Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 39
[ ]Jólakortin er gott að gera tímanlega svo þau skili sér örugglega fyrir jólin. Ef ætlunin er að föndra þau eða senda mynd þá er skynsamlegt að huga að þeim með góðum fyrirvara. Svo er líka mjög gott að vera búinn að koma þeim frá þar sem af nógu er að taka fyrir jólin.
Gleðileg jól
ÞAÐ ER ALLTAF NOTALEGT AÐ FÁ
GÓÐA JÓLAKVEÐJU
Íslendingar upplifa
flestir unaðshroll og
ljúfa geðshræringu
þegar þeim er óskað
gleðilegra jóla af ná-
unganum í námunda
við jólahátíðina.
Munum að ylja útlending-
um á vegi okkar með sömu kær-
leiksríku kveðjunni um gleðileg
jól. Hér fylgja jólakveðjur á nokkr-
um tungumálum og ekkert til fyrir-
stöðu að æfa sig nú og láta vaða.
S.-Afríka ~ Een Plesierige Kerfees
Argentína ~ Felices Navidad
Brasilía ~ Boas Festas
Kína ~ Saint Dan Fai Lok
Danmörk ~ Glædelig Jul
Holland ~ Vrolijk Kerstfeest
England ~ Merry Christmas
Finnland ~ Hyvaa Joulua
Frakkland ~ Joyeux Noël
Þýskaland ~ Froehliche
Weih nachten
Grikkland ~ Kala Christouyenna
Havaí ~ Mele Kalikimaka
Indónesía ~ Selamat Hari Natal
Írland ~ Nollaig Shona Dhuit
Ítalía ~ Buone Feste Natalizie
Japan ~ Kurisumasu Omedeto
Kórea ~ Sung Tan Chuk Ha
Litháen ~ Linksmu Kaledu
Malasía ~ Selamat Hari Natal
Noregur ~ God Jul
Rúmenía ~ Craciun Fericit
Perú ~ Felices Fiestas
Portúgal ~ Boas Festas
Slóvakía ~ Vesele Vianoce
Spánn ~ Feliz Navidad
Svíþjóð ~ God Jul
Vissulega sjást tískustraum-
arnir í jólaskreytingum sem
annars staðar en þó eru hinar
hefðbundnu, tímalausu skreyt-
ingar alltaf við lýði og hvað
vinsælastar.
Ekki er allt gull sem glóir en oft-
ast tekst þó gylltu yfirborði að
draga að sér athygli. Gullið minn-
ir á hátíðleika og munað og því er
ekki að furða að gyllt jólaskraut
hafi löngum notið vinsælda. Rauði
liturinn tónar síðan fallega við
bjarta gyllta áferð og minnir
óneitanlega á jólasveininn og
dumbrauða hátíðardregla. Græni
liturinn er klassískur og er oft í
greni í jólaskreytingum. Einnig
er gaman að nota náttúrulegar
skreytingar eins og þurrkaða
ávexti, köngla, trjágreinar og
þess háttar. Í Blómastofunni á
Eiðistorgi eru jólaskreytingarnar
smám saman að tínast inn en þar
er boðið upp á námskeið í jóla-
skreytingum klukkan fimm á
föstudögum fram til jóla.
-hs
Gyllt og grænt
Það er um að gera að
nota hugmyndaflugið við
kertaskreytingar. Hér
hefur kertinu verið
stungið í skreyttan
blómapott.
Gaman getur
verið að nota
þurrkaða ávexti,
kanilstangir og
köngla í skreyt-
ingar.
Gylltur og rauður eiga vel
saman og eru hér skemmti-
leg andstæða við fábrotinn
og náttúrulegan hringinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sími 517-0110 – avaxtabillinn@avaxtabillinn.is – www.avaxtabillinn.is
Sannkallaðir gleðigjafar
Kæri jólagjafi!
Með þessum körfum geturðu leyst málið á
einfaldan og skemmtilegan hátt.
Ávaxtakörfur
Ilmur af jólum
Þessi kemur með jólin, lyktin af
mandarínunum og rauðu eplunum
tryggir það.
Stærð 1 2.800 Stærð 2 4.500
Stærð 3 5.900
Ávaxtakörfur með
ostaívafi
Á franska vísu
Ostar og ávextir eiga afskaplega vel
saman, það segir Frakkinn allavega.
Stærð 1 3.850 Stærð 2 4.900
Stærð 3 6.350
3 stiga körfur
Með morgunkaffinu?
Sláum því föstu, að þú viljir koma
starfsmönnum fyrirtækis skemmtilega
á óvart, þá sendirðu okkur með svona
Stærð 1 4.500 Stærð 2 6.750
Stærð 3 8.750
Fyrir síðustu jól fengum við jólakörfur
frá Ávaxtabílnum fyrir alla starfsmenn
okkar víðs vegar um landið. Viðbrögð
starfsmanna og þjónusta Ávaxtabílsins var
með þeim hætti að við getum hiklaust mælt
með körfunum þeirra.
Ágústa Óskarsdóttir – Vísir hf Grindavík
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki