Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 69
FÖSTUDAGUR 30. nóvember 2007 37
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda
okk ur línu og leggja orð í belg um
mál efni líð andi stund ar. Grein ar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Ein göngu er tek ið á móti efni
sem sent er frá Skoð ana síð unni
á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein-
ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni
birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða
í báð um miðl un um að hluta eða
í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Kjör kennara
Nú styttist óðum í að samningar hjá
grunnskólakennurum
verði lausir og nú þegar
er byrjaður fólksflótti
úr stéttinni vegna þeirra
lágu launa sem eru í
boði. Kjör kennara eru
ekki samkeppnishæf á
hinum frjálsa atvinnu-
markaði. Fleiri og fleiri kennar-
ar flýja kjörin og taka tilboðum
um betur launuð störf. Yfirmenn
grunnskólanna reyna að manna
kennarastöðurnar með öllum
ráðum og hlutfall leiðbeinenda
eykst í skólum landsins án þess
að nokkur hafi við því að segja.
Af og til heyrum við af vanda-
málum sem skapast í sumum
leikskólum landsins vegna mann-
eklu, deildum er lokað og börn
eru send heim en ekkert heyrist
frá grunnskólunum hvernig
staðan er þar. Meðan einhver er
til staðar til að sinna nemendun-
um í skólunum heyrist engin
kvörtun frá foreldrum
eða öðrum. Enda eru
leiðbeinendurnir oft og
tíðum mjög gott fólk og
fær jafnvel mikinn
áhuga á kennarastarf-
inu. En núna hugsar það
sig tvisvar um þegar
það heyrir um byrjunar-
launin sem í boði eru
fyrir nýútskrifaða kenn-
ara. Það að fylla upp í
kennarastöðurnar með
leiðbeinendum eða ýta
meiri vinnu yfir á aðra starfs-
menn hjálpar ekki kennarastétt-
inni í sinni kjarabaráttu. Við
verðum að láta þjóðfélagið vita
hvernig staðan er í skólunum.
Kennarastarfið er mjög krefj-
andi starf en einnig lifandi og
skemmtilegt þar sem engir tveir
dagar eru eins. Mér hefur fund-
ist mjög gaman að fylgjast með
ungum, nýútskrifuðum eða
nýlegum kennurum og leiðbein-
endum í þessu starfi núna í
haust. Þeir eru áhugasamir,
kraftmiklir og hugmyndaríkir
en þegar þeir fá launaseðilinn
verða vonbrigðin mikil. Hvernig
er hægt að lifa á þessu? Margir
ungir kennarar í dag láta ekki
bjóða sér þetta og fara í betur
launuð störf. Þjóðfélagið mun
missa margt hæfileikaríkt fólk
úr skólunum ef launin verða ekki
leiðrétt. Einstæðir foreldrar
geta ekki haldið uppi heimili á
þessum kjörum og detta því
fyrstir úr stéttinni. Hinir finna
að starfið er að missa virðingu
sína í samfélaginu vegna þess-
ara smánarlauna. Sumir eldri
kennarar sem eru á 95 ára regl-
unni, haldast í starfinu til að
missa ekki sín réttindi og bíða
óþreyjufullir eftir þeim degi
þegar þeir mega hætta að vinna.
En ekki eru allir þannig. Aðrir
eru alltaf lifandi, áhugasamir og
tilbúnir að þroskast í sínu starfi
þrátt fyrir að meiri kröfur séu
gerðar núna til kennara en fyrir
20-30 árum. Samt sem áður eru
flestir kennarar langþreyttir á
að störf þeirra séu ekki virt að
verðleikum.
En spurningin er, hvað ætla
sveitarfélögin að gera? Hvernig
ætla þau að stöðva flóttann úr
skólunum? Núna eru Starfs-
greinasambandið og Samtök
atvinnulífsins að hefja kjaravið-
ræður og heyrst hefur að það
fyrrnefnda muni ekki sætta sig
við minna en 30 prósenta hækk-
un á lægstu laun. Þessar launa-
kröfur ættum við kennarar að
krefjast líka án þess að þurfa
auka við vinnu á móti eins og
virðist alltaf vera raunin þegar
við fáum launahækkun. Við þurf-
um einhverjar aðgerðir fljótlega
áður en ófremdarástand skapast
í skólum landsins.
Höfundur er kennari og móðir
þriggja barna á leik- og grunn-
skólaaldri.
Eigum við að lifa á loftinu?
HELGA
ÁGÚSTSDÓTTIR
UMRÆÐAN
Faðernismál
Þau undur og stórmerki gerðust í okkar litla samfélagi að fræg-
ur maður vildi ekki lengur vera
sonur föður síns. Hann gat ekki á
heilum sér tekið og linnti ekki
látum fyrr en faðir hans var orð-
inn annar en sá sem ól hann upp í
ást og umhyggju. Mér þótti mikið
til þessa koma, ég verð nú bara að
segja það.
En það var
ekki allt. Hann
vildi láta kné
fylgja kviði,
eða þannig.
Arfssókn kom
í kjölfarið og
þá fannst fleir-
um en mér
mælirinn full-
ur. Að ala upp
barn er besti
kafli í lífi
hvers manns og börnum eðlilegt
að þykja vænt um góða foreldra.
Að valda leiðindum og sársauka
vegna eigingjarnra hvata eða
duttlunga, er sumum léttara en
öðrum. Það er eðlilegt að leita upp-
runa síns og börn eiga skilyrðis-
lausan rétt á því. En þegar menn
eru komnir að fótum fram, skiptir
það litlu. Hvað fá menn út úr ætt-
greiningu fyrir opnum tjöldum í
svo viðkvæmum málum? Hverjir
verða sorgmæddir og hverjir
verða glaðir?
Foreldrar barns eru fyrst og
fremst þeir sem ala það upp af
alúð og í flestum tilfellum sama
hvernig þeir eru til komnir. Þeir
skipta öllu máli.
Hinir skipta engu eða litlu nema
þeim sé bolað frá börnum á röng-
um forsendum. Svo virðist ekki í
þessu tilfelli og því best að láta
kjurt liggja. En kannski er ég
svona barnalegur í hugsun.
Höfundur er trésmíðameistari.
Barn er
þess sem
elur það
ALBERT JENSEN
Reykskynjarar
á þúsund kall
(rafhlaða innifalin)!
Hvers virði er fjölskyldan?
990
krónur*
Reykskynjarar eru ódýrir. Auðvelt er að setja þá upp og halda þeim
við. Þeir eru mikilvægasta öryggistæki heimilisins. Skerandi vælið í
þeim hefur bjargað fjölmörgum mannslífum. Samt eru talsverð brögð
að því að reykskynjara vanti á íslensk heimili.
Eftir hverju ert þú að bíða?
Þú færð reykskynjara, slökkvitæki, eldvarnateppi og annan eldvarna-
búnað í byggingavöruverslunum, sérverslunum, hjá trygginga-
félögunum og víðar.
Er þér þá nokkuð að vanbúnaði?
Ítarlegar upplýsingar um eldvarnir heimilanna birtust í Eldvarnablaðinu
sem kom út með Morgunblaðinu 23. nóvember. Blaðið er að finna á
www.lsos.is. TM er samstarfsaðili LSS í Eldvarnaátakinu 2007.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐINwww.lsos.is
www.tm.is
*dæmi um verð í byggingavöruverslun 31.10.07 – á ekki við reykskynjarann á myndinni.