Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 57
hún þau passa vel saman. „Naut og
steingeit eiga mjög vel saman. Þau eru
bæði jarðarmerki og ég held að það
henti þessum merkjum að hittast
seinni partinn á lífsleiðinni. Þá er
steingeitin farin að mildast og nautið
er ekki eins þrjóskt.“ Þegar hann er
spurður að því hvort hann spái í
stjörnumerki neitar hann því. „Hann
sá bara eina stjörnu þegar hann hitti
mig,“ segir hún og þau hlæja hátt en
Björn skýtur því inn í að hún hafi rétt
fyrir sér því hann hafi róast mikið með
aldrinum. „Ég var miklu uppstökkari,“
segir hann og hún viðurkennir að sjálf
hafi hún líka mildast með árunum.
„Þegar maður er að sjá um stærri og
meiri hluti verður maður sigldari og
finnur að ef maður æsir sig upp þá
festist maður í lás. Þegar skapið fer að
ná tökum á manni missir maður yfir-
sýnina,“ segir hún og bætir því við að
henni finnist það virðingarvert þegar
fólk kunni að stilla skap sitt.
Á leið í Fossvoginn
Í haust fjárfestu Björn og Svava í ein-
býlishúsi í Fossvogi sem verður breytt
á næstunni og nýtt og glæsilegt hús
mun rísa á lóðinni í staðinn. Þau fengu
Pálmar Kristmundsson til að teikna
húsið að innan og utan og áætla að
flytja inn á næsta ári. Þegar þau eru
spurð út í húsið vilja þau helst ekkert
segja því þau eru sammála um að
heimilið sé heilagt. Eftir smá suð nær
blaðamaður því upp úr þeim að húsið
verði stílhreint og svarti liturinn verði
áberandi að innan en húsið verði sjálft
hvítt að utan. Þegar þau eru spurð út í
eigin smekk segjast þau hafa ótrúlega
líkan smekk og séu bæði svolítið
„svört“. „Við viljum hafa fallegt í kring-
um okkur. Það er þó ekki þar með sagt
að það þurfi að kosta peninga. Þetta
snýst ekki um það,“ segir hann og hún
bætir því við að þau séu ekki mikið
fyrir að hafa drasl á heimilinu. „Bjössi
er alltaf að laga til,“ segir hún og bætir
við að henni finnist það mikill kostur.
Annars er verkaskiptingin frekar ein-
föld í eldhúsinu. „Hún eldar og ég
vaska upp,“ segir hann og Svava bætir
því við að heimilishaldið myndi aldrei
ganga upp ef þau væru ekki með hús-
hjálp.
Talið berst að tískustraumum. Upp
á síðkastið hefur það verið mikið í
móð að konur sem eru komnar yfir
fertugt fjölgi sér. Þegar Svava er spurð
að því hvort hún ætli ekki að koma
með eitt lítið brosir hún breitt og
segir að það verði bara að koma í ljós.
Hún beitir smjörklípuaðferðinni og
fer að tala um fatatískuna en þar gæti
hún ekki verið meira á heimavelli.
„Pallíettur eru málið núna ásamt silki-
satíni og leðri. Palíettu-buxur koma í
Galleri 17 fyrir jólin, blúndur verða
áberandi fyrir jólin ásamt gulli og
silfri og beinhvíti liturinn er að detta
inn. Hjá yngri stelpunum eru flottir
Madonna-kjólar í blúndu og svo
kvenlegir kjólar ýmist með steinum,
satíni eða pallíettum, leggings í öllum
litum, Alladin-buxur og bara flott
Rockabilly-tíska ásamt „bling, bling“
skartgripum og túrbaninn gamli góði
er búinn að slá í gegn,“ segir hún og er
alveg komin á flug og bætir við að
gömlu góðu dragtirnar sem hafa legið
í dvala séu að koma inn aftur og þá sé
jakkinn stuttur og buxurnar útvíðar
með háum streng. Þegar Svava er
spurð út í eigin klæðaburð grípur
Bjössi fram í og segir að hún sé flott í
öllu. „Margir halda að hún sé í marga
klukkutíma að klæða sig á morgnana
en það er alls ekki þannig,“ segir hann
og hún segist vera meðvituð um eigið
vaxtarlag og klæði sig samkvæmt því.
Það er alltaf spurning um að búa til
jafnvægi í fatavali samfara vaxtarlag-
inu svo heildarútlitið verði gott,“ segir
hún. Desember er annasamur mán-
uður hjá kaupmanns parinu. Þau
segjast bæði vera mikil jólabörn og
eru nú þegar búin að skreyta heima
hjá sér og farin að spila jólatónlist.
Svava hefur þá reglu að vera búin að
kaupa flesta pakkana fyrir 15. desem-
ber en eftir þann tíma reynir hún að
vera sem mest í búðunum að vinna.
Þegar þau eru spurð að því hvort
aðfangadagur hjá þeim sé eitthvað í
átt við VR-auglýsingarnar þar sem
fólkið sofnar ofan í súpuna þvertaka
þau fyrir það. Björn, Svava og Ásgeir
Frank, sonur hennar, verða hress í
rjúpunum heima hjá Kristínu móður
Svövu og systkinum hennar á
aðfangadag. „Annars hefur gamlárs-
dagur verið einn af mínum upp-
áhaldsdögum á árinu, þá höfum við
öll sex systkinin komið í mörg ár
ásamt mökum og börnum heim til
mömmu og pabba og átt yndislegan
kvöldverð, farið á brennu horft á
skaupið og sprengt flugelda. Pabbi
minn lést í haust svo þetta verða
fyrstu jólin án hans – það á eftir að
verða skrítið. Ég á eftir að sakna hans
mikið og við öll en svona er víst lífið.“
martamaria@365.is
MIKIL JÓLABÖRN Svava og Bjössi eru
þegar búin að skreyta heima hjá sér
og farin að hlusta á jólalög.
MYNDIR/VALLI
30. NÓVEMBER 2007 | SIRKUS | BLS. 9