Fréttablaðið - 30.11.2007, Qupperneq 4
4 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
RÚSSLAND, AP Garrí Kasparov,
fyrrverandi heimsmeistari í skák,
var í gær látinn laus úr fangelsi í
Moskvu, þar sem hann var látinn
dúsa í fimm daga fyrir að hafa
farið fyrir mótmælagöngu gegn
stjórn Vladimírs Pútín í borginni
um síðustu helgi.
Tilgangur stjórnvalda með því
að loka hann í fangelsi var að
sögn Kasparovs að „senda
skilaboð“. „Meðferð Pútín-
stjórnarinnar á eigin þjóð er að
komast á nýtt stig,“ sagði hann er
hann sté út úr lögreglubílnum
sem ók honum heim úr fangels-
inu. „Hún er að breytast í
einræðisstjórn.“ - aa
Kasparov laus úr fangelsi:
Sakar Pútín um
einræðisstjórn
FRJÁLS Kasparov spáir því að hann verði
fljótlega dæmdur aftur í fangelsi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FISKELDI „Íslendingum er mjög
mikilvægt að glata ekki sinni góðu
stöðu á alþjóðamörkuðum fyrir
þorsk. Sú hætta kann að skapast ef
við drögumst aftur úr öðrum þjóð-
um á sviði þorskeldis,“ sagði Einar
K. Guðfinnsson sjávarútvegsráð-
herra við upphaf ráðstefnu um
stöðu þorskeldis á Íslandi sem
hófst í gær. Sérfræðingur Haf-
rannsóknastofnunar segir langt
þangað til veiðar á villtum þorski
aukist á ný. Norðmenn hafa for-
skot í þorskeldi sem gæti skilað
þeim yfirburðastöðu á mörkuðum.
Sjávarútvegsráðherra minnti á
það í ræðu sinni að aðrar þjóðir
settu mikla fjármuni í að byggja
upp eldi og nauðsynlega þekkingu.
„Ef við sitjum hjá kunnum við að
lenda í þeirri stöðu að glata því
forystuhlutverki sem við höfum
náð á mörkuðum erlendis.“
Mjög er horft til Norðmanna
þegar þorskeldi er annars vegar.
Þeir eru lengst komnir allra þjóða
og forskotið gæti skilað þeim yfir-
burðastöðu á mörkuðum með eldis-
þorsk á næstu árum.
Guðbergur Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldisstöðva, fjallaði um stöðu
þorskeldis á Íslandi og bar saman
við þorskeldi í Noregi. Í máli hans
kom fram að vandamálin og mark-
miðin væru skýr. „Takmörkuð geta
til seiðaframleiðslu á Íslandi er
flöskuháls sem brýnt er að bæta úr
ef þorskeldi á að taka flugið hér á
landi.“ Í nýrri skýrslu til sjávar-
útvegsráðherra er lagt til að mark-
miðið skuli verða að framleiða 30
þúsund tonn af eldisþorski árið
2015. Byggð verði seiðastöð sem
geti framleitt allt að tíu milljónir
seiða árið 2013. Aðeins ein seiða-
eldisstöð er starfrækt á Íslandi
sem framleiðir 500 þúsund seiði
árlega. Sjávarútvegsráðherra
sagði að samstaða þyrfti að nást
um að reisa slíka seiðaeldisstöð.
Björn Ævarr Steinarsson, sviðs-
stjóri veiðiráðgjafarsviðs Haf-
rannsóknastofnunar, sagði að upp-
bygging þorskeldis væri brýnt
verkefni. Ekki væri neinnar aukn-
ingar að vænta í þorskveiðum á
næstu fimm árum. „Raunar verður
engin aukning nema við fáum inn
sterka nýliðun á næstu tíu til
fimmtán árum. Þess misskilnings
virðist gæta í þjóð félaginu að þetta
muni gerast á mun skemmri tíma.“
svavar@frettabladid.is
Þorskeldi mikilvægt
til að verja markaði
Sjávarútvegsráðherra segir hættu á að forskot á mörkuðum tapist ef Íslendingar
dragist aftur úr í þorskeldi. Aukinn áhugi á þorskeldi er hjá stjórnvöldum og fyrir-
tækjum. Markmiðið er að framleiða 30 þúsund tonn af eldisþorski árið 2013.
ÞORSKUR FÓÐRAÐUR Margir fiskeldismenn telja að stjórnvöld eigi að styðja við
þorskeldi með opinberum styrkjum, til dæmis með niðurgreiðslu á fóðri.
MYND/KARL MÁR EINARSSON
- Þorskveiði í Atlantshafi hefur
minnkað úr fjórum milljónum
tonna í 890 þúsund tonn á
nokkrum áratugum.
- Aflamark í þorski á þessu fisk-
veiðiári er 130 þúsund tonn.
- Norðmenn framleiða 15 þúsund
tonn af eldisþorski árið 2007.
- Íslendingar framleiða 1.500 til
2.000 tonn af eldisþorski árið
2007.
- Norðmenn ætla sér að framleiða
215 þúsund tonn árið 2013.
- Íslendingar stefna á að framleiða
30 þúsund tonn árið 2013.
STAÐREYNDIR UM
ÞORSK OG ÞORSKELDI
Musharraf sver eið
Pervez Musharraf hóf í gær formlega
nýtt fimm ára kjörtímabil sem forseti
Pakistans, daginn eftir að hann sagði
af sér sem yfirmaður heraflans, en
sú staða var grundvöllur valda hans
síðastliðin átta ár.
