugardaginn
1. desember kl. 10–16
STÓR-
SÝNING
KIA
STÚDENTABLAÐIÐ
HÁSKÓLINNH
MENNINGM
PÓLITÍKP
fylgir
Fréttablaðinu
16. desember
HEILBRIGÐISMÁL Sviðsstjórar á
Landspítalanum hafa fengið bréf
frá Vilhjálmi Egilssyni, formanni
nefndar um málefni spítalans, þar
sem þeim er gert að skera veru-
lega niður á næsta ári. Niður-
skurðurinn mun nema um tveim-
ur prósentum, að sögn Vilhjálms.
„Það er enginn að segja að þetta
verði auðvelt, en það er heldur
enginn að segja að þetta sé von-
laust. Þetta er það nákvæmlega
sama og menn þurfa að glíma við
í öllum rekstri,“ segir Vilhjálmur.
Í breytingartillögu meirihluta
fjárlaganefndar við fjárlagafrum-
varp ársins 2008 er lagt til að 200
milljónir króna bætist við fram-
lög til Landspítalans. Þá hafa fram-
lögin frá árinu sem nú er að líða
aukist um 1.020 milljónir. Sam-
tals eru framlög ríkisins til Land-
spítalans um 33 milljarðar króna.
Á síðasta ári var Landspítal-
inn þó rekinn með talsverðum
halla, og þurfti því að samþykkja
1.800 milljóna aukafjárveitingu
til að greiða upp halla á rekstri
stofnunar innar. Því hefur spítalinn
minna fé milli handanna á næsta
ári en þurfti til rekstrarins í ár.
„Menn eru alltaf að leita leiða
til að hag ræða, gera hlutina betur
en þeir gera,“ segir Vilhjálmur.
Það sé gert á Landspítal anum eins
og annars staðar. Spurður hvort
þetta þýði þjónustuskerðingu
segir hann: „Ég er ekki farinn að
sjá það ennþá að þess þurfi.“
Vilhjálmur segir að ekki verði
eingöngu um niðurskurð að
ræða, til standi að færa verkefni
til annarra heilbrigðisstofnana.
Stofnanir á Akranesi, Selfossi,
Hafnar firði og Reykjanesbæ fá
þannig aukalega 430 milljónir
króna til að styrkja rekstrarstöðu
svo þær geti tekið við auknum
verkefnum.
„Auðvitað hefur þetta áhrif,“
segir Magnús Pétursson, forstjóri
Landspítalans. Nú þegar Alþingi
hafi sett rammann segir hann
stjórnenda að halda sig innan
hans. Hann geti ekki fullyrt hvar
niðurskurðurinn komi niður. - bj
Landspítalinn skeri niður
um 500 til 700 milljónir
Fjármagn sem Landspítalanum er úthlutað til rekstrar verður skorið niður milli ára. Formaður nefndar um
málefni spítalans gerir ekki ráð fyrir skertri þjónustu. Óákveðið hvar skorið verður niður segir forstjóri.
STORMUR NORÐVESTAN TIL - Í
dag verða norðaustan 18-23 m/s
norðvestan til, annars 13-20 m/s.
Snjókoma eða él norðan til, rigning
eða slydda austan til, annars
úrkomulítið.
VEÐUR 4
MENNING Íslenskur listamaður olli
fjaðrafoki í miðbæ Toronto í
Kanada þegar hann skildi eftir
gervisprengju á listasafni.
„Ég bjó til skúlptúr úr viði og
málningu sem leit við fyrstu athug-
un út eins og sprengja. Ég tók síðan
upp tvö myndbönd á farsíma sem
sýna sprengingu,“ segir Þórarinn
Ingi Jónsson, nemi við listaháskól-
ann Ontario College of Art and
Design í Toronto.
„Daginn sem ég átti að sýna loka-
verkefnið fór ég inn á safnið og
kom skúlptúrnum fyrir við hliðina
á bekk með miða þar sem á stóð að
þetta væri ekki sprengja,“ segir
Þórarinn en að því loknu fór hann í
skólann og sýndi verkefnið. Það
var ekki fyrr en seint á miðviku-
dagskvöld sem Þórarinn komst að
því að safnið hefði verið rýmt og
götum í miðborginni lokað af lög-
reglu.
„Ég hef ekkert heyrt frá lögregl-
unni, en ég talaði við lögfræðing
skólans áður en ég hófst handa við
gerð listaverksins.“
Þórarinn segir kanadíska fjöl-
miðla heldur neikvæða út í gjörn-
inginn og sumir efist um að verk
hans geti kallast list. Hann kippir
sér þó ekki upp við það enda er
verkið byggt á hugmyndum Mar-
cel Duchamp, listamannsins sem
hengdi upp klósettskál á listasafni.
Verk Þórarins er einnig tilvísun í
nútímann. „Þetta hefði ekki orðið
jafn stór viðburður fyrir 11. septem-
ber 2001. Allt hefur breyst síðan.
Tímasetning verksins er því mikil-
væg og tengist boðskapnum.“ - eb
Miðborg Toronto í Kanada rýmd vegna gjörnings Þórarins Inga Jónssonar listnema:
Íslensk sprengja veldur usla
ATHVARF Í VETRARKULDANUM Gestum á hinum gamalgróna jólamarkaði í Berlín býðst að hvíla lúin bein undir svokölluðum hita-
kápum, þykkum yfirhöfnum sem hengdar eru yfir ylvolga pottofna. Þessar dömur gæddu sér á jólaglögg í hlýjunni. NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Úrræðaleysi ein-
kennir heilbrigðisþjónustuna
þegar kemur að heimilislausu
fólki. Fyrir kemur að fólk sé
útskrifað af spítala þrátt fyrir að
það eigi hvorki heimili né pen-
inga til að kaupa nauðsynleg lyf.
Eva Lind Björnsdóttir, sem
eitt sinn var heimilislaus, segir
aðstoð skorta við konur á göt-
unni. - eb / sjá síðu 16
Heilbrigðiskerfið:
Heimilislaus í
kerfinu líka
Áfram í toppsætinu
Haukar styrktu stöðu sína á toppn-
um í N1-deild karla í handbolta
með útisigri á Stjörnunni.
ÍÞRÓTTIR 66
BRETLAND Breskt farsímafyrir-
tæki hefur þróað gervihnatta-
kerfi sem gerir fólki kleift að
finna næsta salerni með símanum
sínum. Einungis þarf að senda
skilaboð með orðinu „toilet“ í
síma 80097 og þá berast upplýs-
ingarnar um hæl.
Kerfið er þegar virkt á um
tíu ferkílómetra svæði í West-
minster-hverfinu í London og er
frekari útbreiðsla þess fyrirhug-
uð. Fulltrúar yfirvalda segjast
hæstánægðir með árangurinn. - sh
Fólki hjálpað að létta á sér:
Salerni í símann