Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 15
A
FL Group, Fons og Baugur Group standa
einnig saman að öðru verkefni í Gíneu-Bissá.
Fyrir stuðning þeirra er m.a. verið að reisa
135 skóla í landinu, sem rúma munu yfi r 30
þúsund börn.
Markmið verkefnisins eru einkum að veita
börnum tækifæri til að sækja skóla, innleiða
nýjar kennsluaðferðir og auka gæði grunn-
menntunar, bæta umhverfi og aðstæður í
skólum, þjálfa og fræða starfsfólk og endur-
skoða námsefni og kennsluskrár.
Sérstök áhersla er lögð á að auka innritun
og endur komu stúlkubarna, bæta aðstæður
þeirra innan skólans og stuðla að almennri
viðhorfsbreytingu til menntunar kvenna.
Í apríl 2007 höfðu um 13 þúsund börn fengið
tækifæri til að sækja skóla, börn sem annars
ættu þess ekki kost. Auk þess að byggja nýja
skóla hafa um hundrað skólastofur verið
endurnýjaðar og vatns salernum komið upp í
um 50 skólum á lands byggðinni, fræðsla um
HIV/alnæmi hefur verið stóraukin og gerð
þriggja ára áætlunar um víðtæka þjálfun
kenn ara er nú lokið.
Þessi verkefni skipta sköpum fyrir lífsbjörg
og framtíð íbúa Gíneu-Bissá.
MENNT ER MÁTTUR
Gínea-Bissá er á vesturströnd
Afríku og á landamæri að Gíneu
og Senegal. Íbúar eru tæplega
1,5 milljón. Á lista Sameinuðu
þjóðanna yfi r lífsgæði er landið
í einu af neðstu sætunum.
Lífslíkur íbúa við fæðingu eru að
meðal tali 45 ár og er rétt rúmur
helmingur íbúa yngri en 18 ára.
Eitt af hverjum fi mm börnum
nær ekki 5 ára aldri.
SAÚDE*
©
U
N
IC
E
F/
P
ir
o
zz
i