PAKISTAN
Stal þremur tonnum af vatni
Héraðsdómur Norðurlands eystra
frestaði í gær ákvörðun um refsingu
manns sem ákærður var fyrir að stela
heitu vatni. Maðurinn mun hafa sett
segul ofan á rennslismæli í hitaveitu-
grind í húsi fyrirtækis á Akureyri.
DÓMSMÁL
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþing-
is hefur sent stjórn Ríkisútvarps-
ins bréf til að minna á að upplýs-
ingalögin skuli virt. Kveikjan að
bréfinu var ummæli formanns
stjórnar RÚV, sem lét hafa eftir
sér að hann myndi ekki hver laun
útvarppsstjóra væru, en að þau
yrðu gefin upp á næsta aðalfundi
félagsins. Þá sagðist Páll Magnús-
son útvarpsstjóri ekki heldur
muna upphæð eigin launa, eða
hversu lengi hann hefði fengið bíl
á rekstrarleigu.
Umboðsmaður greip því til þess
að eigin frumkvæði að kanna
hvernig RÚV fylgdi reglum upp-
lýsingalaga við að veita aðgang að
gögnum um laun starfsmanna.
Eftir að upplýsingar um laun Páls
höfðu fengist og verið birtar á
fréttavefnum visir.is ákvað
umboðsmaður að hætta skoðun-
inni, en sá samt ástæðu til að koma
ábendingum á framfæri við stjórn
RÚV. Afrit var sent til mennta-
málaráðherra, sem fer með eignar-
hlut ríkisins í RÚV.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
segist ekki hafa skoðun á bréfinu.
„Mér hefur ekki gefist tóm til að
lesa þetta bréf, enda var það ekki
sent mér. Þetta bréf var sent til
stjórnar Ríkisútvarpsins og afrit til
menntamálaráðherra, þannig að ég
hef í raun enga skoðun á því.“ - sh
Útvarpsstjóri hefur ekki lesið bréf umboðsmanns Alþingis til stjórnar RÚV:
RÚV minnt á upplýsingalögin
MÁLEFNI RÚV Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra og Páll
Magnússon útvarpsstjóri á kynningar-
fundi um hlutverk og skyldur Ríkis-
útvarpsins.
DÓMSMÁL Tveir fyrrverandi rit-
stjórar DV hafa verið sýknaðir
í Héraðsdómi Reykjavíkur af
kröfu manns um að ummæli í
fréttum blaðsins um kynferðis-
brotamál yrðu dæmd dauð og
ómerk. Jafnframt var miskabóta
krafist. Héraðsdómur Reykja-
víkur taldi að notkun DV á orðinu
nauðgun hefði verið réttlætanleg.
Málið á rætur að rekja til dóms
héraðsdóms frá því á síðasta ári.
Þar var karlmaður dæmdur
í árs fangelsi fyrir kynferðis-
brot önnur en samræði með því
að notfæra sér ölvun og svefn-
drunga konu. Hann var ósáttur
við að DV notaði nauðgun en ekki
misneytingu í umfjöllun um dóm-
inn. - jss
Máttu nota orðið nauðgun:
Fyrrum ritstjór-
ar DV sýknaðir
SVÍÞJÓÐ Ráðist var á rektor grunn-
skóla í Stokkhólmi í Svíþjóð og
hann stunginn átta sinnum. Rann-
sókn lögreglunnar hefur leitt
í ljós að árásarmaðurinn er 22
ára, bróðir fyrrverandi nem-
anda í skólanum. Árásarmaðurinn
hefur verið handtekinn, að sögn
Expressen.
Hótanir og ofbeldi gagnvart
kennurum hefur tvöfaldast á
þremur árum í Svíþjóð. Í fyrra
bárust 176 tilkynningar um slíkt.
Nýlega voru nokkrir unglingar
handteknir fyrir morðhótanir í
garð kennara í Malmö. - ghs
Kennarar í Svíþjóð:
Morðhótanir
hafa tvöfaldast
DÓMSMÁL
Pylsa kostaði tíu þúsund
Maður var í gær dæmdur í Héraðs-
dómi í tíu þúsund króna sekt fyrir
að henda pylsu og pylsubréfi út um
bílglugga á Selfossi. Með þessu braut
hann lögreglusamþykkt fyrir sveitar-
félagið Árborg.
SVEITARSTJÓRNIR Bjarni Jónsson,
fulltrúi Vinstri grænna í sveitar-
stjórn Skagafjarðar, segir hægt
að fá næga orku frá Blönduvirkj-
un fyrir netþjónabú í Skagafirði.
„Því þyrfti ekki að fórna
skagfirsku jökulánum vegna
slíks verkefnis. Slíkt voðaverk,
sem eyðilegging þeirra væri, yrði
því aldrei réttlætt með uppsetn-
ingu netþjónabús, ef af yrði,“
segir Bjarni í bókun á síðasta
fundi sveitarstjórnarinnar. Þar
var rætt boð Fjárfestingarstofu
um Skagafjörður sé með í
athugun á aðstæðum fyrir
netþjónabú í völdum sveitar-
félögum. - gar
Netþjónabú í Skagafirði:
Blönduvirkjun
annar orkuþörf
GENGIÐ 29.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
119,2659
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
61,2 61,5
126,12 126,74
90,18 90,68
12,09 12,16
11,149 11,215
9,622 9,678
0,5551 0,5583
97,22 97,8
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR